Er þetta ekki spor í rétta átt

hefur ekki verið beðið um að þessir menn reyni að upplýsa "lýðinn" um það hvað varð um alla þessa peninga og af hverju þeir fengu svona stór hlunnindi, starfslokasamninga ofl - þetta eru svakalega miklir peningar sem fáir fengu - en er Bjarni ekki að reyna

 

Svo velti ég fyrir mér er hægt að skila - hver fær þessa peninga ?


mbl.is Endurgreiddi 370 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

    Rúv:                    31. janúar 2008 Bjarni Ármannsson fékk 700 miljónir króna í starfsloka-samning þegar hann hætti sem forstjóri Glitnis á sl. ári. Þrátt fyrir að Bjarni hefði gegnt forstjóraembættinu í 4 mánuði síðasta árs, fékk Bjarni 90 miljónir króna í laun frá Glitni í fyrra.Þá hagnaðist Bjarni um 381 miljón króna þegar hann nýtti sér forkaupsrétt á hlutabréfum. Eyjan:                      16. maí 2008 “Undanfarin tvö ár kostaði það Glitni 2,9 milljarða króna að hafa sextán æðstu stjórnendur sína í vinnu. Það gera rúmlega 181 milljón á mann…. Fyrir 16 æðstu menn bankans. Eyjan:                         16.maí 2008 Bjarni Ármannsson einn fékk um 790 milljónir króna í greiðslur frá Glitni á árunum 2006 og 2007 en hann lét af störfum á síðasta ári. Það gera rúmlega 1,5 milljón krónur á dag—hvern einasta virkan vinnudag 2006 og 2007. Vísir.is:                       27.maí 2008 Þegar Bjarni Ármannsson lét af störfum hjá bankanum samþykkti stjórnin að Glitnir myndi kaupa hluti hans í bankanum á 29 krónur á hlut en sama dag var meðalverð á hlutnum á Kauphöll Íslands 26,6 krónur. Hluthafar Glitnis borguðu því um 10 % YFIRVERÐ miðað við skráð gengi Kauphallar Ísl. Fyrir bréf forstjórans. Aðrir hluthafar fengu að sjálfsögðu ekki slíkt yfirverð fyrir bréf sín 

leifur (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 22:34

2 identicon

þetta er allavega fyrsta sporið á leiðinni til baka - hver veit kanski fara fleiri að ganga með.

Eyþór Örn Óskarsson (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 00:36

3 Smámynd: Frosti Heimisson

Ég tek ofan fyrir Bjarna að taka þetta skref.  Ég vissi svosum að það myndi ekki skipta neinu hverju Bjarni hefði skilað, krónu eða milljarði (gagnvart æstum lýðnum)... en að mínu mati er þetta gott framtak hjá honum og vert að taka sem fyrirmynd.

Frosti Heimisson, 6.1.2009 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband