Hundruð Íslendinga hafa streymt inn í nýja verslunarmiðstöð

Hundruð manna hafa streymt í nýjustu verslunarmiðstöð landsins, Korputorg, í morgun. Fréttastofa ræddi við verslunarstjóra húsgagnaverslunarinnar ILVA, Róbert Valtýsson, nú laust fyrir fréttir og hann sagði viðtökurnar framar vonum. Menn hafi ekki búist við miklu í þessu árferði.
Verslunin opnaði klukkan átta í morgun og þá strax var reytingur af fólki sem beið fyrir utan ILVA og fleiri verslanir á Korputorgi. Á fyrsta klukkutímanum höfðu fimm hundruð manns farið í gegnum ILVA og tvö hundruð gjafabréf til viðskiptavina gufuðu upp á korteri. Róbert segir rífandi gang í sölunni og er hæstánægður.

Nú er maður kjaftstopp ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll félagi.Já þar eru fleiri kjaftstopp.Íslendingar hafa alltaf verið,og verða það áfram.Ég bý hérna á sælueyjunni Vestmannaeyjum og líður hér vel.Upp á land hef ég ekkert að sækja.þó hér séu engin"Moll"Sértu ávallt kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 4.10.2008 kl. 13:59

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jón, er þér sammála maður botnar ekki í því að enn er verið að byggja STÓRVERSLANIR þó allt bendi til að kreppa sé yfirvofandi

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 4.10.2008 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband