Ógeðfeld ákvörðun á sínum tíma þeirra manna sem stóðu að

Formaður allsherjarnefndar Alþingis vonar að hægt verði að ná þverpólitískri sátt um að breyta lögunum á yfirstandandi þingi.

þessi "blessaða" pólitík kemur víða við kauninn á fólki - svona aðgerð firnist væntanlega aldrei, ætli það sé bannað að velta fram þeim nöfnum sem stóðu að þessum gjörning árið 1999

þetta er réttlætismál sem þarf að fara í leiðrétta og klára STRAX


mbl.is Börnin fá smánarbætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásdís Halla Bragadóttir því hætti hún við ?

hef verið að velta fyrir mér ástæðu(m) þess að þessi ágæta kona Ásdís Halla hætti við framboð sitt til prófkjörs fyrir Sjálfstæðisflokkinn - hún hefið sennilega boðið sig fram hér í "kraganum" eða suð-vestur - hún er manneskja sem kann/þekkir tímana tvenna kemur  úr sjávarplássi þar sem fólk allt þurfti að vinna og hafa fyrir hlutunum, henni hefur vegnast vel af dugnaði einum saman, dugnaði frá henni sjálfri, Ásdís Halla Bragadóttir hefði án efa orðið okkur öllum mikill stoð og stuðningur sem og sómi,  ekki bara fyrir Sjálfstæðismenn heldur landsmenn alla óháð pólitík

Hún hefði átt að "verma" eitt af tveimur efstu sætunum - það gustar góðu frá þessari manneskju

Fyrst ekki núna þá vonandi síðar


ekki lengur á jaðrinum heldur komnir yfir hann

Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, segir að verið sé að samkeyra eignarhald og stærstu lánþega bankanna. Nefndinni er meðal annars falið með lögum að kanna krosseignatengsl hjá bönkunum og lán þeirra til eigenda og skyldra aðila.

með lánveitingunum eru menn ekki lengur á jaðrinum heldur komnir yfir hann

Ég treysti á að réttlætið nái fram að ganga sem allra fyrst


mbl.is Eignarhald og lánveitingar bankanna skoðað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sukk út í eitt - fríðindi og skattleysi Sendiherra sem og aðstoðarmanna allra

Það er liðin tíð að menn geti nú ferðast um á fullum dagpeningum í opinberum heimsóknum þar sem allt er greitt fyrir fólk sem og maka ?

Hefur verið með eindæmum en betur má ef duga skal, enn eru sendiherrar sem og aðstoðarmenn allir skattlausir


mbl.is Steingrímur sker í dagpeninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þá ekki best að gerast listamaður - hver er ekki listamaður ?

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun frumvarp til laga um úthlutun listamannalauna. Miðar frumvarpið að því að fjölga þeim mánuðum sem listamönnum standa til boða, úr 1.200 í 1.600, á þremur árum

hvað er í gangi hér - þvílíkt bull


mbl.is Leggur til breytingar á listamannalaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framboð og kosningarloforð

lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum samtals mörghundruð-milljarða króna, samkvæmt lánabók Svindlbanka, en Gagnið hefur hluta hennar undir höndum. Um er að ræða lán til vina og fleiri vina sem og eiganda og stærri eiganda sem að vísu var næstum gjaldþrota, einnig voru lán veitt svindlvinum þessara aðila

Hvað með kosningarloforð um að svona "lið" verði upprætt, eigur og peningasjóðir skilað til baka 

Spillingarliðið burt

 


Svo gjörsamlega siðlaust

Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum samtals 478 milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum. Um er að ræða lán til Ágústs og Lýðs Guðmundssona, Ólafs Ólafssonar, Roberts Tchenguiz og félaga í þeirra eigu.

 svo fá þessir menn að vera með prokuru áfram

Er þetta bara allt í lagi ?


mbl.is 500 milljarðar til eigenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætla að skapa 4000 ársverk

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra -nóg að gera hjá  Jóhönnu Whistling

Um er m.a að ræða störf í byggingariðnaði, við byggingu snjóflóðavarnagarða, gróðursetningu og grisjum, hækkun á endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar, ferðaþjónustuverkefni, fjölgun í hópi þeirra sem njóta listamannalauna og við inn- og útflutning á óunnum fiski.

hér áður fyrr í upplestri áhafna fiskibáta þá var kokkurinn oft lesinn upp síðastur og það á eftir skipshundinum - nú er það fiskurinn sem kemur á eftir trommleikaranum og byggingu snjóflóðavarnargarða -

þetta er kanski ekki forgangsröðum bara æxlast svona Errm

 


mbl.is Ætla að skapa 4000 ársverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir aðalfundi bankanna hugsanlega ólöglega, ekki hægt að gera neitt rétt ?

aðalfundir nýju ríkisbankanna, stjórnir þeirra og ráðstafanir kynnu að vera ógildar þar sem ekki hefði verið fylgt lögum um opinber hlutafélög.
lög um opinber hlutafélög eru mjög afdráttarlaus um hvenær fyrirtæki ættu að falla undir lögin, en þau gerðu meðal annars kröfu um um jafnræði milli kynja í stjórnum.


fjármálaráðherra taldi það hins vegar langsótt að fyrirtæki sem lentu tímabundið í umsjá ríkisins teldust opinber hlutafélög en kvaðst þó ætla að taka ábendinguna til skoðunar.

það sem ekki er hægt að "karpa" um - ekki hægt að gera neitt rétt - tíminn sem fer í svona "kjaftæði" ætlar engan enda að taka

http://www.visir.is/article/20090305/VIDSKIPTI06/162250246


ákærðir fyrir markaðsmisnotkun

Fyrrverandi sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs hjá Kaupþingi, hefur verið ákærður fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á bréfum Exista í janúar og febrúar á síðasta ári

Málið er eitt fyrsta sakamálið vegna brota í aðdraganda bankahrunsins. Töluverð umræða hefur verið um að í undanfara bankahrunsins, hafi verðbréfamiðlarar reynt að halda gengi bréfa í stóru bönkunum þremur og öðrum félögum uppi, með svipuðum aðferðum og hér um ræðir.

Nú þurfa menn að vera snöggir - hér má ekki draga neitt á langinn - sekur eða saklaus

 http://www.visir.is/article/20090306/VIDSKIPTI06/980157021

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband