Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Sukk út í eitt - fríðindi og skattleysi Sendiherra sem og aðstoðarmanna allra
Laugardagur, 7. mars 2009
Það er liðin tíð að menn geti nú ferðast um á fullum dagpeningum í opinberum heimsóknum þar sem allt er greitt fyrir fólk sem og maka ?
Hefur verið með eindæmum en betur má ef duga skal, enn eru sendiherrar sem og aðstoðarmenn allir skattlausir
![]() |
Steingrímur sker í dagpeninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Framboð og kosningarloforð
Laugardagur, 7. mars 2009
lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum samtals mörghundruð-milljarða króna, samkvæmt lánabók Svindlbanka, en Gagnið hefur hluta hennar undir höndum. Um er að ræða lán til vina og fleiri vina sem og eiganda og stærri eiganda sem að vísu var næstum gjaldþrota, einnig voru lán veitt svindlvinum þessara aðila
Hvað með kosningarloforð um að svona "lið" verði upprætt, eigur og peningasjóðir skilað til baka
Spillingarliðið burt
Svo gjörsamlega siðlaust
Laugardagur, 7. mars 2009
Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum samtals 478 milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum. Um er að ræða lán til Ágústs og Lýðs Guðmundssona, Ólafs Ólafssonar, Roberts Tchenguiz og félaga í þeirra eigu.
svo fá þessir menn að vera með prokuru áfram
Er þetta bara allt í lagi ?
![]() |
500 milljarðar til eigenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ætla að skapa 4000 ársverk
Föstudagur, 6. mars 2009
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra -nóg að gera hjá Jóhönnu
Um er m.a að ræða störf í byggingariðnaði, við byggingu snjóflóðavarnagarða, gróðursetningu og grisjum, hækkun á endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar, ferðaþjónustuverkefni, fjölgun í hópi þeirra sem njóta listamannalauna og við inn- og útflutning á óunnum fiski.
hér áður fyrr í upplestri áhafna fiskibáta þá var kokkurinn oft lesinn upp síðastur og það á eftir skipshundinum - nú er það fiskurinn sem kemur á eftir trommleikaranum og byggingu snjóflóðavarnargarða -
þetta er kanski ekki forgangsröðum bara æxlast svona
![]() |
Ætla að skapa 4000 ársverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Segir aðalfundi bankanna hugsanlega ólöglega, ekki hægt að gera neitt rétt ?
Föstudagur, 6. mars 2009
aðalfundir nýju ríkisbankanna, stjórnir þeirra og ráðstafanir kynnu að vera ógildar þar sem ekki hefði verið fylgt lögum um opinber hlutafélög.
lög um opinber hlutafélög eru mjög afdráttarlaus um hvenær fyrirtæki ættu að falla undir lögin, en þau gerðu meðal annars kröfu um um jafnræði milli kynja í stjórnum.
fjármálaráðherra taldi það hins vegar langsótt að fyrirtæki sem lentu tímabundið í umsjá ríkisins teldust opinber hlutafélög en kvaðst þó ætla að taka ábendinguna til skoðunar.
það sem ekki er hægt að "karpa" um - ekki hægt að gera neitt rétt - tíminn sem fer í svona "kjaftæði" ætlar engan enda að taka
http://www.visir.is/article/20090305/VIDSKIPTI06/162250246
ákærðir fyrir markaðsmisnotkun
Föstudagur, 6. mars 2009
Fyrrverandi sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs hjá Kaupþingi, hefur verið ákærður fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á bréfum Exista í janúar og febrúar á síðasta ári
Málið er eitt fyrsta sakamálið vegna brota í aðdraganda bankahrunsins. Töluverð umræða hefur verið um að í undanfara bankahrunsins, hafi verðbréfamiðlarar reynt að halda gengi bréfa í stóru bönkunum þremur og öðrum félögum uppi, með svipuðum aðferðum og hér um ræðir.
Nú þurfa menn að vera snöggir - hér má ekki draga neitt á langinn - sekur eða saklaus
http://www.visir.is/article/20090306/VIDSKIPTI06/980157021
ábyrgð á hruni bankakerfisins
Fimmtudagur, 5. mars 2009
62,7% aðspurðra telja að eigendur og stjórnendur bankanna hafi verið meðal þeirra sem hafi valdið mestu um bankahrunið í haust.
þetta er mjög alvarlegt mál og dapurt að ekki nokkur maður hafi verið dreginn til ábyrgðar enn
en nú vil ég fara að frétta hvað á að gera Í DAG OG Á MORGUN! . það er nóg af fortíðarkjaftæði! . og búið að skipta öllum út . nema Þorgerði og Einari Guðfinnss. , nú og svo þessir sem telja sig "vamlausa" Ingibjörgu Sólrún, Össur, Jóhanna og götustrákurinn
![]() |
Stjórnendur bankanna taldir bera mesta ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Útflutningur á vinnuafli í fiskvinnslu
Miðvikudagur, 4. mars 2009
Þykir ekki nógu fínt að vinna við sjávarafurðir hér heima ? það vöru höft en voru tekin af í tíð síðustu ríkistjórnar - var í formi tolla að ég held - auðvitað á að reyna að snúa þessari vinnslu heim að mestu leiti - sem og að gefa krókaleifi frjáls
látum verkin tala
Því sagði Jón Gunnarsson ekki neitt fyrir löngu síðan, er Tónnlistarhúsið mikilvægara en flest annað
Þriðjudagur, 3. mars 2009
Það eru þingmennirnir Jón Gunnarsson, Jón Magnússon og Kjartan Ólafsson sem leggja til að bygging sjúkrahússins verði slegið á frest í þingsályktunartillögu sem var dreift á Alþingi í dag.
,,Ljóst er að fresta verður þeirri framkvæmd um óákveðinn tíma vegna stöðu þjóðarbúsins.
Ég get alveg verið sammála, en hver er þá forgangsröðunin
Nú kjafta allir hver í kapp við annann
http://visir.is/article/20090303/FRETTIR01/424935245/-1
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarhúsið umfram Gæsluna
Þriðjudagur, 3. mars 2009
,,Landhelgisgæslan sinnir gríðarlegum öryggismálum fyrir sjómenn og aðra landsmenn. Sjómennafélagið skorar því á ráðamenn þessarar þjóðar að fara forgangsraða málum eftir vilja landsmanna," segir í ályktun stjórnar félagsins.
Er annað hægt en að vera sammála þessu
hvert stefnum við, enn og aftur vegið þungt að öryggi sjómanna og landsmanna allra
sem betur fer erum við flest sem komumst vel frá eða sleppum við slys - en það eru samt svo margir sem eru ekki jafn heppnir og við hin - að þeim þurfum við að gæta vel
http://www.visir.is/article/20090303/FRETTIR01/342052992
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)