Nú á að ýta útlendingunum út ?

Snæfell hefur sagt upp samningum sínum við erlenda leikmenn og þjálfara körfuknattleiksliðs félagsins samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu á stykkishólmspóstinum í gærkvöldi.

tjórn Snæfells í meistaraflokki karla í körfuknattleik
sendir frá sér eftirfarandi yfirlýsingu;

Í ljósi breyttra efnahagsaðstæðna í þjóðfélaginu hefur verið tekin sú ákvörðun að segja upp öllum samningum við erlenda leikmenn og þjálfara liðs Snæfells. Þetta er fyrst og fremst gert til að hægt sé að reka deildina í vetur. Því miður hafa aðstæður breyst það mikið að sú fjárhagsáætlun sem lagt var af stað með fyrir þetta tímabil er algjörlega brostin. Því er það mat stjórnar að þetta sé eina raunhæfa lausnin í stöðunni.  Snæfell mun tefla fram sterku liði skipuðu íslenskum leikmönnum og ætlar sér stóra hluti í deildinni í vetur.

Vonandi jákvætt hvað þeir eru snöggir að átta sig Snæfellsmenn - kanski ekki eftir neinu að bíða - það má kalla þá  inn á aftur þegar ástand lagast ?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Fleiri lið eru að gera það sama og Snæfell, þetta er miður fyrir íslenskan körfubolta. Það hefur sýnt sig í gegnum árin að íslenskur bolti án erlendra leikmanna er leiðinlegur hvort sem um er að ræða knattspyrnu eða körfubolta.

Íslenskir leikmenn hafa sjálfir talað um að viss fjöldi erlendra leikmanna lyftir upp gæðum leiksins og ekki veitir íslenskum leikmönnum á að læra af sér betri leikmönnum.

S. Lúther Gestsson, 7.10.2008 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband