engin fær umboð ....

Hann vísar því til þingsins – allir eru slegnir og sjá á eftir ráðherrastöðu!

Forvitnilegt að sjá hvernig þingið afgreiðir fjárlögin!
Hvaða fjárliðir hækka – og hvort einhverstaðar verði skorið niður – eða hvort
eyðslufylliríið er skollið á ! – þar kemur í ljós hverjir geta unnið saman.


hver er hissa .....

það eru til fullt af vel reknum og fjárhagslega stöndugum sveitafélögum sem skýla sig á bak við þau verr settu og eða illa reknu, er ekki löngu tímabært að slíta sig frá láglaunastefnunni og borga betur þið sem það getið og upphefja öll kennara störf í bæjarfélaginu til hærri vegar
til viðbótar að hætta að fela þann kostnað sem hver nemandi kostar allt frá leikskóla og upp úr 

 

 


mbl.is Kornið sem fyllti mælinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

af Kjararáði .....

það er undarlega samsett – þ.m. talinn Jónas R. Jónsson sem var forstjóri
Fjarmálaeftirlits fyir hrun – allir á fullu að tryggja sér og kerfinu ofurlaun.

Verður gaman að sjá hvað nýkjörnir fulltrúar gera á Alþingi

Niðurstaða: Gert er gert! – og ekki hægt að leiðrétta tilbaka! – bara blása
þræl hneiksluð í fjölmiðlum – en taka svo við þessum launum – samt!

 

??


afgerandi sigur ...... ?

Það undrar mig að Framsókn skuli ekki njóta verka sinna! – þeir gerðu margt og dýrt - fyrir alþýðuna.
Fæðingaorlof – lánakjör fyrir 1. íbúð – lánaleiðréttingu – en njóta þess svo ekkert.

Stefna D komst til skila – en vinstra liðið er ekki búið að gefast upp!

Nú á VG að fá umboð frá Guðna Th – eða Viðreisn – bara ekki Bjarni, segir Ottó Proppe sem treystir á að Katrín taki hann í stjórnina.


Stjórnar ....

Stjórnarmyndun Pírata og VG með dvergunum tveim – áður en talið er upp úr kjörkössunum er barnalegur gjörningur – og skiljanlegt að Viðreisn vilji ekki láta orða sig þá samkomu.

Kanski fá þessir flokkar styrk til að mynda ríkisstjórn – en kanski! – það getur ýmislegt skeð í viku fyrir kosningar – Skoðanakannanir eiga það til að gefa skakka mynd.

Allt hjal um nýja Stjórnarskra sem þjóðin valdi er markleysa og óskalisti fárra “álitsgjafa” - samþykkt með um 20% atkvæða – alltof lítið til að vera marktækt, sem vilji þjóðar.
Ekki frekar en mótmælahópur á Austurvelli, er ekki þjóðin!

Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt ábyrgð í stjórn landsins á síðasta kjörtímabili – og lagað til eftir ógnarstjórn VG og Samfylkingar. Hann er með mótaða framtýðarsýn á því hvernig betur má fara og treystir þjóðinni til að taka þátt í þeirri sín.


út úr kú ?

Plús fyrir Viðreisn – á þessu græðir hún!

Allir verða óánægðir – Bændum fynnst þeir fá of lítið – almenningur
er bara með óbragð í munni! – enn og aftur erum við með verndartolla
og MS algerlega friðuð fyrir eðlilegum viðskiptaháttum. – Alltof lítið
gefið frjálst og ekkert eftirlit. Upprunamerking á kjöti engin !

Viðreisn græðir!


mbl.is Gerir athugasemdir við tollverndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugvöllinn þar sem hann er ?

Eg er fylgjandi flugvellinum – og skil ekki þessa þráhyggju að byggja þurfi í þessari mýri!

Úr því að Landspítali verður á sínum stað og flestar þjónustustofnanir ríkisins líka þá er þetta staðsetning sem er ótrúlega hagkvæm fyrir landið allt. Stutt í allar útréttingar fyrir landsmenn.

Þéttum núverandi byggð – og sjáum svo til ! –

Ekkert lögmál að Reykjavík þurfi að þenjast út - og það á svona leiðinlegu landi!

– Hvað ætli margir skilji hvar lífæð landsins liggur!


það er búið að lemja það inn í fólk að dreyfbýlið sé baggi og kostnaður
og tekjur þjóðabúsins komi allar af arði banka og ferðamönnum!



Verði kosið um þetta – 
að minnst 70% vilji flugvöllinn!


mbl.is Vilja aðkomu þjóðar að flugvallarmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

mörgum er tíðrætt um hvort rétt sé að kjósa í haust ?

Það fer eftir málefnastöðu! – Verði unnið úr málefnaskrá stjórnarinnar, þá er það
ásættanlegt. – Heyri samt að kvótakaupin úr Þorlákshöfn leggjast illa í fólk.

Menn eru hundóánægðir hvað lítið gengur að afgreiða kvótamál – Hvað löggæslan er léleg -
Hvað staða heilbrigðismála er léleg – Hvað búnaðarlögin eru einokunarsinnuð og hvað
illa gengur að aflétta innflutningstollum - Hvað illa gengur að tryggja lámarkslaun í ferðamanna- og virkjanaframkvæmdum. Stjórnin hefur haft 3 ár til að laga þetta!

Jú ætli sé ekki best að koma öðrum að – til að komast til nútímans ?


ekki er nú allt í hendi ....

Píratar tala nú eins og þeir halda að útkoman úr komandi kosningum verði!

Guðni Th. talaði eins og forseti – mánuði áður en hann tekur við embætti!

Það er þetta íslenska óþol – að éta kökuna áður en hún er bökuð!

Sigmundur Davíð talar eins og hann hafi áhrif í Framsókn – en hefur hann það?

Íhaldið vill losna! – verði ekki kosið í haust, og þingið teikt inn á næsta ár,
komi Sjálfstæðisflokkurinn að tapa stórt – það munar um Ragnheiði Ríkarðsdóttir og
hvort takist að endurnýua forustu suður ! – ekki allt í hendi hjá Íhaldinu!


.... ekki batnar það ....

nú er minkurinn mættur í hænsnabú Framsóknar!
eða Alþingis öllu heldur. Sigmundur Davíð mættur til leiks og vill halda áfram!

Sakar Sjálfstæðismenn um að draga lappirnar - sem er alveg rétt, bæði
landbúnaðarsamningar og húsaleigufrumvarp Eyglóar standa í þeim.

Píratar hóta lömun á störfum Alþingis - nóg að gera hjá 3ja manna þingflokki!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband