Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Nýtt varðskip í smíðum - 5 milljarðar á NÚVIRÐI

 

Rétt rúmir 6 milljarðar - góðir vinir Færeyingar - höfðingjar heim að sækja,  á sama tíma erum við að byggja varðskip fyrir 5 milljarða og þjóðin á hausnum - ekki misskilja mig ég er mjög meðvitaður um störf LHG og þörfin er brín en  ? - það gæti alveg eins komið til fækkunar hjá LHG eins og öðrum fyrirtækjum í eigu hins opinbera því spyr ég?,  má fresta þessari smíði? - selja skrokkinn?- eða bara að halda áfram eins við höfum gert með bundið fyrir augu undanfarin ár ?

Kanski illa séð að velta svona hlutum fram


Listaverkasafn bankanna verði í eigu þjóðarinnar

Í frumvarpi þeirra Kristins H. Gunnarssonar, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur og Bjarna Harðarsonar er meðal annars vitnað til orða ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins, Guðmundar Árnasonar, í viðtali við Morgunblaðið fyrr í mánuðinum. Þar sagði Guðmundur að listaverkasöfnin væru hluti af menningararfi okkar Íslendinga.

Talið er að verkin séu um fjögur þúsund. Um 1.700 verk voru í eigu Landsbankans, 1200 í safni Kaupþings og tæplega 1.100 í eigu Glitnis.

 

þetta er nú bara sjálfsagt að gera


Bretarnir koma ekki.............

einhvernvegin held ég að Utanríkisráðuneytið sem og Forsætisráðuneyti ættu að sjá sóma sinn í að  taka af allan vafa og afþakka það að bretar séu sendir hingað til að verja Íslendinga - kanski seinna en ekki núna - bara hafa þetta alveg skírt
mbl.is Móðgun ef Bretarnir koma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgólfur Guðmundsson

mjög merkileg lesning í mbl í dag - vona að Björgólfur standi beinn eftir sem og við hin öll

Mikið var að einhver viðurkenni vanmátt sinn.....

svo mikið sammála Valtý - losnum þá væntanlega við alla vinagreiða og bitlinga hingað og þangað eða þar til niðurstaða liggur fyrir, þó fyrr hefði verið - gott mál !!

 

Birgir Ármannsson formaður nefndarinnar segir að hafa beri í huga að hér sé einungis um frumathugun að ræða sem  beinist að brotum á refsiákvæðum íslenskra laga. Dómsmálaráðherra geri ráð fyrir því að stofnað verði sérstakt rannsóknarembætti um málið ef upp komi grunur um saknæmt athæfi.

 

Hvað er að þessum Birgi Ármannssyni - vill hann ekki fá niðurstöðu eða bara bölvaður bírokrati


mbl.is Vill erlenda sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert með hryðjuverkalög að gera........

Er þessi maður kjáni ?

hvað er þessi "maður" að blanda Breskum hryðjuverkalögum inn í Íslenskt mál - því í anskotanum þurfa svona margir Sjálstæðismenn að vera svona lítið fyrir alþýðuna gefið, við eigum fyrst og fremst að verja ÍSLENSKAR fjölskyldur og heimili þeirra

 

ÉG KALLA EFTIR  GÖMLU GILDUM SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS  ?

 

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/23/vill_ekki_frysta_eignir_audmanna/


mbl.is Vill ekki frysta eignir auðmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fékk næstum nóg af fiski á yngri árum

verður ekki að ná samkomulagi við bretana, varla vitrænt í svona grafalvarlegu máli að rétta upp fingurinn á þá

sumir tala digurmannlega og segjast geta japlað á fiskroði næstu árinn, er ekki viss um að fólk endist lengi þannig, hér á yngri árum fékk ég næstum nóg af þverskornu ýsulæri, hvað þá ef það hefði verið roð ? nei ansk

 

 

 


Góð dæmisaga í kreppunni ?

A boat docked in a tiny Mexican village. An American tourist complimented the Mexican fisherman on the quality of his fish and asked how long it took him to catch them. "Not very long," answered the Mexican. "But then, why didn't you stay out longer and catch more?" asked the American. The Mexican explained that his small catch was sufficient to meet his needs and those of his family. The American asked, "But what do you do with the rest of your time?" "I sleep late, fish a little, play with my children, and take a siesta with my wife. In the evenings, I go into the village to see my friends, have a few drinks, play the guitar, and sing a few songs. I have a full life." The American interrupted, "I have an MBA from Harvard and I can help you! You should start by fishing longer every day. You can then sell the extra fish you catch. With the extra revenue, you can buy a bigger boat." "And after that?" asked the Mexican. "With the extra money the larger boat will bring, you can buy a second one and a third one and so on until you have an entire fleet of trawlers. Instead of selling your fish to a middle man, you can then negotiate directly with the processing plants and maybe even open your own plant. You can then leave this little village and move to Mexico City, Los Angeles, or even New York City! From there you can direct your huge new enterprise." "How long would that take?" asked the Mexican. "Twenty, perhaps twenty-five years," replied the American. "And after that?" "Afterwards? Well my Friend, That's when it gets really interesting," answered the American, laughing. "When your business gets really big, you can start selling stocks and make millions!" "Millions? Really? And after that?" said the Mexican. "After that you'll be able to retire, live in a tiny village near the coast, sleep late, play with your children, catch a few fish, take a siesta with your wife and spend your evenings drinking and enjoying your friends." And the moral is: Know where you're going in life... you may already be there. 

Ekki tímabært að kjósa núna

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/22/ekki_rett_ad_boda_til_kosninga/

 væri of mikið í fang fengið eins og staðan er í dag

 

eigum við ekki að sjá hvað setur ?


Bankar frysti myntkörfulán ?

Ríkisstjórnin hefur beint þeim tilmælum til hinna nýju ríkisbanka að þeir frysti afborganir og vexti af myntkörfulánum tímabundið, sé þess óskað, þar til eðlileg virkni kemst á gjaldeyrismarkaðinn. Ennfremur að ekki verði sérstakrar greiðslu krafist af viðskiptavinum vegna þessa. 

Mælst er til að bankarnir krefji viðskiptavini ekki um frekari tryggingar né láti nýtt greiðslumat fara fram vegna tímabundinnar frystingar á myntkörfulánum.

Þá vekur ráðuneytið athygli viðskiptavina nýju bankanna á því að þeir geti óskað eftir frystingu á myntkörfulánum, óháð efnahag sínum.

Í tilmælunum var því einnig beint til ríkisbankanna að þeir bjóði viðskiptavinum sínum í greiðsluerfiðleikum upp á sams konar úrræði og Íbúðalánasjóður hefur gert. Er þess vænst að önnur fjármálafyrirtæki veiti sömu fyrirgreiðslu.

Fjármálaráðherra mun á næstu dögum leggja fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um stimpilgjöld, þar sem lagt er til að skjöl sem gefin eru út á tímabilinu frá gildistöku laganna til 1. janúar 2009 og fela í sér breytingar á skilmálum á fasteignaveðskuldabréfum einstaklinga verði undanþegin greiðslu stimpilgjalda.

 

Geta þessi menn ekki talað tæpitungulaust - er það ekki það sem við þurfum ekki einhver tilmæli sem ekki er farið eftir nema af geðþótta - svona taka af skarið þið sem viljið ráða !!


mbl.is Bankar frysti myntkörfulán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband