Hvað gengur þessari ríkisstjórn til ...........

á að neyða þjóðina inn í þessa dýru skrifborðsskúffu

og það með góðu eða illu í boði VG

Rétt að láta ykkur vita að þjóðin hefur í könnunum nú þegar hafnað þessu "sukki" ykkar

STOPP


mbl.is Ný stofnun kostar milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

Já það á að setja stopp á þessa ummsókn strax!!!!

Þessar breytingar myndu t.d. setja þingmönnum stólinn fyrir dyrnar þegar kemur að því að ráða vini og vandamenn í störf og fletta ofan af lyginni og spillingunni í stjórnkerfinu og það má ekki gerast!!!
Allt hagsmuna pot ráðamanna yrði mjög erfitt með þessu skriffæði og þá hugsun vil ég ekki hugsa til enda. 

Einnig myndi vera flett ofan af spillingunni hjá bændasamtökunum og þeir gætu ekki lengur verið verktaki fyrir landbúnaðarráðuneytið og séð um sín mál sjálfir  og það gæti endað með ósköpum.

Drögum þessa ESB umsókn til baka  "Höldum vöku okkar, þetta er landið okkar Ísland og við Þjóðin" Hér er spilling og við viljum hafa hana áfram. Við viljum ekkert ESB til þess að eyðileggja allt fyrir okkur. 

The Critic, 13.3.2010 kl. 10:57

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

margt til í þessu hjá þér The Critic, næstum bara alveg satt líka - en hvað um breittann hugsunar hátt - er hugsanlegt að það gægti veri áhugavert að berjast fyrir slíku ?

uppgjöfin með skuldsettri inngöngu í þessa ESB "skúffu" er eflaust einföldust en kanski ekki sú besta sé horft til lengri tíma

Jón Snæbjörnsson, 13.3.2010 kl. 12:51

3 identicon

,,Þessar breytingar myndu t.d. setja þingmönnum stólinn fyrir dyrnar þegar kemur að því að ráða vini og vandamenn í störf og fletta ofan af lyginni og spillingunni í stjórnkerfinu og það má ekki gerast!!!

Enda gerðist það ekki heldur á Ítalíu, einu af stofnríki ESB. Þeir stóðu vörð um sína spillingu og hananú! Um það ríkir góð sátt innan ESB.

Um landbúnaðarnefnd ESB ríkir líka bandalagssátt. Það sér maður á breskum, dönskum, sænskum og þýskum (kann ekki frönsku eða ítölsku) vefsíðum bænda í þessum löndum. Þeir telja allt vera til fyrirmyndar og eru ekkert brjálaðir yfir reglum sambandsins sem breytast fyrirvaralaust á tillits til þess sem eðlilegt má telja í seinvirkri atvinnugrein eins og búskap.

Já hendum okkar spillingakerfi og tökum upp það ítalska, eða franska (það er samt ekki eins gott, svolítið loðið) - hið þýska er ókei en svolítið þungt í vöfum. Íslenska spillingakerfið er svo glatað.

Berglind Hilmarsd. (IP-tala skráð) 13.3.2010 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband