Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Nú létuð þið plata ykkur

hér átti allt að vera upp á borðinu í anda lýðræðisins - ekkert átti að vera falið eða geymt á bakvið luktar dyr - það var þá trúnaðurinn sem sú gamla plataði upp á ykkur
mbl.is Trúnaður ríkir um þingsályktunartillögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru það ekki flokksmenn sem eru að stækka

Þingflokkurinn hafi stækkað í síðustu kosningum og hann geri ráð fyrir að hann stækki aftur þegar kosið verði næst. Það taki því ekki að vera með miklar tilfæringar fyrir stuttan tíma

Jú Sigmundur, ekki meir ekki meir herbergi mót suðri og tvö egg á morgnana


mbl.is Vilja ekki flytja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allar kostnaðarkröfur skoðaðar

þetta er þekkt fyrirbæri hér - man ekki betur en að allavegana ein kona af vinstri vængnum fékk sérstakan "kjólastyrk" og önnur sem bjó í Mosfellsbænum fékk styrk til að leigja sér íbúð í henni Reykjavík svo hún gæti haft fataskipti, svo var einhver Jón sem fékk veislurnar greiddar úr ríkissjóði, virðist vera þannig að því meira sem fólkinu er treyst þá falla allt of margir í grifju misnotkunar

það er illa farið með traustið og peninga víða


mbl.is Brown: Allar kostnaðarkröfur skoðaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við myndum aldrei sætta okkur við svona ástand á öðrum sviðum

Við hér heima þekkjum þetta af eigin raun - höfum skrifað til fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem þá var Guðlaugur Þór en vorum varla talin svaraverð eða þá snúið út úr orðum okkar og bent á ýmsa styrki eða "bitlinga" sem við gátum sett nöfn okkar í einhverskonar "púkk" þar sem við gátum átt von á að vera dregin út og fengið einvherskonar peningavinning ? - snérist ekki endilega um peningana heldur réttlætið, réttlætið að aðstoð við börnin okkar sé viðurkennd í heilbrigðisgeiranum.

Það þarf að snúa þessi til betri vegar - semja og uppfæra verðskrár -  ef tannlæknar sem og þeir læknar sem koma tannholdsaðgerðum ofl eru ekki tilbúnir að vinna með "fólkinu" þá vænti ég að aðrar lausnir geti boðist


mbl.is Sofna ekki án verkjalyfja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sveitarfélög með "þvegilinn "í andlitinu

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, segir viðvörunarorð Seðlabankans varðandi skuldsetningu í erlendri mynt hafa verið hundsuð. „Það hefur ýmislegt verið sagt um Seðlabanka Íslands í umræðu um efnahagsmál en það er ekki hægt að segja að Seðlabankinn hafi ekki varað við lántökum í erlendri mynt á meðan tekjurnar eru í krónum. Það hafa forsvarsmenn bankans gert við ýmis tilefni undanfarin ár,“ sagði Þórarinn.

Ekki meira um það að segja !


mbl.is „Eins og blaut tuska“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins

þetta kanntu Bjarni - komdu fram og berstu með og fyrir íslenska alþýðu


mbl.is Mótmæli vegna Gordons Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur - slóðaháttur

þetta kemur af sóðaskap sem og slóðaskap - því anskotist þið ekki til að þrífa götur borgarinnar svo komast megi hjá svona nokkru

Væri ekki nær að umhverfis og smagöngusvið færi út að sópa út að spúla - og mæla svo ?


mbl.is Svifryk yfir mörkum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki frétt - bara sannleikur sem má ekki gleymast

þetta er ekki nokkur frétt - öðrum til viðvörunar og til að varðveita söguna, ætti að ramma inn alla þá stjórnmálamenn og útrásarvíkinga sem sátu hvað fastast á þessum tíma og hreiktu sér hvað mest

Í raun ættu margir þeirra að vera útskúfaðir frá viðskiptalífinu sem og stjórnmálum til æviloka


mbl.is Hrunið afleiðing græðgi og heimsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dollarinn ekki undir 100 krónum

Ég tel að það sé ólíklegt að dollarinn fari undir sem nemur hundrað krónum í framtíðinni, og líklegt að hann verði á bilinu 110 til 130 krónur,“

Ekki vantar fyrirlestrana og ekki vantar ráðin - en okkur vantar hluti sem eru naglfastir ekki "líklega" "sennilega" hugsanlega" og þar fram eftir götunum


mbl.is Dollarinn ekki undir 100 krónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldeyrishöft forsenda vaxtalækkunar

Bankinn segir, að afgangur af utanríkisviðskiptum hafi ekki stutt við krónuna að því marki sem vænst var. Þetta hafi gert peningastefnunni erfiðara um vik að stuðla að enduruppbyggingu efnahags heimila og fyrirtækja og kallað á tiltölulega aðhaldssama peningastefnu í upphafi fjármálakreppunnar. Nú hafi verið dregið úr aðhaldinu en ennþá sé þörf á varkárni. 

„Með því að hindra óheft útflæði fjármagns stuðla tímabundin  gjaldeyrishöft einnig að stöðugra gengi krónunnar. Þar sem fjárfestar telja íslenskar fjáreignir mjög áhættusamar væri þörf á mjög miklum vaxtamun við útlönd til að styðja við krónuna ef slíkra hafta nyti ekki við og líklega einnig þegar þeim verður aflétt að lokum. Meðan veruleg óvissa er ríkjandi um erlendar skuldir þjóðarinnar, stöðu ríkisfjármála og endurskipulagningu fjármálakerfisins eru gjaldeyrishöft forsenda þess að hægt sé að draga verulega úr aðhaldi í peningamálum,"

Þá þarf líka að passa upp á að útflutningstekjur skili sér "óhreifðar" inn til landsins - nú þíðir ekkert brask - því meiri samstaða því fyrr gengur þetta yfir


mbl.is Gjaldeyrishöft forsenda vaxtalækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband