stofnanalegt â¦.
Fimmtudagur, 1. júlí 2021
Þetta er svo brjálæðislega "stofnanalegt" - hvað á að koma í stað þessa svörtu ruslapoka ?
Undir rúmföt fatasöfnun RK og fl .
Þó Umhverfisráðherra hafi farið í húsmæðraskóla hefur hann lítið lært þar !
Nú verða engin leyndarmál lengur í ruslapokunum !
Krónan er hætt að selja svarta ruslapoka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fullvinna hér heim .....
Miðvikudagur, 16. júní 2021
Högg fyrir útgerð sem fjárfestir fram á yrstu brún !
En þetta er líka tækifæri til að fullvinna fiskinn hér heima en sigla ekki með hann óunninn og vinna hann þar ?
Afkomubarlómur er mjög algengur hjá öllum atvinnugreinum !
Gera ráð fyrir minni tekjum í tvö til þrjú ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
margir vasarnir hjá sumum ....
Laugardagur, 29. maí 2021
Það eru margir vasarnir hjá auðmönnum Íslands !
Athyglisvert hvað stórir skattgreiðendur hafa langan skilafrest á
sköttum - ólýkt því sem almenningur hefur .
Hvað eftir annað koma í ljós vanskil á sköttum í gjaldþrota félögum .
Fengu 12 milljónir upp í 11 milljarða kröfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þeim er illa við alla skinsemi !
Föstudagur, 21. maí 2021
Eins og tekjurnar af Landhelgisgæslunni séu núll !
Eða godwill Gæslunar telji ekkert ! - Suðurnes vilja gjarnan taka við því dæmi.
Flugvöllurinn er svona dæmi sem Borgin má ekki til þess hugsa að blómstri eða
gamla höfnin - næst er að koma Brim og allri fiskvinnslu úr henni - svo þetta verði hjólreiða stígur og líkist hafnarbakka / promenade á sólarströnd Engin umsvif bara blómaker og bekkir í norðantrekk !
Sjálfstæð ákvörðun borgarinnar að úthýsa Gæslunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
hagsmuna að vernda ....
Fimmtudagur, 15. apríl 2021
Það er alveg eftir bókinni að fara að verja Jónas Haraldsson lögfræðing
sem alltaf er þversum í flestum málum - og stofna samskiptum íslendinga við Kína í hættu !
Jónas er alltaf á móti öllu sem hægt er að vera á mórti .
Þarna hefur hann rétt fyrir sér með ástandið í Kína - en við eigum hagsmuna að vernda í Kína .
Og höfum við ekki gert nóg að lepja viðskiptaþvinganir við Rússa með ESB - íslandi til stórskaða.
En að stofna sambandi Íslands og Kína í hættu - bara vegna þrasi í "gaur", sem er öllum til leiðinda ?
Óviðunandi segir Guðlaugur Þór | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2021 kl. 08:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
óvilji ráðherra ....
Þriðjudagur, 6. apríl 2021
Svanhvít og þríeikið hafa ráðið þessu alfarið.
Af hverju má ekki taka alþingi með í þessar reglur - og spyrja hvort frelsi landsmanna sé nokkra Covid sjúklinga virði - ?
Þessi óvilji ráðherra að hafa samráð er sláandi - "Mitt ráðuneyti" "Mínar reglur" ...
Vill lagaheimild fyrir sóttkvíarhótel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
það er þetta óþol óþol ...
Sunnudagur, 4. apríl 2021
Það er þetta óþol okkar sem gerir að allar reglur eru fyrir hina - við eigum að fá sérafgreiðslu, reglurnar eru settar af því að margir virða ekki sóttkví - allir lofa fögru ætla beint heim í einangrun, sem svo jafnvel ráðherrar og þingmenn brjóta og halda að sorry stoppi smit !
Sóttvarnarreglur hér á landi eru miklu veikari en í Evrópu - þar sem öllu var skellt í lás.
Að ekki hafi komið upp smit á gosstöðvum er auðvitað vegna þess að allir eru með hanska og huga flest vel að sóttvörnum almennt.
Það verður fróðlegt að sjá hvort lögfræðingum tekst að rústa sóttvarnarreglum stjórnar ?
Auðvitað halda 96% settar reglur - en svo er 4% , sem gerir lífið leitt fyrir okkur !
Þórólfur hefur skilað inn kröfugerð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
uppihald á kostnað skattgreiðenda ....
Þriðjudagur, 30. mars 2021
Maður er að verða þrælpirraður á þessu dekri við ferðaþjónustuna !
Fólk á að borga sjálft - það eru tékuháir ferðamenn sem koma í svona
túristaferði í dag ! - og sekta duglega ef þeir halda ekki sóttkví .
Fólk sem kemur í 4 daga á ekki að komast inn í landið !
Smit utan sóttkvíar tengjast landamærum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tökum stöðuna ....
Miðvikudagur, 24. mars 2021
Eitthvað er að stíflast ! - En tökum nú stöðuna ! - Lokað land færir velsæld til íbúanna !
Sjávarútvegur gengur vel - Áliðnaður líka. - LAGFÆRING Í LANDBÚNAÐI ÆTTI AÐ SKILA VEL !
Það verður að hætta mjólkurframleiðslu á Vestfjörðum ef um erfiða fjallvegi þarf að fara !
Það eina sem gengur illa hjá okkur er Ferðaiðnaður - sem rekin er á innfluttu vinnuafli.
Má ekki bíða aðeins eftir að önnur lönd sigrist á veirunni ?
Þurfum við að æða af stað eins og núna í Túristagosi ! þar sem engin lætur af stjórn ?
Nú er stigið nokkuð fast til jarðar þvert yfir sem er gott - þá ættum við að sigrast hraðar á óværunni og ferðast um landið eins og 2020 nema nú mun fagmanlegar !
Tíu manna fjöldatakmörkun frá miðnætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Við skulum fara varlega hér ... !
Mánudagur, 15. mars 2021
Stutt í kosningar - og ferðaþjónustan er með frábæra lobbyista !
Ferlega ofmetið framlag ferðaþjónustu á landshag - hún er mest froða byggð á oflágum launum og lélegu framtali.
Ekki ótækt að Ísland fari sérleið með vottorð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |