handtekinn var með mikið magn af kókaíni í Brasilíu

Hann deilir nú fangaklefa með fimmtán öðrum föngum, en í viðtalinu sagðist hann ekki vera þannig týpa að hann gæti verið í fangelsi. Sagðist hann aldrei hafa viljað fara í ferðina, heldur hefði hann verið neyddur til þess.

Maður velur sér vini en ekki öfugt


mbl.is „Ég á eftir að deyja hérna"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er ég orðinn þreyttur á hvað fjölmiðlar eru uppteknir af að láta þessa einstaklinga hljóma eins og þeir hafi óvart gert eða verið neiddir til og séu bara fórnarlömb.

Hlusta ekki á svona rok menn geta snúið sér til lögreglu og lumað í þá uppl og fengið vernd og farið í ferðina fyrir yfirvöld þá og komið upp um batteríið ef að satt reynist 

efast um að hann hefði upplifað sig sem fórnarlamb ef að hann hefði komið þessum efnum heim og fengið 10.000 evrur fyrir og verið aðalnúmerið í undirheimum þann daginn

Nei fórnarlömbin eru næg af völdum þessara skemmdu epla hugsum um þau og látum þá dúsa þar sem þeir eru hirtir þessir sölumenn dauðans

Guðmundur (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 20:05

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Jafnvel þó maðurinn hafi brotið af sér, á hann þá skilið að eiga á hættu að vera nauðgað af samföngum sínum eða fá ekki lágmarks næringu einu sinni? Við höfum sem samfélag lagt blessun okkar yfir að glæpamenn séu fangelsaðir, en aldrei að þeir séu beinlínis pyntaðir, hvorki af samföngum né öðrum. Slík meðferð getur aldrei orðið mannbætandi frekar en t.d. dauðadómur.

Guðmundur Ásgeirsson, 6.5.2009 kl. 20:24

3 identicon

Það þarf greinilega að stórefla fræðslu um afleiðingar þess að smygla fíkniefnum erlendis - mannréttindi eru hátt skrifuð hér á landi og aðbúnaður fanga er bara nokkuð góður. Í ríkjum á borð við Brasilíu og ýmis ríki í Asíu er hann hins vegar skelfilegur - Amnesty hefur t.a.m. harðlega gagnrýnt aðbúnaðinn í Brasilískum fangelsum.

Það sem ég held að þurfi að koma fram er aukin umfjöllun um hættuna sem þetta býður upp á - ef einstaklingar brjóta af sér í erlendu ríki þá taka þeir ákveðna áhættu og hún felst m.a. í því að þeir þurfa að sæta afleiðingum brota sinna þar óháð því hversu ósanngjörn hún kann að virðast miðað við íslenskar aðstæður. Erlend ríki hafa því miður litla samúð með okkur þegar við berum okkur illa og lýsum því yfir að við viljum fá fangana heim svo þeir geti fengið betri aðhlynningu og aðbúnað - þá sjá þau fyrir sér að viðkomandi sæti ekki þeirri refsingu sem þeir leggja upp með.

 Hér þarf forvarnir því það þarf að koma í veg fyrir að Íslendingar leiðist út í þetta = íslensk stjórnvöld geta ekki alltaf reddað þeim úr vandanum enda hlusta erlendu ríkin ekki alltaf á okkur.

Kristín (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 20:34

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Í grunninn erum við öll sammála - en eins og Gumundur kemur inn á þá gleymum við fórnarlömbunum þe neyslufórnarlömbunum ef þessi "óþverri" hefði komist á markað, má þá einu skipta hvort hann fer ofaní reynda neytendur eða unglinga eða jafnvel börn "okkar"

Forvarnir í formi forvarna, jú því ekki

Jón Snæbjörnsson, 6.5.2009 kl. 21:22

5 Smámynd: TARA

Hefði hann farið til Singapore biði hans dauðadómur....þar stendur á skilti á flugvellinum að sá sem flytur eiturlyf inn í landið fær dauðadóm og ætti að vera í hverju einasta landi á jarðkringlunni.

TARA, 6.5.2009 kl. 21:33

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það er þetta að lenda óvart í afbrotum það virðist vera algengt hjá Íslendingum

Finnur Bárðarson, 6.5.2009 kl. 21:36

7 Smámynd: TARA

Alltaf svo saklausir...

TARA, 6.5.2009 kl. 21:43

8 identicon

Ég er sammála því að þessi ungi maður er eftir að eiga erfiða tíma framundan í þessu fangelsi, á mælikvarða sem við Íslendingar munum eflaust aldrei koma til að skilja. Hann á eflaust ekki skilið þær misþyrmingar sem hann á í væntum.

Engu að síður á ég erfitt með að finna til með honum. Hann er sinna eigin gæfu smiður, og fólk eins og hann er gríðarleg samfélagsógn sem ógnar öryggi barna minna. Foreldrar Ragnars geta að hluta til sjálfum sér kennt fyrir þessar aðstæður, vegna ömurlegs uppeldis. Þessi Ragnar lítur ekkert sérstaklega sakleysislega út og er eflaust sjálfur ekkert lamb að leika við. Hann er hreinlega bara kominn í aðstæður sem eru honum ofviða.

Ég finn mikið til með börnum þriðja heims sem fæðast inn í þennan heim með alnæmi, ég finn mikið til með Palestínumönnum og öðrum aröbum sem þurfa að að lifa við helvíti allt sitt líf, vegna aðgerðaleysi og umhugaleysi okkar allra, En ég get ekki fundið til með þessum unga manni sem hefur efalust verið fram að þessu, verið hluti af vandamálum okkar og okkar barna.

Ef þetta hefði verið Bandaríkjamaður, Afríkubúi eða Arabi að verki, hefðu Íslendingar ekki getað staðið meira á sama. Ragnar verður því miður ekki manneskjulegri, hreinlega fyrir það eitt að vera Íslendingur.

Sveinn Guðbjörgsson (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 22:00

9 identicon

Ég hef nákvæmlega enga samúð með þessum aumingjum. Hef bara engu við þetta að bæta.

Sigurgeir (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 01:57

10 identicon

Íslensk fangelsi eru hótel miðað við önnur lönd og efast ég um að menn sem hafi staðið að stærsta smygli á sterkum og hörðum efnum fái að vera á Facebook eins og þeir sem silgdu skútuni heim í Pólstjörnumálinu en jú þeir eru á facebook og eru nýlega dæmdir allavega einn af þeim fyrir að smygla og selja sterk efni inn á hrauninu.

Ég þekki til Unglinga og manna sem eru í harðri neyslu og sum ef ekki flest þeirra eru tilbúinn og hafa selt líkama sinn fyrir skammti af efni sem dugar þeim ekki daginn sonur minn leiddist á þessa braut en sneri blessunarlega nógu snemma frá henni.Margir þessara einstaklinga þrífast í skúmaskotum borgarinnar án næringar og húsaskjóls á meðan þeir sem ota eitrinu að börnum okkar aka um á sínum fínu eðalbílum og bjóða smástelpum í flott partý þar sem þeim er kennt að vera konur með konum og fylltar ranghugmyndum um lífið og að það sé töff að vera í pottinum þekki þennan heim og þekki krakka sem lenda í svona mönnum 

Áður en þið vorkennið svona mönnum sjáið þá fyrir ykkur foreldri að sækja 14 ára gamalt barn sitt sem vegur um 35 kg niður í bæ og skutla því upp á bráðamóttöku þetta sama barn skaust út á þorláksmessu til að hitta vin sinn og ætlaði að koma eftir 10 mín en finnst þarna 5 tímum seinna og forsagan er þessu lík og engin almennileg úræði til en svona er raunveruleikinn og enginn grætur hann heldur eru öll blogg landsins að verða samúðarblogg til handa glæpamanni sem braut lög og þarf að bera ábyrgð á því nei sorry stína þú ert í brasilíu og ekkert elsku mamma þar sem betur fer

Nei ekki ætla ég að vorkenna mönnum sem hafa verið að kenna íþrótt og þrekæfingar og þykjast vera neyddir út í þessa vitleysu ef það er heil brú í hausnum á honum þá segja menn bara nei og ef einhver er að kúga mann þá bara benda lögreglu á það það er ekki eins og ísland sé eitthvað risa mafíudæmi  sem einhver ógurlegur AlCapone stjórnar nei hann kom sér í þetta sjálfur og kemur sér út úr því sjálfur þannig er bara lífið og segist í viðtali ekki fá aðhafa samband við foreldra sína djöfuls bull en fær að hringja eða svara fréttamönnum er viss um að ef þeir hafa vitað að þetta væru fréttamenn að tala við hann þá hefði símtalinu verið slitið samstundis með hagsmuni málsins í huga og annaðhvort laug hann þarna eða fréttakonan sem talaði við hann laug að yfirvöldum þarna sem sýnir hversu alvarlega fjölmiðlar geta spillt rannsókn svona mála nei ekki vorkenni ég svona fólki AMEN

Guðmundur (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 11:53

11 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Takk fyrir þessa áminningu Guðmundur - vil ekki nokkrum manni illt en ég ver börnin mín sem og landið mitt allt með kjafti og klóm gegn svona sölumönnum, burðardýrum eða hvað það kallast svona pakk

Jón Snæbjörnsson, 7.5.2009 kl. 12:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband