Bloggfærslur mánaðarins, maí 2018

samþykkt umræðulaust ?

Þetta er Stóri bróðir sem allt vill vita!

 

Umhugsunarvert að skipa á eftirlitsmann um persónuvernd í öll sveitafélög samkv. Reglum EB -  sama þó sveitafélagið sé 50 manns!

Þetta á að samþykkja nánast umræðulaust - kostnaður sem getur sligað lítið sveitarfélag!

 


mbl.is Kjörstjórnir hunsa Hagstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

eitt mesta böl ....

Kjararáð verður lagt niður - en núverandi hækkanir látnar standa! 

Engin leiðrétting þar -  en svo hækka þeir í launum eins og korktappar !

Fljóta alltaf efst í launasúpu þjóðarinnar! -  með sömu % hækkun og aðrir fá!




mbl.is Leggja til að kjararáð verði lagt niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þá er Sjálfstæðisflokkurinn “úti” !

Þá er D úti i borginni !

 

Það má þá þakka það Sjálfstæðisflokknum fyrir dapra baráttu og klíkuskap ráðamanna þar!

Það voru öll spil á hendi Sjálfstæðismanna:

 

Skuldastaða borgarinnar!

Húsnæðismál í glærum!

Gatnaframkvæmdir í undarlegum forgangi!

Skítug borg!

Engir fulltrúar úthverfa borgarinnar!

 

Í staðinn var farin sú leið að dásama Eyþór!

Og stilla upp lista af algerlega nýju fólki sem svo var ekki  kynnt frekar – svo ekki skyggði á foringjann...


fjarstæða borgarlínu ....

Borgarlína verður ekki gerð án aðkomu og með peningum stjórnvalda!

Það er staðreynd að Dagur er að lofa fjármunum ríkisins!

Ekki múkk heyrist um þessa staðreynd! – og enn og aftur-

hvernig er þessum málum háttað í sambærilegum borgum með undir 250.000 íbúa?

Hvað tekur konu langan tíma að keyra barnavagn – eða leiða 4. ára barn á Stoppistöð Borgarlínu?

Byggja ódýrt húsnæði? – er verið að tala um lægri lóðargjöld? – eða aðra Höfðaborg?

Nýtt “slömm” – og hvað skyldi sú byggð vera nálægt Borgarlínu?

 


mbl.is Borgarbúar munu kjósa um borgarlínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það kemur að skuldadögum!

Eg er sammála Katrínu -  launin eru óhófleg!

Nema að aðrir starfsmenn hafi fengið álíka hlutfallshækkun í krónum talið!

Það er löngu tímabært að skoða hvað bæjarstjórar taka í laun jafnvel í smæstu krummaskuðum!


mbl.is Segir laun Ármanns óhófleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Arion banki eitrað peð?

Arion vill að Líeyrissjóðir auki hlut sinn í bankanum!

Arion banki er að stórum hluta í eigu erlendra vogunarsjóða - sem líklega hafa ekki langtíma plön með bankann - en vilja sem mestan arð - og sem fyrst!

Ásamt Lífeyrissjóðum - sem Arion banki veitir fjármagnslega ráðgjöf!

Lögðu hart að þeim að fjárfesta í Silicon í Helguvík - sem Arion fjármagnaði að stórum hluta - eins og Arion ráðlagði Frjálsa líftryggingasjóðnum að fjárfesta allt of stórna hluta þeirra í Silicon.

Ríkið átti svo innan við 15% hlut -  sem Bjarni vill að ríkið losi sig við svo 1 banki verði þó utan afskipta ríkisins -  og veit ríkisbönkum rekstrar aðhald!

Eftir stendur að Fjármálaeftirlitið hefur ekki ennþá fengið öruggar upplýsingar um hverjir eigi Vogunarsjóðina!

 

 

 


mbl.is „Mikilvæg vegferð fyrir Arion og kerfið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

bara smámál eða smálán ....

Oftar og oftar eru lífeyrissjóðir kallaðir til! – þegar vafasamar fjárfestingar eru !

Álver í Helguvík – Hótel á Hörpureit, sem átti að vera erlend fjárfesting – en endar hjá lífeyrissjóðum!

Oftar og oftar eru lífeyrissjóðir kallaðir til! – þegar vafasamar fjárfestingar eru !

 

 


mbl.is Icelandair setur hótelin á sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kastljós nú í kvöld > United Silicon

allt öðrum að kenna - við trúðum öðrum en hugsuðum ekki sjálfar! - Þá hefðu allir tapað og farið í gjaldþrot!

Sem verksmiðjan svo fór - en það var ekki þeim að kenna! -bara hinum!

 

😳


bara aulalegt ...

Þetta er nú einhver histería. Lögreglufólk er í búningi og hjúkrunarfólk og flugfreyjur t.d. að gera það að máli að stelpur vilji vera í gallabuxum, en ekki í einkennisbúningi, sem er pils!

Er bara miskilin kvenremba! – og að gera þetta að stórmáli er bara aulalegt!




mbl.is Segir kjólamál storm í vatnsglasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fyndni þeirra sigurvissu......

Þeir kalla það „fyndni“ í núverandi - og því miður komandi - borgarstjórn!

Svona er fyndni þeirra sigurvissu! getur kostað þau atkvæði - betra að hafa örlög Pírata í huga, þegar þeir mynduðu ríkisstjórn fyrir kosningar um árið!

 


mbl.is Spurði ítrekað hvort borgarfulltrúi væri með Alzheimer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband