Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Gjaldeyrishöft forsenda vaxtalækkunar

Bankinn segir, að afgangur af utanríkisviðskiptum hafi ekki stutt við krónuna að því marki sem vænst var. Þetta hafi gert peningastefnunni erfiðara um vik að stuðla að enduruppbyggingu efnahags heimila og fyrirtækja og kallað á tiltölulega aðhaldssama peningastefnu í upphafi fjármálakreppunnar. Nú hafi verið dregið úr aðhaldinu en ennþá sé þörf á varkárni. 

„Með því að hindra óheft útflæði fjármagns stuðla tímabundin  gjaldeyrishöft einnig að stöðugra gengi krónunnar. Þar sem fjárfestar telja íslenskar fjáreignir mjög áhættusamar væri þörf á mjög miklum vaxtamun við útlönd til að styðja við krónuna ef slíkra hafta nyti ekki við og líklega einnig þegar þeim verður aflétt að lokum. Meðan veruleg óvissa er ríkjandi um erlendar skuldir þjóðarinnar, stöðu ríkisfjármála og endurskipulagningu fjármálakerfisins eru gjaldeyrishöft forsenda þess að hægt sé að draga verulega úr aðhaldi í peningamálum,"

Þá þarf líka að passa upp á að útflutningstekjur skili sér "óhreifðar" inn til landsins - nú þíðir ekkert brask - því meiri samstaða því fyrr gengur þetta yfir


mbl.is Gjaldeyrishöft forsenda vaxtalækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

að umbreyta lánum í vafninga og selja

Olga er bareigandi í  Neskaupstað. Til þess að auka veltuna þá ákveður hún að leyfa dyggum viðskiptavinum—sem flestir eru atvinnulausir alkar—að drekka út á krít.

Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn. Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Olgu valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni

Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Olgu í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð.

Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og Gubbuafleiður. Þessi verðbréf—sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn þóknun) stimplað AAA gæðastimpli—ganga síðan kaupum og sölum út um allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau eru metsöluvara.

Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að drykkjuhrútarnir á bar  Olgu  borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir geta það hins vegar ekki.   Olga getur því ekki staðið í skilum við sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugkeika eftir 80% fall. Nýr veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi Olgu vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið af keppinauti.

Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum.

Nýr skattur er lagður á. Bindindismenn eru látnir borga brúsann. 


Krókódílar drepa níu börn

Krókódílar hafa drepið að minnsta kosti níu börn í Kwanza-Sul héraði í Angóla á undanförnum vikum. Þá hafa krókódílar ráðist á konur sem hafa verið að sækja vatn.

Ég skil ekki af hverju þessi kvikindi fá svona mikla vernd frá okkur mönnunum


mbl.is Krókódílar drepa níu börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

handtekinn var með mikið magn af kókaíni í Brasilíu

Hann deilir nú fangaklefa með fimmtán öðrum föngum, en í viðtalinu sagðist hann ekki vera þannig týpa að hann gæti verið í fangelsi. Sagðist hann aldrei hafa viljað fara í ferðina, heldur hefði hann verið neyddur til þess.

Maður velur sér vini en ekki öfugt


mbl.is „Ég á eftir að deyja hérna"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var þeim skipað út í Árósum

Fimm norskar hjólhýsakonur á leið til landsins. Von er á hjólhýsakonunum til landsins undir lok næstu viku, að því er segir í tilkynningu.

meira af norskum skemtikröftum, hvaða stofn skildi þetta vera

kanski frænkur Seðlabankastjóra

 


mbl.is Norskar hjólhýsakonur á leið til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónlistarhús og Glæsihótel við Faxahöfn

hér fer allt hljótt - er enn rétt forgangsröðun að láta þessi tvö mannvirki og þá helst Tónlistarhúsið fá þessar 13þúsund milljónir sem ekki sér fyrir endan á að dugi til nema þá kanski til helminga ? sama á við um reksturinn en þar er ekki á hreinu að þessi "glæsibygging" sé með rekstrargrundvöll tryggðann ? halda menn virkilega að það dugi að krossa fingurna Errm

Eða á bara að halda áfram allri vitleysunni og reyna að hætta að hugsa um það sem við þufum svo mikið að passa upp á áður en við getum leift okkur svona munað í 2007 "lookinu" útávið í hinum stóra heimi ?

Persónulega þá hef ég ekki efni á þessu núna - við verðum að gæta idet mindste að meðalmenskunni


skaut hana í andlitið

Culp var varla hugað líf eftir árásina, sem eyðilagði nef hennar, kinnbein, munnholið og annað augað. Það eina í andliti hennar sem var óskaddað eftir árásina var augnlokin, ennið, neðri varirnar og kinnar. 

Culp sagðist óendanlega þakklát læknum sínum. „Ég geri mér grein fyrir að þið eruð komin til þess að hitta mig, en mér finnst mikilvægara að þið beinið athyglinni að fjölskyldu konunnar sem lést og eftirlét mér andlit hennar.

Baráttu kona


mbl.is Fékk 80% af andliti annarrar konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahérna hér - tapaði einni af snekkjum sínum í pókerspili

Er snekkjan metin á 500 þúsund dali, tæpa 64 milljarða króna. 

maður verður kjaftstopp Shocking


mbl.is Tapaði snekkju í pókerspili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert að frétta frá "starfshópum" ?

Samkvæmt traustum heimildum hafa flokkarnir í reynd náð lendingu í erfiðasta ágreiningsmálinu, Evrópusambandsmálinu. Þó ekki sé formlega búið að ganga frá samkomulagi eða ræða til lykta hver málsmeðferðin verður, þá sé orðið ljóst að ESB-málið standi ekki lengur í vegi þess að takast muni að endurnýja stjórnarsamstarfið.

OK Evrópusambandsmálið er erfiðast af öllu því birja þeir þá ekki á því sem skiptir mestu máli; fjölskyldur, heimilin og fyrirtæki ?


mbl.is ESB-málið til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var stutt gaman þetta

í persónulegum ábyrgðum við Landsbankann fyrir um 58 milljarða króna. Stærstur hluti þessara ábyrgða kemur til vegna lána, sem fjárfestingarfélagið Grettir tók áður en Björgólfur eignaðist meirihluta í því félagi. „Eignir mínar voru á þeim tíma í einhverjum traustustu félögum og fyrirtækjum landsins eins og Landsbankanum, Eimskipi og Icelandic.

Ég skildi ekki þá og skil ekki enn -  þegar best lét er sagt að hann hafi átt ca  "148 þúsund milljónir" voru þetta raunverlegir peningar  ? eða eithvað annað ?


mbl.is Framtíðin undir kröfuhöfum komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband