stétt með stétt !
Laugardagur, 24. mars 2018
Nú er það bara fólkið sem tekur til varna!
Hvað réttlætir stöðu Sjálfstæðisflokksins í stjórn ef hún kemur
ekki öllum til góða ?
Hlífir þeim sem minnst meiga sín en gefur öllum tækifæri til betra lífs !
Skattbyrði lægstu launa þyngdist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
að renna upp fyrir alþingi .....
Föstudagur, 23. mars 2018
Það er að renna upp fyrir Alþingi að þetta er óðagot og allt of skammur tími til stefnu!
Ef á að taka frumvarpið upp 9. Apríl er tæpt á að það verði samþykkt.
Bæði Dómsmálaráðuneyti og Samband Sveitafélaga lýsa andstöðu vegna lítils undirbúnings en auðvitað stoppar það kanski ekki svona gælumál nýliða á Alþingi!
Enn og aftur koma upp gælumál nýliða allt betra en taka á komugjaldi ferðamanna vegatollum og læknaþjónustu í dreyfbýli!
Nei áfengi í dagvörubúðir og kjörgengi barna ! það er svo mikið POPP!
Skýrt að málið njóti yfirburðastuðnings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
að smána lýðræðið !
Föstudagur, 23. mars 2018
Eg er nú sammála Brynjari Nielssyni að þetta er svona vinsælda-mál fyrir þá yngstu!
Þetta er bara heimskulegt í meira lagi! Kosningaréttur til barna!
Unglingar sem hafa mjög ómótaðar skoðanir á sveitastjórnarmálum eru á framfæriforeldar sinna til 18 ára aldurs! Geta þeir fengið ökuskírteini fyrr en 17 ára?
Geta ekki fengið afgreiðslu í Ríkinu Eru ekki lögráða !
Hvað í ósköpunum kemur þetta lýðskrumsfrumvarp sem ætlar að renna í gegnum þingið án teljandi umræðu! Og ef 16 ára eiga að hafa kjörgengi geta þeir þá ekki sest í sveitarstjórnir? eða á bara að smala þeim á kjörstað til að kjósa vinsælasta fótboltagaurinn!
Þessi tillaga er Alþingi til minnkunar! og smánar lýðræði!
Tekist á um kosningaaldur á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ekki mín ´höll en ......
Miðvikudagur, 21. mars 2018
Það er svo auðvelt að hafa skoðun á þessu niðurrifi með eða móti!
Húsið er sagt merkilegt! en er barn síns tíma og óhæft sem sundhöll
á að byggja hótel þarna eða hagkvæma blokk?
Á meðan situr sjúkraheimili aldraða á hakanum og endurbygging sjúkrahúss!
og tvöföldun Reykjanessbrautar!
Heimila niðurrif Sundhallar Keflavíkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
það sem hinum ....
Þriðjudagur, 20. mars 2018
bara það sem hinum almenna flokksmanni - sem er yfir 45 ára - fynnst!
En auðvitað verður ekkert hlustað á hann- þó eldri hluti Sjálfstæðismanna nenni ekki að fylgja "krökkunum" og nýtt fylgi lætur á sér standa!
Styrmir skýtur á flokksforystuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
að uppskera jafnt ....
Mánudagur, 19. mars 2018
Ef það er svona góð afkoma hjá fyrirtækinu ættu starfsmenn að fá bónus Forstjórinn er á góðum launum og allir ættu að fá hlutdeild í góðri afkomufyrirtækisins s.b. Samherji þar fengu allir sama bónus.
Þekki til að hafa fengið sumarfrís- og jólabónus í hlutfalli á laun forstjórinn mest og svo starfsmenn eftir launum.
Stundum bólgin stundum magur bónus allt eftir afkomu fyrirtækisins.
Allir ánægðir og vildu fyrirtækinu gott svo bónusinn yrði hærri!
En forstjóra græðgin er alveg í takt við toppana í stjórnkerfi landsins!
Gat ekki hafa komið hluthöfum á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ég er bara ekki viss ....
Sunnudagur, 18. mars 2018
dæmigert að ríkisstjórnin er í alvöru að hugsa sér að fylgja dæmi Englendinga og Dana og mæta ekki á HM !
Nóg töpuðum við á að fylgja Evrópuþjóðum í Krím og Úkraínu stríðinu og berum þyngstu refsingu Rússa með viðskipta hindrunum! Ekkert Evrópuríki fékk viðlíka refsingu ! Nú á að bæta í og móðga Rússa enn!
Englendingar hafa nú ekki sýnt okkur neina velvild Skellt á þjóðina viðskiptahindrunum bæði í Landhelgi og fjármálum!
Íhuga að sniðganga HM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
hugnast ekki ....
Miðvikudagur, 14. mars 2018
Það er hættulegt fyrir flokk þar sem stórhluti fylgenda er ekki tölvutækur og kann ekki til að kjósa rafrænt situr eftir óánægður án fulltrúa!
En kanski er Flokkurinn að stýra atkvæðum flokksforustunni í hag! til lengdar kemur hann bara til að tapa á þessu!
( sjá hvernig rafrænar kosningar hafa farið hjá hinum)
Ennþá á Sjálfstæðisflokkurinn stóran hóp miðaldra og eldri borgara sem sýna honum Hollustu hóp sem aðrir flokkar öfunda hann af !
Vonandi ná þeir góðri nýliðun en skreppi ekki bara saman við vaxandi andlát stuðningsmanna!
Verði valinn með rafrænni kosningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...ókeypis afnot af ýmsu tagi ....
Laugardagur, 10. mars 2018
Það er lýsandi fyrir dugleysi stjórnvalda að ekki sé komin stjórn á hvernig hægt er að bregðast við ásókn túrista ekki frekar en uppgræðslu lands og myndarlega uppbyggingu vega!
Talað og talað endalaust! Ráðherrar ríkisstjórnar standa áhugalausir og tvístigandi!
Eg varð að kaupa vísa til Rússlands og líka til Indlands hvað er að því að kaupa komupassa í Leifsstöð!
Einu vandræðin eru þau að þeim skatt verður stolið í önnur gæluverkefni en til væri ætlað Svo vísað sé í gjöld á bensín sem eru eyrnamerkt endurbótum þjóðvega!
skjallari hún Katrín .....
Föstudagur, 9. mars 2018
Hún er nú bara að skjalla Sigmund Davíð!
Eg legg nú ekki mikið uppúr svona tali! heldur hvernig hún afgreiðir þessa tvo Þingmenn sem eru í 10 nefndum á Alþingi og geta ráðið úrslitum í afgreiðslu mála!
Að þeir sátu ekki hjá við vantraust á ráðherra í stjórn VG er svo arfa heimskulegt og sýnir að þeim er ekki treystandi að fylgja stefnu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur!
Hrósaði Sigmundi fyrir framgöngu hans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |