Heimatilbúið vandamál sem auðvelt er að lagfæra

laun í fiskvinnlu hafa verið mjög léleg, vinnuaðstaða öll er oft á tíðum mjög svo ábótavant, það að vinna í fisk hefur verið keyrt niður móralskt af hálfu SF í mörg mörg ár, ég held því fram að það hafi verið gert til að geta lækkað launin og dregið inn fólk erlendis frá, það er ekki í boði lengur


mbl.is Barningur að fá fólk til fiskvinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Katrín Árnadóttir

Hárrétt hjá þér, láglaunatvinnurekendur þurfa að fara að líta í eigin barm. Atvinnuleysisbætur eru smánarlega litlar  140 þúsund í mesta lagi. Ef launafólk telur sig hafa meira út úr því að vera á atvinnuleysisbótum fremur en að vinna. Þá hljóta launin fyrir erfiðisvinnu eins og fiskivinnan er að vera mjög léleg. Hvað ætli fólk fái í laun að frádregnum bónusi?

Guðrún Katrín Árnadóttir, 18.6.2009 kl. 09:20

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Laun eru léleg og atvinnutryggingin ekki nein, fólk sent heim heilu og hálfudagana eða viku í senn launalaust jafnvel, þessu þarf að breita og upphefja þetta starf til betri og eða hærri vega. SF ætti að sjá sóma sinn í því að bjóða fólki sem vinnur þessi störf nýtt upphaf.

Eitt sinn þótti með eindæmum lélegt að vera "russlakarl" í dag er það ekkert öðruvísi en önnur vinna sem þarf að vinna, sama gildir í raun með öll störf.

Jón Snæbjörnsson, 18.6.2009 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband