Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
Furðufugl
Miðvikudagur, 30. september 2009
Við héldum að hann væri orðinn skólaðri í pólitík en þetta, segir Sigmundur
hann veit sínu viti þessi
"alsgáður" kanski en efast stórlega
Stendur og fellur með VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það eru grunngildi samfélagsins sem þarf að breyta til að ná úrbótum
Miðvikudagur, 30. september 2009
Mjög svo átakanleg færsla sem ég rakst á............
**********
Hérlendis er alinn upp í okkur skömm yfir fátækt. Ég er sjálfur blankur, skuldugur en samt stoltur af sjálfsbjargarviðleitni minni og tala mikið um þau úrræði sem ég nýti mér til að metta mig og hafa á mig, en iðulega þegar maður talar um slíka hluti er maður stimplaður óreglumaður og litið niður til manns.
Einnig hef ég reynt að fá fólk í sem er í slæmum aðstæðum að skrifa eða blogga um reynslu sína, en það þorir enginn að gera slíkt undir nafni. Svo djúpt ristir hið uppalda stolt og óttinn við óreglustimpilinn.
Það er meira að segja litið niður á fólk sem notar strætó sem ferðamáta, þó því ætti náttúrulega að vera öfugt farið. Strætó er margfalt vistvænna en þeir þúsundir bíla sem bruna um alla borg með bílstjóranum einum innanborðs, og er þetta gott dæmi um náttúruhatur Íslendinga og óábyrgð okkar gagnvart umheiminum.
Það eru grunngildi samfélagsins sem þarf að breyta til að ná úrbótum hérlendis ef gott á að heita.
****
Vinnureglur Samfylkingar - Sigmundur Ernir óborganlegur ?
Miðvikudagur, 30. september 2009
Er hægt að fyrirgefa mönnum allt ansk svínaríið og bullið
Ein leið ráðamanna / alþingismanna til að græða á "þér" eða hagræða aðeins "meira" en löglega þó ?
Hann skráir sig á Akureyri með lögheimili - í kjallaranum hjá systur sinni og fær styrk út á það.
Hann fær styrk frá Akureyrarbæ fyrir skólagöngu og leikskólavist barna sinna í Reykjavík, þar sem börnin eiga heima og hafa alltaf átt.
Þetta gerir maðurinn til að spara ríkinu pening!
http://www.dv.is/frettir/2009/9/30/sigmundur-ernir-skradur-til-heimilis-hja-systur-sinni/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Skilduskoðun mismundandi "skuldahala" sem og bifreiða ......
Miðvikudagur, 30. september 2009
Innheimta með SMS skilaboðum er fólk hvergi óhult nú orðið
Vona að hið opinbera gæti hófs í skoðunargjödlum á þessum aftanívögnum sem og á einkabifreiðum ?
Eru þessi gjöld verðtryggð í dag ?
Gilda sömu eða sambærilegar reglur td á norðurlöndunum ?
Bifreiðagjöld eru verðtryggð að vísu voru fyrstu tvö árin án verðtrygginar, síðan í tíð Jóns Baldvins en þá voru þau sett á sem skammtíma "skattur" til tveggja ára - "síðan eru liðin mörg ár" - því er þessi verðtrygging ekki tekin af þessum göldum - umræðan í þjóðfélaginu er slík að nú ætti að vera tækifæri að taka verðtrygginguna af !
Er ekki þessi nýji RÚV "nefskattur" líka verðtryggður, held það !!
SMS-skilaboð skila árangri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í krafti auðsins........
Þriðjudagur, 29. september 2009
sannleikanum verður hver sá reiðastur - væri hissa ef þessi mynd fær ekki á sig lögbann - ánægður samt ef hún fær að rúlla með "fullri" reisn
hvað sem verður þá mun ég sjá þessa mynd og umgangast "heimildir" með varúð
Vill að viðtölum verði eytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Staður konunnar er á bakvið............ !
Þriðjudagur, 29. september 2009
Datt inn um lúguna hjá mér - finnst hann ágætur...
Konur sem vita hvar þeim ber að vera
Barbara Walters, hin þekkta sjónvarpskona, fjallaði um hlutverk kynjana í Kabul höfuðborg Afganistans, mörgum árum en umrótið hófst þar í landi.
Hún veitti sið sem þar ríkti sérstaka athygli; Utandyra gengu konurnar ávalt fimm skrefum á eftir eiginmanninum.
Fyrir skömmu lá leið Barböru til Kabul að nýju og þá sá hún að þetta hafði ekki breyst, þrátt fyrir fall harðstjórnar Talibananna. Konurnar virtust nú - glaðar - viðhalda gömlum siðum.
Barbara tók eina afgönsku kvennanna tali og spurði: "Hversvegna unið þið þessum gömlu siðum sem ykkur var svo mikið í mun að losna undan"? Konan horfði í augu Barböru og sagði hiklaust "Jarðsprengjurnar"
Boðskapur sögunnar er - (hvert sem þig um heiminn ber eða hvaða mál þú mælir) - Oft leynist klár kjelling á bakvið eldavélina !!!
Lífið á ekki að ganga út á það að standa af sér storminn - sá nýtur lífsins sem kýs að standa í rigningunni.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Golfsettið komið til Reykjavíkur.....
Þriðjudagur, 29. september 2009
Fékk hringingu áðan þess efnis að WILSON AIR POWER MENS LH golfsettið sem ég fjárfesti í fyrir heilar tíuþúsundkrónur í BYKO Akureyri fyrir helgina væri komið og biði nýs eiganda síns, það er að víus ekki svona hjólakerra með en viðurkenni þó að ég er mjög spenntur og síðast en ekki síst hvort ekki var rétt valið hjá mér að kaupa vinstrihandar kylfur - það skírist vonandi á næstu dögum
Ég á helling af golfkúlum en þarf að athuga með golfkerru !
Spennandi tímar framundan
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Takk fyrir viðgjörninginn
Sunnudagur, 27. september 2009
Hópur brottfluttra útlendinga liggur undir grun um að svíkja út bætur með því að fá landa sína hér til þess að stimpla sig atvinnulaus. Það verður að sækja þetta fé til baka sem og að loka á þetta fólk að koma hér inn aftur.
það sem ekki er hægt að læra af þessu fólki eða erum við soddans einfeldningar
Missa rétt á bótum vegna gruns um svindl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.9.2009 kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Enn og aftur segi ég NEI
Sunnudagur, 27. september 2009
verum staðföst og segjum NEI við því sem við höfum ekki stofnað til sem þjóð
Við vitum þá allavegana hvar við stöndum og getum hafið uppbyggingarstarfið af fullum krafti frá "þekktum" punkti
Ekki séð fyrir enda Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Velkominn vetur konungur
Sunnudagur, 27. september 2009
taka fram vetrar fatnað og annað sem tilheyrir þessari árstíð
Fyrsti snjókarlinn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |