Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Nú er það þjóðstjórn, hún stóð til boða Geir en þið vilduð ekki taka í þær hendur sem að ykkur var rétt

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins í dag, að þegar horft væri til baka væri það hans niðurstaða, að hyggilegast hefði verið að freista þess strax í
haust að mynda þjóðstjórn allra flokka.

„Hún hefði hugsanlega getað setið út veturinn, gert nauðsynlegar ráðstafanir í efnahags- og atvinnumálum og undirbúið þingkosningar. Vandinn var sá að Vinstri grænir, sem vildu komast í þjóðstjórn, vildu láta kjósa strax í nóvember og voru algjörlega á móti samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Samfylkingin var hins vegar á móti þjóðstjórn af ýmsum ástæðum og ég gaf þennan kost frá mér að vandlega athuguðu máli," sagði Geir í ræðunni.

Það sem ég sá í sjónvarpi okkar landsmanna í hruninu var að td Steingrímur bauð allar þeirra hendur til að aðstoða strax, því var ekki svarað af neinum frá þáverandi ríkisstjórn, forsætisráðherra sem þá var Geir Haarde hunsaði þann möguleika, af hverju veit ég ekki en hann greip ekki það gullna tækifæri sem hefði hugsanlega "hnýtt" þjóðina meira saman en nú er.

hver á þessi fleigu orð,  sameinaðir stöndum við sundraðir föllum við


mbl.is Þjóðstjórn hefði verið hyggilegust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag klukkan 17 í Laugardalshöll

Fundurinn hefst á að fagna stuttlega 80 ára afmæli flokksins, sem er í ár en síðan tekur við ræða Geirs H. Haarde, formanns flokksins, sem hefst klukkan 17.30. Athöfnin í dag er öllum opin en fundinum verður svo framhaldið föstudag, laugardag og sunnudag og taka þá fulltrúar á landsfundi þátt í störfum hans

Ég undrast enn að ekki nokkur manneskja innann Sjálfstæðisflokksins hafi ekki þor í að bjóða sig á móti Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sem nú leikur sér að eldinum á kostnað okkar hinna.

Það er ekki lengur hægt að treysta á að við þessir "venjulegu" íslendingar séum enn með þetta svokallaða gullfiskaminni sem pólitíkusar hafa hingað til getað stólað á.

 


Breikkun Suðurlandsvegar kostar 15,9 milljarða

Leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss yrði 2+2 vegur að undanteknum kafla í Svínahrauni og á Hellisheiði sem yrði 2+1 vegur. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna

Tími til kominn,  gæti það verið þjóðfélaglega hagkvæmt í árferði eins og við erum í núna og verðum aðeins áfram  ef svona miklar framkvæmdir eru látnar dragast aðeins á langinn þá á ég við að koma fleiri árstörfum að ?

Má endurskoða útboðsgildi

 


mbl.is Breikkun kostar 15,9 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo telja þeir sig bezta, heldur betur ekki

Samfylkingin hefur ætíð mælt fyrir auknu gegnsæi varðandi fjármögnun

Samfylkingin ætlar að endurgreiða styrk sem flokkurinn þáði frá Íslandspósti í kosningabaráttunni árið 2007 að upphæð 150.000 krónum, þar sem það brýtur í bága við lög sem samþykkt voru árið 2006 og tilgreina að stjórnmálaflokkum sé óheimilt að þiggja framlög frá fyrirtækjum eða félögum í opinberri eigu.

og það sem þeir hafa reint að leyna þessu - gott að upp komst um meint svik þó gamalt sé

þeir borga væntanlega vexti í ofanálag ?

er kanski tilefni til ákæru af hálfu Ríkisskattsstjóra


mbl.is Samfylkingin bætir fyrir mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki bara framhald af hinu öllu saman, BYR og hvað þetta heitir eða hét

VBS fjárfestingarbanki setur sig í samband við skilanefnd SPRON til þess að hefja viðræður um kaup á Netbankanum, nb.is, dótturfélagi SPRON, þegar blekið er vart þornað á samningi VBS við ríkissjóð vegna 26 milljarða skuldar sem varð til í svokölluðum endurhverfum viðskiptum VBS við Seðlabankann.

Jón Þórisson, forstjóri VBS fjárfestingarbanka, segir að með kaupum á Netbankanum yrði styrkari stoðum skotið undir rekstur bankans. „Bætir það rekstrargrundvöll VBS og verðmæti. Þá eykur það möguleika okkar til að greiða lánið frá ríkinu til baka. Ætti lánveitandinn að vera ánægður með það.“

Eru hótanir í þessum orðum Jóns, við borgum ekki ef við fáum ekki netbankann, eru ekki allir skíthræddir við svona ummæli frá "virtum" manni úr "fjármálaheiminum"


mbl.is Samdi um 26 milljarða lán og vill kaupa Netbankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú bara asnalegt hjá framkvæmdastjóra flokksins

Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins segir, að flokknum hafi orðið á mistök árið 2007 þegar hann þáði fjárframlög frá fyrirtækjum í opinberri eigu.

margur verður af aurum api


mbl.is Skilar framlagi Neyðarlínunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sér sækir líka heim, litli mjaltadrengurinn

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins - ekki líst mér á, hvað skildi hann núna vera að bralla sá smjörgreiddi
mbl.is Ekki íhugað að auglýsa embætti sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞKG - um viðvaranir Davíðs Oddssonar í feb 2008

Hann (Davíð Oddsson) er opinber starfsmaður og þarf að passa sig á hvað hann segir við yfirmenn sína."

Hversu langt nær þessi kona á Landsfundinum getur skipt sköpum fyrir Sjálfstæðisflokkinn ? 


Ég hugsa þeim þegjandi þörfina þessum útrásarvíkingum,

Steingrímur sagði í viðtalinu ljóst að draga verði úr halla ríkissjóðs á næsta ári um  35-50 milljarða. Til þess væru tvær leiðir, að minna útgjöldin eða auka tekjurnar. Sagði Steingrímur það ekki hægt að ná þessu fram með niðurskurði og ekki væri heldur hægt að ná þessu með auknum sköttum.  Því yrði að fara blandaða leið.

 http://www.mbl.is/mm/frettir/

Öll verðum að að taka á okkur ábyrgðir, og þeir sem hafa meira verða væntanlega að gefa aðeins meira eftir en hinir sem minna hafa eða ekki neitt

 


keppa við mjög öflugan mann

„Ég held það hafi valdið því að það kemur fram ákveðin krafa um endurnýjun

víst er sigurinn sætur, munurinn hefði þó mátt vera meira afgerandi


mbl.is „Ákveðin krafa um endurnýjum “
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband