Færsluflokkur: Menning og listir

Ekki hef ég áhuga á svona panorama "fjárfestingu"

Það er eins gott að vandað sé vel til verka - andi 2007 hefur verið og er mörgum manninum ofviða

Tölvumynd af listaverkinu á þaki ARoS.

okkur að kostnaðarlausu erum við svo heppin hér á landi að regnboginn birtist okkur við ákveðin birtu og verðurskilyrði


mbl.is Regnbogi Ólafs veldur vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg Jól

 

Ég sendi bloggvinum mínum óskir um Gleðileg Jól sem og öllum öðrum landsmönnum

 


Við heppinn eða hitt þó heldur

það sem grafið er upp úr jörðinni eftir tugi eða hundruði ára geymist þar lengur án frekari skemmda, fornleifarannsóknir sem þessar ættu að bíða betri tíma, hlúum frekar að því sem upp stendur og nýtilegt er og þá sérstaklega á tímum sem þessum


mbl.is Veggur frá landnámsöld við Tjarnarbíó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framkvæmdir við tónlistarhúsið líklega að stöðvast

Allt útlit er fyrir að framkvæmdir við tónlistarhúsið við Reykjavíkurhöfn stöðvist í næstu viku eftir að Portus gafst upp á verkefninu í dag og sagði öllum starfsfólki sínu upp. Félagið hefur verið í viðræðum við ríki og borg um yfirtöku verkefnisins sem kallar á útgjöld upp á níu til tíu milljarða króna.

Portus gerði samning við Austurhöfn um að ríkið greiddi 800 milljónir króna til Tónlistarhússins á ári í 35 ár eftir að húsið er risið, til að standa undir rekstri þess og starfsemi, en eftir það átti portus að eignast húsið. Helgi S. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Portus, segir að kostnaður við byggingu hússins sé um 400 til 700 milljónir á mánuði, en Íslenskir aðalverktakar eru helstu verktakar við bygginguna. Að sögn Helga á Portus ekki fyrir greiðslum til ÍAV nú um mánaðarmótin sem setur störf þeirra sem vinna við bygginguna í mikla óvissu.

 

Þar fór sá draumur fárra en ötulla skrifinna - skildi í raun aldrei þessa risaframkvæmd, við í þessu litla þjóðfélagi að byggja svona stórt mannvirki fyrir svo mikla peninga - hvað átti að sanna - eða hvað er verið að reyna að sanna með svona fáránlegum framkvæmdum sem í upphafi mátti vera fyrirséð að væri algjörlega út úr öllu korti - hver á að borga þetta ?

 Eins og ljótt "kýli"  í hafnarkjaftinum við Reykjavíkurhöfn og  mynnismerki um óráðsíu okkar fyrir komandi kynslóðir og hlátursefni fyrir ferðamen næstu misserin

 

 

 


GULLBORG VE 38

velti fyrir mér hvort Vestmannaeyjingar hafi virkilega ekki áhuga á að "reyna" að fá þennan bát til eyja - í dag liggur þessi bátur í "fjörunni" við Mýragötu, 101 Reykjavik -  hafa kanski Eyjamenn gleymt sögunni um Binna í Gröf ?

Ég spyr líka - eiga Reykvíkingar ekki neinn merkilegan bát annan en Aðalbjörgina sem saga er að segja frá en er staðsettur á Árbæjarsafni í dag - verður hann kanski fluttur á Sjómynjasafnið ?

http://www.123.is/skipamyndir/blog/record/61583/

ég er félagi í verndun VS ÓÐINNS á vegum LHG - og er það gott enda það merkilega "skip" komið í örugga höfn


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband