Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Olían lekur upp úr Drekasvæðinu

Gervihnattamyndir benda til þess að olía leki af hafsbotni og til yfirborðs á bletti sunnarlega á Drekasvæðinu.

Sparar tíma og pening, ekkert smá flott - al-sjáfvirk olíustöð á hafi úti

http://visir.is/article/20090331/FRETTIR01/764889433

Eins-gott að Kolbrún kæri ekki fyrir meingun


svo keypti Gaumur einnig skíðasetur í Frakklandi

Félagið Gaumur, sem er í eigu Jón Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, keypti fjórar verðmætar fasteignir Baugs Group síðastliðið haust.

http://visir.is/article/20090331/VIDSKIPTI06/748098329

Verðmæti fasteignanna sem um ræðir eru taldar hlaupa á hundruðum milljóna.

Í viðtali við fréttastofu RÚV sagðist Jón Ásgeir Jóhannesson telja viðkskiptin eðlileg.

Reikna með að "setrið" sé ekki langt frá brekkunni sem Hannes Smárason keypti sér fyrir ekki svo löngu.

Hann er þá ekki einn að renna sér sá ræfill


Fróðleg vitneskja

Jón Ásgeir Jóhannesson, stærsti eigandi Baugs, er aðaleigandi 365 miðla sem rekur meðal annars visir.is.


Vegarlagning kann að hafa áhrif á erni

Þá kunna ernir að verða fyrir neikvæðum áhrifum vegna fyrirhugaðra framkvæmda og framkvæmdin kann að hafa verulega neikvæð áhrif á landslagsásýnd svæðisins,“ segir m.a. í niðurstöðu Skipulagsstofnunar.

Um er að ræða 24 km langan kafla Vestfjarðavegar og er gert ráð fyrir byggingu brúa yfir Mjóafjörð og Kjálkafjörð. Meginhluta leiðarinnar á vegurinn að liggja í núverandi vegstæði nema fyrir botna fyrrnefndra fjarða. Stytting leiðarinnar verður 5-9 km eftir því hvar Mjóifjörður verður þveraður.

Dýrin hafa svosem flúið mannskepnuna áður án teljandi vandræða né vanhalda


mbl.is Vegarlagning kann að hafa áhrif á erni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðmenn sem fyrr andvígir inngöngu í Evrópusambandið

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar í Noregi eru 55% Norðmanna andvíg inngöngu í Evrópusambandið en einungis 33% því fylgjandi. The Wall Street Journal hefur eftir Heming Olausen, formanni Nei-hreyfingarinnar í Noregi, að hvorki hinir alþjóðlegu efnahagserfiðleikar né meintur áhugi Íslendinga á inngöngu í sambandið virðast hafa aukið fylgi þarlendra Evrópusambandssinna.

Held við ættum aðeins að staldra við og kíkja betur í kringum okkur áður en lengra er haldið - við önum allt of oft um ráð fram - hvernig væri að sýna smá þolimæði og bíða eftir að Norðmenn munstri sig inn


Fjármálakreppa tengd heilastarfsemi

Ráð sérfræðinga rugla heilann og valda því að menn missa dómgreindina. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem geta mögulega útskýrt hvers vegna enginn brást við viðvörunum um yfirvofandi efnahagshrun.

Fá sérfræðingar ekki borgað fyrir rannsókn sem þessa


mbl.is Fjármálakreppa tengd heilastarfsemi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ætlar að viðhalda vörumerki SPRON

hið besta mál


mbl.is MP banki eignast SPRON
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt varðskip LHG

Hélt einhvernveginn að smíði skipsins hafi verið sett á "hold" gott ef það gengur svona vel og við sjáum fyrir endan á smíði sem og rekstrarumhverfi skipsins sé tryggð og muni ekki skerða annað öryggi á lofti, láði eða legi

Ef norðmenn geta nýtt sér varðskipið þá er það bara hið besta mál - svo má kanski koma skipinu undir North Atlantic Environment Receasch and Rescue samtökin með íslenskri áhöfn að sjálfsögðu ?


mbl.is Nýtt varðskip LHG gæti farið í útleigu til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launahækkun hjá Frostfiski

 Framkvæmdastjórn Frostfisks ehf. hefur ákveðið að veita starfsfólki fyrirtækisins umsamda 3,5% launahækkun frá og með 1. mars sl. þrátt fyrir samkomulag SA og ASÍ um hið gagnstæða.

Að hluta til er þetta strafsfólk í vinnu sem fáir íslendingar vilja taka að sér í dag - oft akkorðsvinna þar sem ekkert er gefið eftir - ef þú ert veikur þá færðu ekki akkorðið að fullu eða kanski ekki -

 er þetta ekki jákvætt  hjá þeim fyrirtækjum sem hafa bolmagn til þess að styðja við sitt fólk

ef ÞÚ vilt hærri laun þá má alltaf sækja um í fiski


mbl.is Launahækkun hjá Frostfiski
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki allir svo heppnir að vera hjá hinu opinbera

og getað sett tapið út til skattgreiðenda - Ögmundur hefur heldur betur komið ár sinni vel fyrir borð - er þetta ekki úrrelt kerfi að LSR sé með ríkisábyrgð og tapinu ýtt á skattgreiðendur ? og má þá einu skipta hversu lélegir stjórnendur sjóðsins eru eða sukkið er út úr ruglað


mbl.is Staða lífeyrissjóða afhjúpuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignir LSR lækkuðu um 30 milljarða á síðasta ári - með ríkisábyrgð !!!!

Eignir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins lækkuðu um 30 milljarða á síðasta ári, samkvæmt uppgjöri sjóðsins sem birt var í dag.


Sjóðurinn er með ríkisábyrgð og eru réttindi sjóðfélaga hans því varin gegn tapi, sem lendir þess í stað á skattgreiðendum.


 

Hvað réttlætir svona mismunun - ætti þessi sjóður ekki að lúta sömu lögmálum og aðrir sambærilegir sjóðir - hér hefur Ögmunudur nú ráðherra heldur betur sukkað á minn og þinn kostnað

http://visir.is/article/20090329/VIDSKIPTI06/210613124/-1


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband