Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2019

þar fór prikið Páll ... stutt gaman það ;)

Svona getur farið ef brugðist er of hratt við !

Páll brást fljótt við – en það er vandamál með ekkifréttir og

slúður á netinu ! - og þingmenn eru jú alltaf í símanum að snapa upp skúbb ;)




mbl.is „Þetta er allt meira eða minna rangt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

prik fyrir Pál .... ?

Nú er Páll Magnússon að prika sig ! - veit að það fer illa í Eyjamenn að taka frá þeim Sýslumanninn - nóg er að lama alla heilbrigðisþjónustu með óstarfhæfu sjúkrahúsi þar sem ekki er hægt að fæða börn !

Það ætti að vera skilningur á að samgöngur eru ekki boðlegar -  og ef Dómsmálaráðherra hefur ekki kynnt þennan flutning með góðum fyrirvara - er von að fjandinn sé laus !  (og hann nær endurkjöri ! )


mbl.is Páll óánægður með dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

mál að linni ..... !

það er komið nóg af þessu einelti frá allskonar “sérfræðingum” og á Alþingi - menn eru kosnir þarna sem fulltrúar fólks með ólíkar skoðanir og stefnur - og eiga að standa fyrir þær. Að ætla ráða hvaða skoðanir aðrir hafa - er yfirgangur ! .  

Kjósendur í þeirra kjördæmi verða að fella þessa menn, en ekki múgur í mótmælastöðu – eða sessunautar á Alþingi!




mbl.is Skoðanir Klausturþingmanna ekki í lagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

er þetta flétta .....

til að hjálpa Guðna að halda formennsku ! - Hún fær atkvæði

sem ella myndu falla á Geir ?

En gaman væri að fá Ragnheiði í formennsku - það yrði fersk nýung að fá konu til að mæta á alþjóðafundi fyrir Ísland !




mbl.is Ragnheiður íhugar formannsframboð hjá KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei látið klukkuna í fríði ....

Frekar að tuða í klukkunni, víni í kjörbúðir, kjötskatt - heldur en að taka á heilbrigðis- og vegamalum !

 

Nýja stéttin sem vill fá allt - hinir eiga að vinna og borga !


mbl.is Breyting á klukkunni í samráðsgátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

því setur ekki alþingi lög á þessa starfsemi ....

Stjórn Jóhönnu sýndi engin viðbrögð - og allir fjármálaráðherrar síðan ekki heldur.

Engin Pírati eða Samf. eða VG hafa sýnt málinu áhuga - Frjálsa samkeppni má ekki hindra ef einhver getur fitnað á kostnað þeirra aumustu!


mbl.is Erfiðara að ná til smálánafyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kæra til ráðuneytis ....

Og aðallega að fréttamiðlar ætla að taka með silkihönskum á honum !

Að það skuli ekki vera krafa að Dagur komi ekki nálægt á rannsókn á sjálfum sér !

Að það þurfi kanski að kæra til ráðuneytis til að fá eðlilega úrlausn !

 

Meirihluti fer fram með málamynda - athugun og

engin fylgir því eftir - og þó ! – DV spyr um hvað varð af 70 milljónum !

Kanski Vigdís blási til óveðurs !

 




mbl.is Dagur ætlar ekki að víkja úr hópnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

geri þá kröfu til beggja fylkinga .....

Bjarni teflir fram staðreindum - sem áróðursdeild verkalýðsins hlustar ekki á !

Ástæða er að kalla af þunga eftir hverjir vinna fyrir lágmarkslaunum - það eru engin rök að hægt sé að hafa hærri laun með því að vinna 70 stunda vinnuviku !

Niðurstaðan verður upphlaup á vinnumarkaði, sem endar með gengisfellingu - eftir að helstu atvinnuvegum þjóðarinnar verður rústað - og á eftir kennir hver öðrum um !

Afstaða lukkuriddara stéttarfélaga er hörmulega gamaldags ! -  rauðir fánar og öreigaslagorð hefur lítið að gera hjá ríkustu þjóð Evrópu ! -

Það hlýtur að mega gera þá kröfu til beggja fylkinga að lægstu laun verði lagfærð án þess að brenna undan sér undirstöðu atvinnugreinarnar!




mbl.is Rifist um mismunandi staðreyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

margar rósir á þingi .....

Hann var formaður þingflokks Samfylkingar - bauð sig fram til formanns flokksins - Logi hlýtur að verja Helga, með að nú sé hann ekki á þingi lengur ! (hugsanlega einhverjar kærur í gangi gegn Helga)

Það eru margar rósir á þingi ! - Von að Sigmundur Davíð segi marga í glerhúsi !

 

https://stundin.is/grein/8112/helgi-hjorvar-keypti-ibud-i-midbaenum-um-13-af-markadsverdi/

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband