Nýttu sér glufur á gjaldeyrisreglum - STOP

Þremenningarnir, sem urðu uppvísir að brotum á gjaldeyrisviðskiptum hjá Askar Capital, nýttu sér þann mismun sem er á gengisskráningu Seðlabanka Íslands og skráðu gengi gjaldmiðla erlendis. Brot þeirra komu ekki í ljós fyrr en þeir höfðu látið af störfum hjá fjárfestingabankanum en engin gjaldeyrisviðskipti hafa verið stunduð hjá bankanum frá því gjaldeyrishöftin voru sett á í lok síðasta árs.

Ef við ætlum að verja okkar gjaldmiðil þá verður að herða til muna viðurlög er varða misnoktun á gjaldmiðli okkar allra íslendinga.

Hér má ekki gefa neinn afslátt - verður að vera kristal tært hvað bíður viðkomandi sé reynt hið minnsta að græða á íslenskum almenning


mbl.is Nýttu sér glufur á gjaldeyrisreglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þú átt evru þá vilja ríkisbankarnir borga þér 160 krónur fyrir hana. Ef þú ferð með þessa evru erlendis þá færðu 300 krónur fyrir hana. Og ef þú selur fisk þá geturðu fengið nær tvöfalt verð í krónum en ef þú verslaðir í evrum og skilaðir þeim inn til ríkisbankanna. Ef þú færð tvöfalt verð fyrir fiskinn þá ættu að vera minni líkur á því að þú þurfir að segja upp fólki og þú gætir jafnvel greitt hærri laun. Nei, setjum frekar fyrirtækin á hausinn og förum á atvinnuleysisbætur en að láta einhvern græða.

sigkja (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 11:30

2 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Þjóðin hlýtur að tapa á því á endanum að siðblindir kapítalistar fari fram hjá gjaldeyrishöftunum. Það á að ákæra þessa siðblindingja fyrir landráð.

Björgvin R. Leifsson, 8.4.2009 kl. 11:38

3 identicon

Þegar gengið stefnir í það að verða hagstætt útflutningsgreinunum þá er gripið til handstýringar, lög sett og regluverk samið. Enda verða kjósendur að geta verslað sér sjónvörp á góðu verði, fæstir þeirra vinna hvort sem er hjá siðblindu kapitalisku fiskverkendunum.

sigkja (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 12:23

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ef sett eru lög og reglur þá verður að fara eftir þeim - það hangi mun meira á "naglanum" en sala á fisk og sér gróðrafíkn fiskútflytjenda - við verðum að horfa á heildamindina ef ekki núna þá aldrei

Jón Snæbjörnsson, 8.4.2009 kl. 13:25

5 identicon

Hvers vegna gefa menn sér það að löggjafinn sé óskeikull? Að allar ákvarðanir seðlabanka og ríkisstjórnar séu réttar og þjóðfélaginu fyrir bestu? Er eitthvað í aðgerðum þessara aðila undanfarin ár sem bendir til þess? Getur verið að gjaldeyrishöftin séu ein stærstu mistök síðustu mánaða? Það er ekki nokkur leið að sjá heildarmyndina ef maður setur upp þau gleraugu að annar aðilinn geti ekkert rangt gert og hinn hljóti að vera siðblindur glæpamaður.

"Ef sett eru lög og reglur þá verður að fara eftir þeim" hvor sagði þetta, Stalin eða Hitler, voru það e.t.v. báðir?

"Það á að ákæra þessa siðblindingja fyrir landráð" Hvor er þá siðblindari, sá sem setur ólögin eða sá sem neyðist til að brjóta þau sér til lífsviðurværis? Það eru ekki allir tilbúnir að gefa ríkinu allt og lifa svo á því sem ríkið skammtar.

"Ef við ætlum að verja okkar gjaldmiðil" Nú er búið að banna verslun í Íslenskum krónum, alþingi bannar útflytjendum að taka við greiðslum í krónum. Hvað á markaðurinn að halda þegar við tökum ekki einu sinni sjálf okkar eigin gjaldmiðil? Alþingi er ekki að verja gjaldmiðilinn með því að neita að taka við honum.

"Hér má ekki gefa neinn afslátt - verður að vera kristal tært hvað bíður viðkomandi sé reynt hið minnsta að græða á íslenskum almenning" Nú er orðið ljótt að græða, jafnvel glæpsamlegt. Nú á helst að reka allt á tapi, fyrirtækin og heimilin. Hið opinbera á svo víst að deila út styrkjum til þeirra sem þeim eru þóknanlegir. lifi Sovét.

"Þjóðin hlýtur að tapa á því á endanum að siðblindir kapítalistar fari fram hjá gjaldeyrishöftunum." Nema þeir sem settu höftin séu hinir siðblindu og þeir sem fara framhjá þeim séu bjargráð þjóðarinnar. Það eru ekki allir sammála um ágæti gjaldeyrishaftanna. Og hvort þau voru sett af efnahagsástæðum eða eiginhagsmunagæslu ráðamanna.

Reynið svo að muna að sá sem setur lögin, sá sem átti að passa uppá að svona færi ekki, sem var grýttur með eggjum og gerir hvað sem er til að halda sínu þingsæti, er sá sem þið virðist nú telja óskeikulan og hafinn yfir gagnrýni.

sigkja (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 16:39

6 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

það hefur verið í tísku hjá mörgum að svíkja undan skatti, þótti bara flott, en það er ekki það sem við þurfum hvorki fyrr né nú, ef  hugsunin nær ekki lengra þá náum við sjálf ekki lengra

Jón Snæbjörnsson, 11.4.2009 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband