Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2016
mörgum er tíðrætt um hvort rétt sé að kjósa í haust ?
Fimmtudagur, 28. júlí 2016
Það fer eftir málefnastöðu! Verði unnið úr málefnaskrá stjórnarinnar, þá er það
ásættanlegt. Heyri samt að kvótakaupin úr Þorlákshöfn leggjast illa í fólk.
Menn eru hundóánægðir hvað lítið gengur að afgreiða kvótamál Hvað löggæslan er léleg -
Hvað staða heilbrigðismála er léleg Hvað búnaðarlögin eru einokunarsinnuð og hvað
illa gengur að aflétta innflutningstollum - Hvað illa gengur að tryggja lámarkslaun í ferðamanna- og virkjanaframkvæmdum. Stjórnin hefur haft 3 ár til að laga þetta!
Jú ætli sé ekki best að koma öðrum að til að komast til nútímans ?
ekki er nú allt í hendi ....
Þriðjudagur, 26. júlí 2016
Píratar tala nú eins og þeir halda að útkoman úr komandi kosningum verði!
Guðni Th. talaði eins og forseti mánuði áður en hann tekur við embætti!
Það er þetta íslenska óþol að éta kökuna áður en hún er bökuð!
Sigmundur Davíð talar eins og hann hafi áhrif í Framsókn en hefur hann það?
Íhaldið vill losna! verði ekki kosið í haust, og þingið teikt inn á næsta ár,
komi Sjálfstæðisflokkurinn að tapa stórt það munar um Ragnheiði Ríkarðsdóttir og
hvort takist að endurnýua forustu suður ! ekki allt í hendi hjá Íhaldinu!
.... ekki batnar það ....
Þriðjudagur, 26. júlí 2016
nú er minkurinn mættur í hænsnabú Framsóknar!
eða Alþingis öllu heldur. Sigmundur Davíð mættur til leiks og vill halda áfram!
Sakar Sjálfstæðismenn um að draga lappirnar - sem er alveg rétt, bæði
landbúnaðarsamningar og húsaleigufrumvarp Eyglóar standa í þeim.
Píratar hóta lömun á störfum Alþingis - nóg að gera hjá 3ja manna þingflokki!
Fari búvörusamningar i gegn muni D hljóta afhroð i komandi kosningum ?
Sunnudagur, 24. júlí 2016
Þjóðin finnur ekki lengur fyrir skildleika við sveitina nú er 3ja eða 4. kynslóð ráðandi í landinu, sem finnst að bændur séu kröfuharðar afætur á kerfinu.
Kröfur um framleiðslustyrki án þess að markaður sé fyrir hendi útflutningur
landbúnaðvara styrktur á kostnað neytenda Skattar á innflutt matvæli að kröfu bænda kosta neytendur.
Kröfur um eign á afréttum, kröfur um hlutdeild í vatnsréttindum,
Hlunnindatekjur vantaldar til skatts og barist gegn endurmati á þeim. KRÖFUR KRÖFUR -
Almennir borgarar hafa enga samúð með þessari forréttindastétt sem ein stétta þarf ekki að hagræða hjá sér.
Að ætla að samþykkja búvörusamninga einsog þeir eru skipar D bara í hóp þeirra sem verja afturhald og mega enga breitingu sjá sem kemur neytendum til góða.
Þjóðin er ung afar og ömmur eru borgarbörn tengsl við sveitina löngu brostin.
Samþykkt Búvörusamninga, án verulegra breitinga í þágu neytenda stimplar D sem kerfisflokk, blindan á framtíðina.