Færsluflokkur: Lífstíll
Listaverkasafn bankanna verði í eigu þjóðarinnar
Þriðjudagur, 28. október 2008
Í frumvarpi þeirra Kristins H. Gunnarssonar, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur og Bjarna Harðarsonar er meðal annars vitnað til orða ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins, Guðmundar Árnasonar, í viðtali við Morgunblaðið fyrr í mánuðinum. Þar sagði Guðmundur að listaverkasöfnin væru hluti af menningararfi okkar Íslendinga.
Talið er að verkin séu um fjögur þúsund. Um 1.700 verk voru í eigu Landsbankans, 1200 í safni Kaupþings og tæplega 1.100 í eigu Glitnis.
þetta er nú bara sjálfsagt að gera
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bretarnir koma ekki.............
Sunnudagur, 26. október 2008
![]() |
Móðgun ef Bretarnir koma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Góð dæmisaga í kreppunni ?
Fimmtudagur, 23. október 2008
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bara sjáfsagt mál
Þriðjudagur, 21. október 2008
![]() |
1.950 þúsund á mánuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Klárir í bátana ?
Þriðjudagur, 21. október 2008
![]() |
Nýr bankastjóri Nýja Kaupþings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
GeislaBaugur
Þriðjudagur, 21. október 2008
OKUR GEISLABAUGSFEÐGA ? HEIMILDARMAÐUR THE TIMES TEKUR UNDIR OG STAÐFESTIR FULLYRÐINGAR GYLFA GYLFASONAR Á OKRI GEISLABAUGSVERSLANA Á VARNARLAUSUM ALMENNINGI Á ÍSLANDI
Sjá lokaorð tilvísaðrar fréttar á mbl.is : "Heimildamaður Times úr hópi bankamanna sagði að smásöluverslanir Baugs á Íslandi séu mjólkurkýr fyrirtækisins (cash cow)."
Sjá pistil Gylfa Gylfasonar :"11.3.2008 | 03:36
Jóhannes í Bónus er glæpamaður
Sem kaupmaður hef ég alltaf séð Jóhannes í Bónus fyrir mér sem glæpamann og lýðskrumara af verstu tegund. Vinsældir hans eru mér ráðgáta en kaupmannsbrögðin voru einföld en áhrifarík með fulltingi fjölmiðla sem kallinn spilaði á eins og fiðlu.
Eftir að Bónusdrengirnir eignuðust Hagkaup og 10-11 þá keyrðu þeir upp álagninguna beggja megin en létu Bónus halda sama verðmun gagnvart Hagkaup. Í skjóli þríeykisins léku þeir á máttlaus neytendasamtök sem gerðu ekkert annað en að horfa á verðmuninn á milli Hagkaups og Bónuss en gleymdu heildarmyndinni sem er sú að öllum markaðnum var lyft í álagningu.
Hagkaup hefur alltaf verið ákveðin viðmiðun fyrir aðra kaupmenn í t.d. leikföngum og fatnaði en þar er hið sama uppá teningnum eða of hátt verð á íslandi vegna markaðsstyrks Baugs. Okurstarfsemin nær líka til smærri kaupmanna sem eðlilega fagna hærri álagningu miðað við Hagkaupsverðin. Menn verða að gera sér grein fyrir því að smærri aðlilar miða sig alltaf við hina stóru og ef þeir hækka þá fylgir halarófan á eftir.
Þegar ég starfaði við matvæladreifingu fyrir 150 Reykvíska heildsala í gegnum norðlenska umboðsverslun þá sá maður vel hvernig álagningarlandið liggur. Einn álagningaflokkurinn var kallaður bensínstöðvaálagning en þær lögðu feitast á, rétt eins og apótekin. Nú er svo komið að 10-11 er með hærri álagningu en nokkuð annað verslunarfyrirtæki með matvöru og hækkunin hjá Hagkaup er augljós öllum sem við verslun starfa. Nóatún hækkaði sig líka því þeir eru eðlilega bornir saman við Hagkaup. Þetta er neytendablekkingin í hnotskurn.
Svo hampa þessi fyrirtæki þessum svokölluðu lágvöruverslunum sem eru í raun að keyra nokkuð nærri gömlu Hagkaupsverðunum áður en glæpamennirnir sölsuðu hina fornfrægu neytendastoð undir sig.
Siðferðisleg og samfélagsleg ábyrgð Baugs og Kaupáss er gríðarleg en því miður standa þeir ekki undir henni. Jóhannes í Bónus er viðskiptalegur stórglæpamaður sem hefur kostað neytendur meira en hann gaf þeim á meðan Bónus var lágvöruverslun. Um leið er þetta maður sem hefur notað kjötfarsgróða til að vega að sitjandi ráðherra í ríkisstjórn íslands. Ég sé Jóhannes fyrir mér sem frekar viðskiptasiðblindan frekjuhund á meðan hluti neytenda dýrkar hann vegna þess að á íslandi eru ekki starfandi alvöru neytendasamtök sem verja fólk gegn markaðsblekkingum.
Oft dettur mér í hug að Neytendasamtökunum sé á einhvern hátt mútað af Baug því þau veita Jóa hin svokölluðu neytendaverlaun fyrir að vera ódýrari á kassa 1 en kassa 2.
Eru íslenskir neytendur bara auðblekktir fávitar upp til hópa sem eiga hreinlega skilið að láta viðskiptasiðblinda auðhringi ræna sig með bros á vör því blaðið sem þeir gefa út prentar hentugan sannleika og kyndir undir sölubatteríunum eftir pöntun.
Ég hafna þessu ástandi en það er merkilegt að Davíð Oddsson sé eini stjórnmálamaðurinn sem hafi haft dug til að segja eitthvað bítandi. Hinir þora ekki í Baug virðist vera.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Öllu má nú nafn gefa
Mánudagur, 20. október 2008
Ást á milljarðamæringum kulnuð
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/10/19/ast_a_milljardamaeringum_kulnud/
margir sem héldu ekki vatni yfir þessum ofurmönnum
ég slapp við þetta og vona að verði áfram
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar stend ég ?
Föstudagur, 17. október 2008
ég sat opinn fund á vegum Sjálfstæðisfélags Seltirninga fyrir nokkrum dögum og þar var Illugi Gunnarsson með erindi um stöðu fjármála í dag, ég verð nú að viðurkenna að það kom ekki nema passlegamikið út úr þessum ágæta manni, kanski það eina að hann 1/2 viðurkenndi að hann ásamt öðrum félögum í stjórnarliðinu hafi dáðst af glansinu og því verið með hugann annarstaðar þegar þeir áttu að vera á útkíkkinu, hann ýjaði að því það hefðu fundargestir gert líka
skil ekki svona
Lífstíll | Breytt 20.10.2008 kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tryggingarfélagið mitt með glæfrafjárfestingar út um allan heim ?
Fimmtudagur, 16. október 2008
Í frétt um málið segir að Sjóvá hafi sett íbúðaturn sinn með 68 íbúðum í Macau til sölu og að verðið sé nokkuð undir núverandi markaðsverði á eigninni.
http://www.visir.is/article/20081015/VIDSKIPTI06/735260212
Eru ekki neinar opinberar reglur um starfsemi/fjárfestingar tryggingarfélaga ?
Lífstíll | Breytt 17.10.2008 kl. 09:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er ekki samstaða dyggð. Hann er ekki rétti maðurinn
Sunnudagur, 12. október 2008
mér finnst Ólafur Ragnar Grímsson ekki rétti maðurinn til að hvetja til samstöðu - hann hefur knésett margan saklausan manninn allavegana hér árum áður og þvert á móti held ég að hann komi til með að sundra þessari þjóð - hann hefur gert nóg af sér - hann hefur ekki stutt dyggilega við þá sem minna meiga sín - hann hefur stutt dyggilega við þá sem meira meiga sín
![]() |
Forsetinn hvetur til samstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)