Verja ferðafrelsi - Frelsi fyrir alla segir 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4 lýsir ánægju sinni með að Þingvallanefnd hyggist sporna við því að aðgengi almennings að landi innan þjóðgarðsins á Þingvöllum sé heft með lokun á vegum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá klúbbnum sem send er í kjölfar fréttar Fréttablaðsins um lokaðan veg um sumarbústaðalönd í Gjábakkalandi.

Björgólfur Thor Björg­ólfsson og Kristín Ólafsdóttir, kona hans, eiga sumarbústaðina þrjá í Gjábakka.

Ferðaklúbburinn telur Þingvallanefnd taka gott frumkvæði með þessu.

„Með þessu tekur Þingvallanefnd gott frumkvæði í að verja rétt almennings til að ferðast um náttúru landsins sem er sameign þjóðarinnar en ekki einkaeign einstakra aðila.“

Í tilkynningunni kemur einnig fram að síðustu ár hafi eignarhaldsfélög keypt upp landareignir og mörgum ferðaleiðum lokað.

„Í náttúruverndarlögum er sérstaklega kveðið á um rétt almennings til að ferðast um landið, enda náttúra landsins sameign þjóðarinnar hvað sem líður eignarhaldi. Lagaákvæði sem stefna í sömu átt má einnig finna í vatnalögum og vegalögum.

Lengst af hefur almennt verið góður skilningur landeigenda á þessum rétti almennings til að ferðast um landið og reynsla ferðamanna af samskiptum við bændur þessa lands almennt mjög góð. Á síðustu árum hefur færst mjög í vöxt að þéttbýlisbúar og eignarhaldsfélög kaupa upp landareignir og virðist fylgja því sú óheillaþróun að sett eru upp læst hlið og keðjur sem loka almennum ferðaleiðum og hindra för almennings um náttúruna. Þó svo slíkt sé í flestum tilfellum gert í fullkomnum órétti,
virðist hafa verið tregða til að taka á þessum málum og erfitt fyrir hinn almenna ferðamann að standa á rétti sínum.

Það er því mjög ánægjulegt að Þingvallanefnd taki á málum sem þessum innan þjóðgarðsins og sýni þannig í verki að hún ber hag hins almenna ferðamanns fyrir brjósti.“

Ég er ánægður með að vera félagi í 4x4


Edrú í dag ................say no more ?

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í dag ánægjulegt að sjálfstæðismenn væru farnir að spyrja alvöru spurninga varðandi ráðningar hjá hinu opinbera

Væntanlega er allur þingheimur ein "eyru" þegar Sigmundur röltir í "pontu"

Say no more 

 


Grunnlaun 404.664 krónur

en til viðbótar fá þeir álagsgreiðslur sem í sumum tilvikum hækka laun þeirra um meira en helming.

fyrir hvað eru álagsgreiðslur ? allavegana axlar þetta fólk ekki neina ábyrgð þegar upp er staðið, hvorki hér né í öðrum bæjarfélögum.

það kanski kemur að því einhverntíma að fók fær sig fullsatt af þessum feluleik og leikaraskap

 


mbl.is Margsamsett laun borgarfulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Koma með gott fordæmi ?

hvernig væri nú að þeir hafa meira en nóg komi til móts við þjóðfélagið / bæjarfélagið og lækki laun sín nær meðalmanninum  - eða eru td stjórmálamenn ekki viljugir til að sleppa þessu "hreðjartaki" sem þeir virðast hafa á sjóðum bæjar og sveitarfélaga


mbl.is Allt að 900 þúsund á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

24 milljarða leynilán til Fons ?

hér er verið að kalla eftir upplýsingum um hugsanleg "græðgislán"  en lánið minnir um margt á lán Glitnis til huldufélagsins Stím ehf., en þá lánaði bankinn hluthöfum um tuttugu milljarða til hlutabréfakaupa í bankanum sjálfum.

 mynd

Lánið var veitt með veð í hlutabréfum bankans og FL Group sem reyndust ekki mjög traust þegar á reyndi.

Velti fyrir mér hvort dugnaðarmaðurinn Vilhjálmur Bjarnason standi í þessu einn ?

http://www.visir.is/article/20091110/FRETTIR01/605062364


Jafnt skal yfir alla ganga

hvað síðar er svo gert við fiskinn er annað mál, ég er þó málsvari fyrir því að fullvinna mun meira hér heima nú en gert er, sorglegt að sjá á eftir þessum hundruðþúsunda vinnustunda fluttar út
mbl.is Telja útflutning í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt upp á borðið

og því tel ég mjög eðlilegt að erlendur aðili td eins og þetta KROLL komi mun nær þessu ferli en nú er - það má ekki koma til eftirmála síðar meir hvaða nöfnum sem nefnir.

mín skoðun á þessu


mbl.is Kroll vinnur fyrir skilanefnd og slitastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Þetta er þjóðgarður og hann er eign okkar allra Íslendinga,"

Félögin Gjábakki ehf. og Vatnsvík ehf. hafa frá því 2004 keypt þrjá sumarbústaði á samliggjandi leigulóðum í Gjábakka innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. Stærsta húsið er bústaður sem Gísli Jónsson alþingismaður átti og gaf SÍBS fyrir rúmum fjörutíu árum. Þeim bústað fylgir fjórtán hektara leigulóð í eigu ríkisins. Lauslega áætlað er lóðin um þrjátíu sinnum stærri en meðal sumarhúsalóð.

Skráður eigandi Gjábakka ehf. og Vatnsvíkur ehf. er Ólafur H. Jónsson. Með Ólafi í stjórn þessari félaga er dóttir hans Kristín Ólafsdóttir. Hún er eiginkona Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Þingvallanefnd hefur ráðfært sig við lögfræðing í tilefni þess að vegi sem liggur að leigulóðum áðurnefndra bústaða hefur verið lokað með keðju og hann merktur sem einkavegur.

Sumt á bara ekki að vera hægt að kaupa fyrir peninga, annars er ég alveg hættur að skilja svo margt í dag sem var nokkuð auðskilið áður.


Jæja þá er þessu prófkjöri lokið

1. Ásgerður Halldórsdóttir 707 atkvæði í 1. sæti.

2. Guðmundur Magnússon 330 atkæði í 1-2.sæti

3. Sigrun Edda Jónsdóttir 450 atkvæði í 1-3. sæti

4. Lárus B. Lárusson 552 atkvæði í 1-4.sæti

5. Bjarni Torfi Álfþórsson 599 atkvæði í 1-5. sæti

6. Þór Sigurgeirsson 636 atkvæði í 1.-6.sæti

7. Björg Fenger 521 atkvæði í 1-7. sæti.

 Ekki fer allt eins og lagt var upp með, svona er víst þessi ánsk pólitik

Eins og ávalt þá vinnum við saman sem heild það er styrkur okkar


mbl.is Ásgerður sigraði á Nesinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa nýtt frétt..........

gott að ekki fór verr, en hér hefi mátt segja frá veðrinu, afla og teg skotvopna  Happy


mbl.is Rjúpnaskytta fótbrotnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband