Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

að umbreyta lánum í vafninga og selja

Olga er bareigandi í  Neskaupstað. Til þess að auka veltuna þá ákveður hún að leyfa dyggum viðskiptavinum—sem flestir eru atvinnulausir alkar—að drekka út á krít.

Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn. Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Olgu valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni

Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Olgu í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð.

Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og Gubbuafleiður. Þessi verðbréf—sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn þóknun) stimplað AAA gæðastimpli—ganga síðan kaupum og sölum út um allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau eru metsöluvara.

Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að drykkjuhrútarnir á bar  Olgu  borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir geta það hins vegar ekki.   Olga getur því ekki staðið í skilum við sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugkeika eftir 80% fall. Nýr veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi Olgu vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið af keppinauti.

Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum.

Nýr skattur er lagður á. Bindindismenn eru látnir borga brúsann. 


Tónlistarhús og Glæsihótel við Faxahöfn

hér fer allt hljótt - er enn rétt forgangsröðun að láta þessi tvö mannvirki og þá helst Tónlistarhúsið fá þessar 13þúsund milljónir sem ekki sér fyrir endan á að dugi til nema þá kanski til helminga ? sama á við um reksturinn en þar er ekki á hreinu að þessi "glæsibygging" sé með rekstrargrundvöll tryggðann ? halda menn virkilega að það dugi að krossa fingurna Errm

Eða á bara að halda áfram allri vitleysunni og reyna að hætta að hugsa um það sem við þufum svo mikið að passa upp á áður en við getum leift okkur svona munað í 2007 "lookinu" útávið í hinum stóra heimi ?

Persónulega þá hef ég ekki efni á þessu núna - við verðum að gæta idet mindste að meðalmenskunni


Ekkert að frétta frá "starfshópum" ?

Samkvæmt traustum heimildum hafa flokkarnir í reynd náð lendingu í erfiðasta ágreiningsmálinu, Evrópusambandsmálinu. Þó ekki sé formlega búið að ganga frá samkomulagi eða ræða til lykta hver málsmeðferðin verður, þá sé orðið ljóst að ESB-málið standi ekki lengur í vegi þess að takast muni að endurnýja stjórnarsamstarfið.

OK Evrópusambandsmálið er erfiðast af öllu því birja þeir þá ekki á því sem skiptir mestu máli; fjölskyldur, heimilin og fyrirtæki ?


mbl.is ESB-málið til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

að hvetja til örþrifaráða eins og greiðsluverkfalls - ykkur er ekki treyst lengur

Steingrímur segir að þótt það væri æskilegt að grípa til almennari aðgerða hafi stjórnvöld afar takmarkað svigrúm. Þess vegna hafi þau beint aðstoðinni að þeim verst settu, til að mynda í gegnum vaxtabótakerfið.  Hann segist ekki hrifinn af hugmyndum um niðurfærslu skulda sem sé ekki nægilega hnitmiðuð aðgerð og kosti mörg hundruð milljarða. Slíkt myndi fara með stofnanir eins og Íbúðalánasjóð og lífeyrissjóðina.

Steingrímur og Jóhanna - fyrir nokkrum vikum áttuð þið til svör og lausnir við öllu, skömmuðust og djöfluðust sem naut í flagi - hvar eru þau svör og lausnir nú ? ég er nokkuð viss um að þegar þið loksins opnið sagða kistu lausna þá kemur í ljós að hún er galtóm eins og þið sjálf

og eruð þið hissa á að almenningur sé að reyna að vernda fjölkyldu sína og kanski grípa til örþrifaráða


mbl.is Varar við örþrifaráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

flóttatilraunin misheppnaðist ?

Það var svo árið 2007 sem Magnús keypti BOM og skrifaði undir sjálfskuldarábyrg upp á 930 milljónir króna.

Lögfræðingur Magnúsar, Benedikt Ólafsson, hélt því fram í héraðsdómi í síðustu viku að bankinn hefði gert samkomulag við Magnús um að hann þyrfti ekki að borga peninginn, þrátt fyrir sjálfskuldaábyrgðina. Hann segist hafa undir höndum tölvupósta milli Magnúsar við stjórnanda bankans sem staðfesti þetta.

Í úrskurðinum kemur einnig fram að þegar krafan um gjaldþrotaskipti barst dómnum átti Magnús lögheimili á Akureyri og því beri að ljúka meðferð kröfunnar fyrir dómi.

Mig grunar að flóttatilraunin hafi einmitt tekist

 


mbl.is Fallist á gjaldþrotakröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölgun íbúa og hafnaraðstaða - því ekki Húsavík ?

Íbúum á Austurlandi gæti fjölgað um fimm til sex þúsund í kringum hugsanleg umsvif olíuiðnaðarins á Íslandi í framtíðinni. Þetta er mat Halldórs Jóhannssonar skipulagsráðgjafa. Þá horfir hann til þess að helmingur þeirra sem kæmu með einhverjum hætti að olíuiðnaði á landinu, starfsmenn og fjölskyldur þeirra, byggi fyrir austan; líklegast á Vopnafirði og Þórshöfn.

„Það er búið að sýna fram á að Gunnólfssvík í Finnafirði er líklega eitt besta, ef ekki besta, hafnarstæði á norðurhveli jarðar. Þetta er geysilega góður staður. Ölduhæðin er lítil og aðdjúpt og víkin því tilvalin fyrir stórskipahöfn.

Ég sé fyrir mér að Húsavík gætil leitt bæði þessi atrið - þar er öll þjónusta til staðar ásamt skólum, heilsugæslu oþh,  flugvöllur og hafnaraðstaða öll er ágæt, allavegana þarf ekki að gera miklar breitingar þar - okkur er gjarnt á að ana og eyða um efni fram  - er ekki réttast að nota það sem til er - vegalengdir Húsavík, Gunnólfsvík > Drekasvæði er ekki það mikil að vert sé að byggja upp nýja höfn ásamt öllum þeim vega og mannvirkjaframkvæmdum sem því fylgja

Reynum að vera skinsöm


mbl.is Íbúum fjölgi með olíunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup.

Málefni skipta háskólamenntaða meira máli en þá sem eru minna menntaðir. Hlutfall þeirra  sem segja traust og trúverðugleika skipta þá mestu máli við val á flokki er hæst á meðal kjósenda Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs en hlutfall þeirra sem segja að málefni skipti þá mestu máli er hæst á meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins

Þetta er náttúrulega bara bull en hvað um það þá rigna yfir þóðfélagið kannanir úr öllum áttum en er einhver eða einhvejir að fara eftir þessu öllu saman, hver borgar þetta svo ?


mbl.is Málefni og traust skiptu mestu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil fækkun í lögreglunni

Fái embætti lögreglu höfuðborgarsvæðisins ekki fjárveitingu upp á rúmar 50 milljónir króna til að halda tuttugu lögreglumönnum, sem ráðnir voru tímabundið, innan sinna vébanda verða eftir um 290 lögreglumenn. Fyrir ári voru 347 lögreglumenn í starfi hjá embættinu.

Norðmenn eru sagðir nískir eða fara vel með, í Bergen búa um 250.000 manns - hvernig skildi þessu vera háttað þar ?


mbl.is Mikil fækkun í lögreglunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Promens er helsta eign Atorku

Samkvæmt heimasíðu Atorku á félagið 79% í Promens sem rekur plastverksmiðjur í 20 löndum.

Eru allar eignir íslendinga hreinlega að þurkast út - miklir peningar sem hverfa eða skipta um eigendur


mbl.is KPMG telur hlutafé í Promens verðlaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að draga heimili og fjölskyldur á asnaeyrunum

Ríkisstjórnin hafi aðeins fáeinar vikur – jafnvel aðeins fáa daga – til að grípa til aðgerða. Hann segist ekki hvetja fólk til að hætta að borga af lánum sínum en viti að fjölmargir íhugi það. Ekki síst um þessar mundir þegar frysting lána rennur út.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra segir ríkisstjórnina meðvitaða um vanda heimilanna og hversu brýnt sé að bregðast við honum sem fyrst. „Hér vinnum við öllum stundum að þessum brýnu málum. Það þarf enginn að efast um það. Við gerum okkur grein fyrir því að vinna þarf hratt og örugglega að öllum þessum málum sem framundan eru.“

Það er nokkuð öruggt að þessi ríkisstjórn er ekki að vinna að þeim málum sem skipta fjölskyldur í landinu máli, heldur hefur hún verið dugleg að sinna sérhagsmunagæluverkefnum svo sem súludans, hreindýrakálf,  ísland palestína, fjölgun listamanna á ríkisstyrkjum oþh afar mikilvægum þáttum

Loks þegar þeir rétta fram "fingurinn" (ekki hendina) þá verður það allt allt of seint - hér er hvorki  þor né geta til að axla ábyrgðina og klára dæmið


mbl.is Margir íhuga greiðsluverkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband