Færsluflokkur: Lífstíll
Greinar..............
Sunnudagur, 12. október 2008
það er lokaður aðgangur að þessu - skora á MBL að opna aðgang fyrir allann almenning í landinu
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/10/12/ragnar_rikid_stendur_ekki_undir_skuldbindingum/
Ragnar: Ríkið stendur ekki undir skuldbindingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enn eitt plottið ?
Laugardagur, 11. október 2008
Framtíð Baugs Group ræðst um helgina. Sir Philip Green hefur boðist til að kaupa skuldir félagsins við íslenska banka á ríflegum afslætti af íslenska ríkinu. Ef því boði verður ekki tekið er talið líklegt að breska ríkisstjórnin muni þjóðnýta öll fyrirtæki í eigu Baugs í Bretlandi
Er þetta hægt aftur og aftur ?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ansk sjálfur ætlum við ekki að ná þessu.....
Föstudagur, 10. október 2008
erum við að tapa þessum leik - hér koma engar eða litlar fréttir sem kanski segir bara eitt, ef við sjáum fram á við ætlum ekki að ná að lenda þessu sjálf þá þurfum við að fá aðstoð, mér er næstum nokk sama hvaðan hún kemur bara að aðstoðin sé lögleg og ekki illa fengin
því fyrr því betra
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
BAUHAUS - hættir við að opna í desember........
Fimmtudagur, 9. október 2008
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góð áminning þessa dagana
Fimmtudagur, 9. október 2008
Gulli og perlum að safna sér,
sumir endalaust reyna,
vita ekki að vináttan er,
verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
Höf: Hjálmar Freysteinsson, lækni r og hagyrðing ur á Akureyri.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ísland hér áður..................
Fimmtudagur, 9. október 2008
Er þetta merkileg lesning........Ísland að sökkva eða.......
rakst á þetta hér.............
Þessa færslu ætla ég að helga skemmtilegustu stundunum frá tíma útrásarinnar. Ég ætla að biðja ykkur að hjálpa mér að rifja þær upp.
- Hannes Smárason og Jón Ásgeir í Gumball kappakstrinum.
- Tom Jones að syngja fyrir veislu útrásarvíkinga um áramót í London.
- Elton John í afmæli Ólafs Ólafssonar.
- Existabræður á þyrlunni að kaupa pylsu.
- Þegar Fréttablaðið kaus Hannes Smárason sem markaðsmann ársins.
- 50cent í partíi Björgólfs yngri í Karíbahafinu.
- Tónleikar Stuðmanna í Albert Hall.
- Galaveisla Glitnis í Laugardalshöll.
- Þegar forseti Íslands veitti Baugi útflutningsverðlaun forsetans. Jafnvel þótt Baugur flytji ekkert út, nema kannski fjármagn.
- Kynningarfundurinn í London þegar næstum því var búið að selja orkulindirnar í hendurnar á Hannesi, Jóni Ásgeiri og Bjarna Ármannssyni.
- Partíin á Three Vikings snekkjunni.
- Uppboðið þar sem selt var ómálað verk eftir Hallgrím Helgason fyrir 20 milljónir.
- Laugardagarnir í stúkum íslensku bankanna og fjármálafyrirtækjanna á enskum knattspyrnuvöllum.
- Opnun 4 manna skrifstofu FL Group í Kaupmannahöfn með 300 manna veislu í hofi og tveimur forsetum viðstöddum (engin stæði laus fyrir einkaflugvélar á flugvellinum)
- Verðlaun Pútíns tilhanda Þorsteini Inga fyrir fyrstu almennings-vetnis-afgreiðslustöðina sem aðeins 3 strætisvagnar notuðu
- Heilsíðu-atvinnu-auglýsingar Íslensku bankana í Dagens Industri þar sem helstu störfin sem fylla þurfti voru svokallaði Event-Managers
Þegar forseti Íslands húkkaði sér far með einkaþotu útrásarvíkinganna til London.
- Kvöldverðaboð með innherjasvikaranum Mörtu Stewart, ásamt B.Thor, Jóni Ásgeiri og dömunum þeirra.
- Ræða forsetans við opnun skrifstofu Avion Group í London.
Einhver þessara lúða gaf kellingunni sinni jakka sem kostaði milljón!
Víkingadóttirin sem fékk íbúð í 16ára afmælisgjöf og nýjan Range Rover þegar hún varð 17ára og fékk bílprófið.
ForsetI Íslands í lúxus einkaheimsókn hjá oligarkanum, mafíósanum og kynbróður kærustu forstans, Roman Abramotich.
Þannig var einn FL group guttinnn (töskuberi Jóns Ásgeirs) að panta sér nýjan Range Rover nú um daginn. Það var víst fyrsti Range Roverinn sem selst svo mánuðum skipti.
það vita margir hverjir voru þarna í siglandi hóruhúsinu en íslensk fjölmiðlun er svo kurteis og bljúg að þeir segja aldrei frá því. Líka vegna þess að þarna voru einnig alþingismenn og það á vinstri vængnum.
Þegar konunglegt brúðkaup prinsessunnar af Hagkaup og prinsins af Bónus fór fram í fríkirkjunni. Meðal veislufanga voru 60kg af japönsku nautakjöti sem kostaði 16 þúsund krónur kílóið (960þús krónur af _kjöti_).
Hannes Smárason keypti sér dýrustu gerð af Steinway flygli. Nokkrir náungar voru staddir í boði hjá honum þegar hann var á sínu mesta flugi. Hannes stærði sig af flyglinum en lét þess getið að það kynni nú enginn á heimilinu að spila á gripinn. Síðan bætti því við að eitthvað tónlistafélag á Vestfjörðum væri búið að vera í fimmtán ár að safna fyrir slíku hjóðfæri og ætti ekki fyrir því enn. Svo rak hann upp hrossahlátur til að leggja áherslu á hvað þetta tónlistalið væri miklir lúðar en hann flottur!
Á sama tíma var merkur maður sem sagði þetta!!!!,,Hitt er einnig til að ný orð fái nánast á sig goðsagnakennda
helgimynd, eins og orðið útrás sem enginn þorir að vera á móti svo
hann verði ekki sakaður um að vera úr takti, hafi ekki framtíðarsýn
eins og það heitir nú, og þekki ekki sinn vitjunartíma.Hin hliðin á útrásinni er þó sú og framhjá henni
verður ekki horft, að Ísland er að verða óþægilega skuldsett erlendis.Útrásarorðið er slíkt töframerki að jafnvel þegar menn virðast gera
innrás í opinber fyrirtæki almennings, þá er innrásin kölluð útrás.- Davíð Oddsson 06.11.2007
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú á að ýta útlendingunum út ?
Þriðjudagur, 7. október 2008
Snæfell hefur sagt upp samningum sínum við erlenda leikmenn og þjálfara körfuknattleiksliðs félagsins samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu á stykkishólmspóstinum í gærkvöldi.
tjórn Snæfells í meistaraflokki karla í körfuknattleik
sendir frá sér eftirfarandi yfirlýsingu;
Í ljósi breyttra efnahagsaðstæðna í þjóðfélaginu hefur verið tekin sú ákvörðun að segja upp öllum samningum við erlenda leikmenn og þjálfara liðs Snæfells. Þetta er fyrst og fremst gert til að hægt sé að reka deildina í vetur. Því miður hafa aðstæður breyst það mikið að sú fjárhagsáætlun sem lagt var af stað með fyrir þetta tímabil er algjörlega brostin. Því er það mat stjórnar að þetta sé eina raunhæfa lausnin í stöðunni. Snæfell mun tefla fram sterku liði skipuðu íslenskum leikmönnum og ætlar sér stóra hluti í deildinni í vetur.
Vonandi jákvætt hvað þeir eru snöggir að átta sig Snæfellsmenn - kanski ekki eftir neinu að bíða - það má kalla þá inn á aftur þegar ástand lagast ?
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hundruð Íslendinga hafa streymt inn í nýja verslunarmiðstöð
Laugardagur, 4. október 2008
Hundruð manna hafa streymt í nýjustu verslunarmiðstöð landsins, Korputorg, í morgun. Fréttastofa ræddi við verslunarstjóra húsgagnaverslunarinnar ILVA, Róbert Valtýsson, nú laust fyrir fréttir og hann sagði viðtökurnar framar vonum. Menn hafi ekki búist við miklu í þessu árferði.
Verslunin opnaði klukkan átta í morgun og þá strax var reytingur af fólki sem beið fyrir utan ILVA og fleiri verslanir á Korputorgi. Á fyrsta klukkutímanum höfðu fimm hundruð manns farið í gegnum ILVA og tvö hundruð gjafabréf til viðskiptavina gufuðu upp á korteri. Róbert segir rífandi gang í sölunni og er hæstánægður.
Nú er maður kjaftstopp ?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Lífeyristjóðina heim í hlað.........
Laugardagur, 4. október 2008
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar skildi forset...........vera núna
Föstudagur, 3. október 2008
svo oft áður hefur maðurinn ruðst fram á svið hérlendis sem erlendis í henni útrás þegar hún var og hét - en hvar er maðurinn núna þegar margir þurfa á hugrekki að halda, því heyrist ekki neitt ? getur hann td sagt að bankarnir muni standa þessa ágjöf af sér eða veit hann ekki eða treystir hann sér ekki til þess ?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)