öryggismál í ólestri en list .....

Eg er algjörlega á móti listamannalaunum – það á að vera hægt að sækja um styrk fyrir ákveðið verkefni – en að vera árum saman á launum hjá ríkinu/almenningi og gera svo lítið annað en nöldra yfir naumum styrk.

Ef fólk lifir ekki á listsköpun sinni – þá verður það að vinna í umönnun eða álíka!


Þetta er stórskrítið .....

 – Og undarlegt að ekki heyrist múkk frá samtökum sjómanna – eða heilsugæslu!

Og á meðan hagsmunasamtök láta eins og þetta sé bara sjálfsagt er varla von að almenningur bregðist við! – En að hafa þannig ástand að öryggisgæsla á sjó og landi sé í görgæslu er óþolandi.

Rannsóknaskip vantar – Sjúkrabíla vantar – Löggæslu vantar á sjó og landi!

Vegamál í ólestri – Skólamál í ólestri – Heilbrigðismál í ólestri!

 


mbl.is Þyrla mögulega leigð til útlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

létt ganga ......

Jón Gnarr er spes! – það eru hámark 5 í hópi – hver og einn borgar 100.000 kr. Fyrir að rölta frá Höfða – að Hlemmi og niður í Ráðhús! – Ef menn eru svona vitlausir og eiga peninga til þá er bara allt í lagi að Jón græði! – og auðvitað er allt talið fram! – það er mórallinn í þessu !


mbl.is Ferð með Jóni Gnarr á 500 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hver hugsi sinn gang ......

Það á að jarða karlmenskuna!

Furðuleg tillaga – maðurinn hlýtur að vera giftur viljasterkri konu ;)

 


eitthvað til í þessu hjá Benedikt ...

Eg er nú sammála um að ÁTVR sé ekki að spreða peningum í PR auglýsingar !

Fynnst það einn anginn á þeirri staðreynd að ríkisfyrirtæki og stofnanir hagi sér eftir sínu höfði og gefi skít í kröfur um hagræðingu!

 


mbl.is Benedikt gagnrýnir fjáraustur ÁTVR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það verður spennandi að sjá hverjir styðja þetta .....

„Alþing­is­menn ættu að huga að hag ís­lenskra ung­menna í dag og í framtíðinni, frek­ar en rekstr­ar­fræðileg­um sjón­ar­miðum ..... 


mbl.is Segja áfengisfrumvarpið ógn við almannaheill
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

enn meira TÁR ....

Kemur ekki á óvart að vandræðagamgur sé í þessu máli!
Annað vandræðamál er um Vaðlaheiðagöng – þar flýa rotturnar af því skipi!
Norðanmenn vilja ekki henda meiru fé í göngin.


mbl.is Opin fyrir því að laga frumvarpið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ekki auðveldur leikur ......

Það er margt gott sem Ragnar segir um norræna velferðarkerfið og launaþróun
í landinu – Hvernig VR og ASI er ætlað að semja hóflega – en allar aðrar stéttir
ryðjast fram með ofurkröfur í engu samræmi við það sem samið var um!

Svo er að fylgjast með hvernig hann verður brotinn niður og koðnar -
Hann verður svikinn úr eigin röðum – sanniði til!


mbl.is Framboðið var vantraust á forystu ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

er gjá að mindast ......

það voru tveir turnar í íslenskum stjórnmálum - annar hlustaði ekki á þjóðarvilja meðan hann gat og þjóðin hefndi honum! – féll í 3 þingmenn!
Ætlar hinn turninn sömu leið – að hlusta ekki eftir þjóðarvilja ? – fyrir jafnómerkilegt frumvarp og áfengislög!

Það er greinilegt að gjá er að myndast með Sjálfstæðisflokki og fólki í landinu – ef á að hunsa álit 66% – í ómerkilegu máli, sem getur samt skipt sköpum í ímynd flokks – sem ætlar að hunsa álit heilbrigðisstétta í sjálfumgleði!


mikið til í þessu .........

auðvita eiga sjómenn að njóta sjómannaafsláttar uppbót td eins og ráðherrar og þingmenn

Óttast að  – D er að fara sömu leið og Samfylkingin –háskólagengin tölvuhjörð
sem missir öll tengsl við almúgann – heldur að” Ljósið” sé í frjálsu flæði áfengis

– gefur lítið fyrir álit Landlæknis – og vaknar svo einsog S í næstu kosningum – smáflokkur!
Skilur ekki að flokkur þarf að ná til millistéttar og eiga hylli hennar ef hann á að lifa.

Millistéttin er kanski íhaldsöm og fastheldin í þjóðarkarakterinn – en hún er atkvæði!
og hættulegt að virða hana að engu!

 

http://www.mbl.is/200milur/frettir/2017/02/06/thetta_er_galid/


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband