Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ófærð fyrir vestan - ekki verði beðið eftir vígsluathöfn ráðherra
Laugardagur, 26. september 2009
Talsverð snjókoma hefur verið fyrir vestan í dag og eru Þorskafjarðar-, Tröllatungu- og Steinadalsheiði nú allar ófærar, sem og Hrafnseyrarheiði, veginum um Arnkötludal er ætlað leysa þrjá fyrstnefndu fjallvegina af hólmi en Vegagerðin sá ástæðu til þess í gær að tilkynna sérstaklega að Arnkötludalsvegur væri lokaður, en ökumenn voru byrjaðir að aka veginn framhjá skiltum sem sögðu hann lokaðan. Verktakinn lauk í fyrradag við að leggja bundið slitlag á veginn og reyndi ekki að stöðva ökumenn á leið þar um.
stefnt að því að opna Arnkötludal sem allra fyrst, - ekki verði beðið eftir vígsluathöfn ráðherra, - og vonast til að unnt verði að hleypa umferð á veginn upp úr miðri næstu viku.
til hvers þarf einhvern ráðherra til að opna vegi oþh - nú er 2009, svona eyðslu eða kanski tímasóun er löngu hætt í öðrum siðmentuðum löndum - hvort sem það eru nýir vegir - skip - flugvélar eða brýr sem eiga í hlut
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfstæðisfélag Seltirninga er 50 ára í dag 25 september
Fimmtudagur, 24. september 2009
Þetta er sko ekkert leyndarmál en,
Stjórn Sjálfstæðisfélags Seltirninga býður Seltirningum og velunnurum félagsins að gera sér þá ánægju að koma til móttöku í tilefni 50 ára afmælis félagsins, sem haldin verður í húsakynnum þess að Austurströnd 3, 3. hæð Seltjarnarnesi föstudaginn 25. september 2009 kl. 17:00 - 20:00.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.9.2009 kl. 08:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er bara flott, allir þurfa að hafa ofaní sig og á .........
Fimmtudagur, 24. september 2009
skil þett ekki alveg, því er Davíð Oddsson aðalmaðurinn í dag ? við náttúrulega vitum öll þe þau sem vilja vita að hann er bara "fottur" en verum ekkert að velta okkur upp úr þessu - eftir 11 klukkutíma eiga flest okkar að ver mætt til vinnu og þá tökumst við á við ný verkefni -
sofum vært í nótt
![]() |
Davíð og Haraldur ritstjórar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ríkislögreglustjóri hafi eftirlit með orðum "virðulegs" Ólafs Ragnars ?
Fimmtudagur, 24. september 2009
segist áður hafa lagt til að utanríkisráðuneytið eigi vitni að viðtölum Ólafs Ragnars við erlenda fjölmiðla.
Ég sé á vefsíðum, að Ólafur Ragnar hefur sagt eitthvað um íslenska bankamenn við Bloomberg-fréttasjónvarpið, síðan dregið það til baka og kennt fréttamanni um vitleysuna.
Eftirlitsmaðurinn gæti að minnsta kosti staðefst, að Ólafur Ragnar hefði ekki sagt neina vitleysu við fréttamanninn,"
http://www.visir.is/article/20090924/FRETTIR01/94212693
Heillavænlegast fyrir þjóðina er að maðurinn segji af sér hið bráðasta
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eittþúsundogfimmhundruðmilljónir = rekstur sendiráðs Íslands í Japan
Miðvikudagur, 23. september 2009
Hlutverkið má vera mikils virði til að réttlæta svona kostnað og það fyrir "örríki" eins og Ísland - einhver hlýtur flottræfilshátturinn að vera hjá fáum.
"Engu að síður þarf utanríkisráðuneytið, í ljósi efnahagsástandsins, að skera rekstrarútgjöld verulega niður og hagræða eins og kostur er, segir Urður en m.a. hefur sendiskrifstofum verði fækkað".
Fjárframlög til Utanríkisráðuneytisins síðustu ár eru þessi:
- 2007 - 7,5 milljarðar
- 2008 - 8,9 milljarðar
- 2009 - 11,4 milljarðar
Utanríkisráðuneytið gæti ósköp vel látið sendiráðsstarfsmenn nota svo sem eina af þessum 1.500 milljónum til að skrifa greinargerð um starfið, að minnsta kosti væri fróðlegt að vita hversu mikið hefur farið í risnu og veisluhöld.
Var þetta ekki eitt af því sem átti að skera niður til að verja grunnþarfir fólksins í landinu ?
![]() |
Sendiráð upp á 1,5 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dregur sig út úr Samtökum atvinnulífsins
Þriðjudagur, 22. september 2009
og ekki af ástæðulausu - grafalvarlegt mál hér á ferð
![]() |
Þór hættir sem formaður SA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það hljóta að vera gild rök ....
Þriðjudagur, 22. september 2009
Ég bara trúi því ekki að eitt af öflugustu fyrirtækjum landsin sé að láta flækja sér inn í svona mál, eigendum hefur ekkert skort og því gjörsamlega út í hött að þetta hér sé um "pretti" að ræða.
Þó svo að hið fornhveðna segi: Mikill vill meira þá á það vonandi ekki við hér !
![]() |
Söluverð til kaupa bréfa af eigendum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auður stóll .......
Mánudagur, 21. september 2009
bara hið besta mál ef Davíð settist í þennan svokallaða ritstjórastól - skil ekki af hverju fólk er fyrirfram að agnúast um það hvort hann verðir ráðinn eða ekki
En auðvitað er ekki nokkur maður neiddur til að "pósa" skoðanir sínar, hvorki hér né annarstaðar
![]() |
Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.9.2009 kl. 07:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stjórnendur yfirskuldsettra fyrirtækja skjóta eignum undan
Mánudagur, 21. september 2009
Margir eigendur fyrirtækja sem standa frammi fyrir gjaldþroti eða að bankarnir taki rekstur þeirra yfir eru að taka eignir út úr fyrirtækjunum og/eða taka út háar peningafjárhæðir með ýmsum hætti.
Fljótlegasta leiðin til þess að endurskipuleggja rekstur fyrirtækja væri með samstarfi við eigendur þeirra.
Sumum fyrirtækjum verður ekki bjargað en öðrum er vissulega hægt rétta við
Þess eru dæmi um rekstraraðila fyrirtækis sem setti sig aftur í þrot, á sama tíma og eigendur voru að semja við bankann sem tók um 7 mánuði um kaup á rekstrinum til baka úr búinu þá voru þeir að byggja sér nýtt hús og á því húsi hvílir nákvæmlega NÚLL krónur í dag - skítnum var ýtt út í þjóðfélagið.
Það vantar skírar línur og höft við kennitöluflakki
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hann ætti að kunna þetta
Mánudagur, 21. september 2009
Ólafur Ragnar verður málflytjandi í pallborðsumræðum á heimsþingi Clinton stofnunarinnar, Clinton Global Initiative, þar sem fjallað verður um hvernig fjármálamarkaðir geta þjónað almannaheill á heimsvísu.
Nei í alvöru talað, hafa menn húmor fyrir þessu
![]() |
Forsetahjónin í Bandaríkjaheimsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |