Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Viljum við þetta sem friðsæl þjóð ....

Eg er þeirrar skoðunar að Ísland eigi að fylgja yfirlýstu hlutleysi og halda okkur utan allra refsi - eða kúgunaraðgerða annarra þjóða.

Að fylgja hlutleysi af einurð - skapar þóðinni virðingu stærri þjóða.

(og gera Ísland kanski valkost í friðar -  og sáttaferli milli stærri þjóða)


mbl.is Ísland styður á þriðja tug þvingana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gerst áður ....

ekki í fyrsta skiptið hér heima sem einstaklingur missir auga við eða á golfvelli eftir að hafa fengið í sig golfkúlu ....


mbl.is „Algerlega hræðilegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

allt of oft að gerast !

Það er allt í skötulýki hjá okkur! Vegamál í algjörum ólestri, svo að verður að fara til Afríku til að finna samjöfnuð!

Það er skautað yfir allar aðvaranir og lokanir á vegum - bara til að græða krónunni meira á ferðamanninum.

Ábyrgðin liggur hvergi - Ferðaiðnaðurinn svíkst um að taka tryggingar - og ef þær eru fyrir hendi er alltaf smáa letrið, sem fríar söluaðila að þurfa að borga  tjónþola.

Allar vegamerkinga og aðvörunarskilti hjá okkur eru í algjörri lágmarksstærð af hollustu við ósnorta náttúru!

Þær eiga helst ekki að sjást - svo þær spilli ekki útsýninu!

 


mbl.is Banaslys í Steinsholtsá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við þurfum ekki að hafa áhyggjur ....

hvorki Samfo né Piratar muni leggja þetta til ... og ekki neinn hinna heldur !


mbl.is Hafna launahækkunum þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

skip án stefnis og skuts .... ?

Furðuleg frétt! - verður áhöfnin af Bæjarskrifstofunni í Eyjum!

Læra á skipið - er vélin handsnúin! - Kláfur sem verður dregin fram og tilbaka á vírum!

 

Skrítið skip þetta ?


mbl.is Herjólfur kemur við erfið veðurskilyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

eitt skref í einu t ....

Mjög gott mál! - alveg nógu langt til að Eyjaskeggjar gleymi honum ekki!

Næsti vinnustaður verður á Alþingi!




mbl.is Elliði ráðinn bæjarstjóri í Ölfusi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ófremdarástand .....

hagsmuna hverra er þessi stofnun eginlega að gæta í hæsta máta undarlegt að vera í deilum aftur og aftur frekar en að koma fram með góð og gild fyrirbyggjandi fordæmi !

 

hvar er ferðamannaskatturinn ?


mbl.is Kanna lögmæti lokunar við Brúará
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

óskiljanlegt !

Það var skiljanlegt á vakt Þorgerðar Katrínar - að allt yrði útlendingum falt.

En að Sigurður Ingi landbúnaðarráðherra skuli ekki vakna af blundi og bregðast við er nánast meira en furðulegt!


mbl.is Eiga um 40 jarðir á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hvað tekur það mörg ár að verða aftur jómfrú í pólitík ?

Þetta er nú klassískt! - ætla öðrum að gera hlutina sem hún gafst uppá!

Hvað gerði Þorgerður Katrín Menntamálaráðherra með launajöfnuð í sínu ráðuneyti?

Hvað gerði Þorgerður Katrín Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra með launajöfnuð í sínum ráðuneytum?

Hvað tekur það mörg ár að verða aftur jómfrú í pólitík?

Annars má ekki gleyma að samið var við lækna, langt yfir getu – vegna þrýstings frá almenningi!

Sem eru nú með hæstu laun á Norðurlöndum og vilja ólmir koma heim í umhverfi sem leyfir að sniðganga Stimpilklukku á spítalanum – og hafa svo heimild að reka stofur úti í bæ – ríkið borgar!

Væri nú ekki hægt að leggja fram kröfur ljósmæðra svo þjóðin vissi um hvað málið snýst!

Er það staðreynd að ljósmæður vinni 60 – 80% vinnu en vilji 100% laun?

Víst vinna þær á öllum tímum sólarhrings og fá þá næturvinnu borgaða!

Þær hrukku í baklás þegar stungið var uppá að óháð nefnd mæti vinnuframlag þeirra – Hvað veldur?

Skiljalega er ekki ótakmarkað í pottinum – en má ekki semja til styttri tíma – og hækka þá aftur?

Núna lýtur þetta út einsog pólitískt skemmdarverk!

 

 

http://www.visir.is/g/2018180718934


svona er þjóðin .....

Svona er þjóðin í fjötrum fagstétta.

Sjálfsagt að leita vinnu til annarra landa, en öllu skellt í lás hjá okkur sjálfum.

Svo sitjum við uppi með forpokað þjóðfélag fullt af fordómum og þröngsýni.




mbl.is Stöður ekki mannaðar með fólki að utan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband