Bloggfærslur mánaðarins, september 2010
Lág laun þingmanna leiða til spillingar ?
Föstudagur, 10. september 2010
hver er spilltur .......... þú segir fréttir Tryggvi Þór Herbertsson
laun óbreytts þingmanns eru nú 520 þúsund á mánuði - hver eru laun þeirra sem td koma að ummönnunarstörfum svo sem uppeldi barna okkar, afgreiðslustörf eða almenn verkamannastörf - er þá spilling í þeim stéttum að þínu mati ?
eða eru þingmenn ofar þessum venjulega
Ég lýsi andúð minni á svona kenningar
http://www.visir.is/tryggvi-thor--lag-laun-thingmanna-leida-til-spillingar/article/2010513219486
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vitlaus aðferð ........
Fimmtudagur, 9. september 2010
ég er nú svo vitlaus að telja það farsælast fyrir svo marga að þetta mál sé klárað með einhverskonar samningum frekar en að hirða af fólki - munum að mjög mörg þeirra sem stunda "útræði" eða fisveiðar í kringum landið hafa þurft að kaupa sig inn í atvinngreinina dýru verði - mér er alveg sama hvað félagi minn Nilli segir þó ég telji hann að mestu sammála mér hér.
ef ég fer rétt með þá eru um 70% alls kvóta i eigu ca 17 fjölskyldna alhæfi ekki en hef þetta eftir nokkuð áreiðanlegum heimildum - þú kanski veist betur ?
hvað þá með allar afréttir og landspildur hingað og þangað sem bændum eru taldar til eigna í dag ? er það ekki þjóðareign, kanski kjósa um það líka ?
Hafna samningaleiðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er eina málsvörn Steingríms, lygar, heift og reiði ..
Miðvikudagur, 8. september 2010
hræða þingheim sem og landsmenn með heiftina að vopni, nei Steingrímur þessi úr Þistilfirði ætti nú bara að drífa sig í kjördæmi og vera þar sem eftir er, hann hefur nákvæmlega ekkert gert nema til óþurftar sem og þessi ríkisstjórn öll, enn verri framlenging af fyrri spillingu sem við flest könnumst við ..........
Ég er mjög svo viss um að Árni Johnsen fer með rétt hér í mál um smíði MV Herjólfs - Steingrímur Joð varð til þess að Herjólfur var styttur um 8,5 metra og ÓRG lét minnka Flugstöðina Leifsstöð, sem var svo stækkuð örfáum árum síðar - aðal atriðið að eiga síðasta orðið hversu vitlaust sem það er eins og hjá þessum
Nú situr þjóðin uppi með tvo eða þrjá "bastarða" Herjólf sem passar illa í það sem hann á að sinna og svo hina sem ég nenni ekki að nefna hér en hef þó gert hér ofar.
Það er Steingrímur Joð sem á að skammast sín og hunskast heim til sín
Og skammastu þín Árni Johnsen | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Skemmdarvargar "gómaðir" .......
Þriðjudagur, 7. september 2010
þörfin fyrir að skemma fyrir öðrum - skrítinn lífsstíll þetta
hver ber endanlega tjónið sem þessir ungu drengir hafa ollið ?
Veggjakrotarar gómaðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Siglingastofnun stendur við þetta vænti ég ...... árið er 2006 hér
Þriðjudagur, 7. september 2010
17.2.2006
Bakkahöfn er valkostur
Nýlega lauk hjá Siglingastofnun Íslands lotu rannsókna sem staðið hefur yfir síðan haustið 2005 þar sem kannað var hvort unnt væri að byggja ferjuhöfn á Bakkafjöru og halda uppi áætlunarsiglingum milli Vestmannaeyjahafnar og Bakkafjöru allan ársins hring.
Ekki eru sýnilegir neinir tæknilegir meinbugir á því að byggja ferjuhöfn á Bakkafjöru og halda úti ferju á siglingaleiðinni milli Vestmannaeyjahafnar og Bakkahafnar með fullu öryggi allt árið.
Öldumælingar og líkantilraunir hafa leitt í ljós að einungis þyrfti að fella niður um 1,6% áætlunarferða ferju á þessari leið á ársgrundvelli. Ferðir ferjunnar munu aðeins falla niður í 3-4 daga á ári vegna veðurs þannig að áætlun hennar verður áreiðanleg.
****
Nokkrar lausnir eru færar, en nú þarf að takast á við uppkomið vandamál - þarf ekki neina sérstaka svartsýni bara taka á málunum og leysa þetta verkefni.
Þá er það Þorlákshöfn eða
Mánudagur, 6. september 2010
í framtíðinni verður að staðsetja "dælupramma" í Landeyjarhöfn, það er víða gert erlendis í höfnum sem settar hafa verið upp við "svipaðar" aðstæður - en þangað til og ef að minnstri grunur er á því að skipið geti tekið niður eða jafnvel strandað og þannig stofnað skipi, farðþegum, áhöfn og farmi í hættu þá ætti að fara mjög varlega í að nota þessa "aðstöðu"
Ekki þarf nema einn stein úr hafnargarðinum eða utan af hafi til að rífa gat á skokkinn, "nota bene" það eru oliutankar í þessu skipi eins og öðrum
Herjólfur hægði á sér í drullunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eflaust er til útskýring á þessu öllu ?
Föstudagur, 3. september 2010
Vissulega þarf að skoða þetta mál allt og það þótt fyrr hefði verið
Skil bara ekki til hvers það þarf milliliði þarna - nær væri að sá kostnaður allur nýttist beint til framleiðanda sem skilaði sér svo með lægra verði til neytenda
eru þetta hvað 60þúsundmilljónir sem Bændasamtökin fá að sýsla með í heild ? meira kanski ........
Greiðslur til bænda rangt færðar í bókhaldi ríkisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Segir sig sjálft .........
Föstudagur, 3. september 2010
Þessi ríkisstjórn er ekki að gera nokkurn skapaðan hlut af viti
af sjálfselsku, grimmd og illsku rær af öllum kröftum gegn þér og mér ...........
3,1% samdráttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Varla lausn hér en ágætt hjá þeim kínverska ............
Fimmtudagur, 2. september 2010
hversu "djúpt" í jörð nær eignarhald lóðareiganda
ef grafið er vítt og breitt
nú svo eru það fasteignagjöldin og allt það dót
Gróf neðanjarðarheimili vegna hás húsnæðisverðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
»Mér líður eins og ég sé rétt að byrja«
Fimmtudagur, 2. september 2010
Nóbelsverðlaun tónlistarinnar, Polar-verðlaunin sænsku féllu í hlut Bjarkar Guðmundsdóttur, hef kanski ekki verið neinn sérstakur aðdáandi Bjarkar en þetta er frábær árangur hjá henni, hvatning til margra og okkur til mikils sóma tel ég.
"Ég bara geri þetta og þetta, og síðan geri ég þetta og þetta. Ég get ekki horft á þetta í einhverju samhengi, mér líður eins og ég sé rétt að byrja".
Einhversstaðar stendur; Lofa skal það sem vel er gert
Mér líður eins og ég sé rétt að byrja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |