Stórhöfðingjar félagarnir í Lionsklúbbnum Ásbjörn

Færðu Rebekku Maríu Jóhannesdóttur peningastyrk í dag

Hún missti móður sína í síðasta mánuði og föður sinn fyrir tveimur árum síðan. Rebekka, sem á sjálf von á barni eftir um það bil tvo mánuði, á tvo bræður sem hún hyggst ala upp hjá sér eftir fráfall foreldra sinna. Bræður hennar eru sjö ára og tæplega tveggja ára og saman búa þau í íbúð í Hafnarfirði ásamt ömmu sinni.

Auk styrkjarins sem Lionsklúbburinn Ásbjörn færði Rebekku í dag hyggst klúbburinn greiða fyrir skólamáltíðir eldri bróður hennar í vetur.

Vona að Rebekku og fjölskyldu hennar gangi allt í haginn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þatta er gott framtak hjá þeim Ásbjarnar ljónum. Ég vona innilega að þetta gangi allt upp hjá Rebekku.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.9.2009 kl. 22:03

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Óska litlu fjölskyldunni alls hins besta.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.9.2009 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband