Algjörlega stjórnlaust
Fimmtudagur, 11. desember 2008
Dapurt ástand hér að verða - held að við séum að nálgast moldarkofana aftur - - skattar upp - nefskattar settir á - auðmenn sitja enn borubrattir og einir að kjöt-kötlunum - farinn að gruna að við getum ekki ráðið við okkur sjálf og hvað þá þjóðfélagið í heild - soddans barbarar - hér er handstýrt þegar það hentar annars sjálfstýringin á en algjörlega eftirlitslaust - svo stutt í grinningar að hrollur fer um mann - ESB er það lausnin - farinn að gruna að ráðamenn ráði ekki við þennan vanda sem steðjar að okkur og þurfi því sér æðri til að vinna undir - ekki nokkur eining í einu eða neinu - sökkvum dýpra og dýpra ef fer sem horfir
Ingibjörg Sólrún / Utanríkisráðuneytið, spara ca 35 milljónir í styrkjum til fátækra
Miðvikudagur, 10. desember 2008
Sló mig þessi frétt um daginn að til stæði að skera niður til hjálparstarft í Afríku um 35 milljónir sem bara bitnar á sárafátæku fólki og börnum þá helst - skildi ekki fréttamanninn sem tók þessu með fálæti, hann hefði frekar átt að spyrja hvort ekki stæði til að fækka sendiráðum sem og sendiherrum og hvort enn stæði til að opna sendiráð í Indlandi ?
ekki að undar að fréttamennskan er eins og hún er - þurrt og skorpið
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Verkið skuli lokið svo fljótt sem verða má ?
Miðvikudagur, 10. desember 2008
![]() |
Rætt við Ernst & Young um rannsókn á Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það liggur ekki lífið á úr þessu.........eða hvað
Miðvikudagur, 10. desember 2008
![]() |
Tónlistarhús gæti tafist um ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stattu þá við þessi orð Björgvin
Miðvikudagur, 10. desember 2008
Hann segist hafa tekið fram í bréfinu að Íslendingar gætu ekki selt dótturfélögin eða eignir frá þeim nema það væri tryggt að aðgangur að þessum upplýsingum væri betri en núna.
Það er fylgst með þér núna sem áður
![]() |
Kaupþing í Lúx ekki selt nema gögnin fáist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Geir, afhverju færðu ekki Steingrími Joð og kórfélögum verkefni að vinna......
Þriðjudagur, 9. desember 2008
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, spurði forsætisráðherra að því í óundirbúnum fyrirspurnatíma hvort stjórnvöld ætli að láta það gerast að lykilgögn um stöðu íslensku bankanna sem er að finna á útibúum og dótturfyrirtækjum þeirra í Lúxemborg gangi yfirvöldum úr höndum verði fyrirtækin seld. Steingrímur vísaði meðal annars til hádegisfrétta Ríkisútvarpsins þar sem greint var frá því að skilanefndir bankanna hafi neitað skattrannsóknarstjóra um gögn frá Lúxemborg. Geir segir eðlilegt að greiða fyrir því að skattrannsóknarstjóri vinni sín störf.
Steingrímur hvatti til þess að sölu bankanna verði frestað þar til umrædd gögn séu komin fram þannig að bankaleynd í Lúxemborg verði ekki til þess að þau glatist.
Ekki getur það skemmt fyrir að láta ágæta menn innan stjórnarandstöðu djöflast í þessum graut sem og kanski öðrum pottum líka með sambærlegu malli í ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
er einhver hérna sem kannski á allt sitt undir Jóa
Þriðjudagur, 9. desember 2008
Það er ég vissum að þegar Baugur fer í þrot verður Gestur Jónsson skipaður skiptastjóri
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvernig stóð á því að hún var ekki sett úf af borðinu strax ?
Þriðjudagur, 9. desember 2008
Það er nú bara hlægilegt að fólk eigi að trúa þessu!!!!
Hver treystir bankastjóra sem kaupir hlutabréf með lánum fyrir tæpar 200 milljónir. Hefur svo ekki hugmynd um hvort hún hafi verið skuldfærð fyrir bréfunum fyrr en hún mætir á aðalfund mörgum mánuðum seinna? Hver myndi treysta svona manneskju fyrir peningum? Persónulega myndi ég ekki treysta henni til að geyma sóluðu vetrardekkin mín í stóra bílskúrnum hennar yfir blásumarið. Hún væri líklega búin að láta henda þeim þegar ætti að setja þau aftur undir um haustið. Shame að Davíð sé ekki í viðskiptum þarna. Hann myndi fara og taka út af bankabókinni. Íslendingar gera ekki svoleiðis. Láta bara svona rugl yfir sig ganga.___________________________________________________________________________________________________________________________________________________Hvernig stendur á því að bankastarfsmaður telur ekki rétt fram fyrir árið 2007? Var hún ekki byrjuð að borga af láninu, taldi hún ekki hlutabréfaeignina inn á skattframtalið. Hún ætlaði að nýta atkvæðisrétt sinn í febrúar 2008, hvernig er skattaskýrsla þessarar manneskju eiginlega? Hún hlýtur að hafa þurft að telja fram þar hlutabréfaeign sína í Melkorku, eða hvað er þetta eiginlega? Er hún kannski ein af þeim sem þarf að fá frest?
Komu aldrei greiðsluseðlar til hennar/Melkorku fyrirtækis hennar? Hefur hún ekki fyrirtækjabanka eða heimabanka?Það er svo mikil skítalykt af þessu, og ég held að spillingin sé bara rétt að byrja, djöf...... hafi það___________________________________________________________________________________________________________________________________________________Eitt skil ég ekki - þessi Birna mætir á AÐALFUND og veit ekki að hún hefur ekkert atkvæðamagn á bak við sig ???? ..... Er allt í lagi???Þá er manneskjan eigandi og framkvæmdastjóri Melkorku ehf - hvernig ætli bókhaldið hjá manneskjunni sé, fyrst hún veit ekki einu sinni hvernig eignastaða fyrirtækisin hennar sjálfrar er? ......HA? - getur einhver skýrt þetta út fyrir mér???Svo þarf að banna manneskjunni að leggja nafn formóður íslendinga við hégóma - Melkorka formóðir okkar var afar stolt kona sem hernumin var frá Írlandi og ég sé alvað að hún hefði tekið þessa Birnu og snúið uppá bæði eyrun á henni fyrir að misnota svona nafnið Melkorka..___________________________________________________________________________________________________________________________________________________Hvernig fara svona viðskipti fram- ég bara spyr?Birna fékk lán upp á 180 milljónir króna til 5 ára hjá Gamla Glitni fyrir næstum tveimur árum - Í FEBRÚAR 2007 - til að kaupa hlutafé á undirverði. Lánið var raunar til Melkorku Ehf (einkahlutafélag sem er í mikilli tísku hjá bankamönnum sem keyptu hlutabréf af því að því þeir höfðu svo mikla trú á fyritækjunum sínum en stofnuðu samt einkahlutafélög af því að þeir vildu ekki vera persónulega ábyrgir!!). En jæja ..... lánið góða er gefið í febrúar 2007.Ári síðar - í febrúar 2008 - kemur Birna á aðalfund og vill nota atkvæði sín sem hluthafi en babb er komið í bátinn. Hvað gerðist þá? Það vantar alveg áframhald sögunnar. Sagði Birna bara allt í fína - ég sleppi þessum kosta-kjörum. Hvað gerðist á aðalfundinum - gékk hún bara í burtu sneypt og engir eftirmálar.Hvernig var lánið veitt í febrúar 2007? Var það hvergi tekið fyrir á formlegan hátt? Hver bar faglega ábyrgð á lánum til starfsmanna bankans á þessum tíma? Er sá starfsmaður enn í vinnu? Ef hann er enn í vinnu stendur ekki til að reka hann. Við eigendur bankans erum núna 180 milljónum kr. fátækari vegna þessarar handvammar. Var engu þinglýst? Hvernig voru skattauppgjör Melkorku í millitíðinni? Hvernig er staða Melkorku Ehf í dag?Hefur FME svarað þessum spurningum? Hvað með fjölmiðla?PS: Það var skelfilega aumt að hlusta RUV lesa fréttatilkynningu FME án nokkurra spurninga...vantar ekki bara Bakkabræður fyrir 2008?
Þriðjudagur, 9. desember 2008
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bakkabræður........
Þriðjudagur, 9. desember 2008
mjög flott fyrirtæki sem þeir eru með - vona að náist að halda því þannig áfram
![]() |
Bakkavör í samningaviðræðum við banka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)