Steingrímur J / Ábyrgðin liggur hjá Björgvini G.

Þetta var athyglisverð ræða, " segir Steingrímur J. Sigfússon um ræðu Davíðs Oddssonar í gærmorgun.

„Það hefur verið einblínt um of á Seðlabankann, þegar hin raunverulega ábyrgð liggur hjá Fjármálaeftirlitinu og viðskiptaráðherra," segir Steingrímur um gagnrýni Davíðs á aðskilnað Seðlabanka og Fjármálaeftirlitsins. „Þetta var málefnalegt hjá Davíð og rétt að greina það."

Þá segir Steingrímur að skýrsla Davíðs frá því í febrúar sé áhugaverð og sýni sameiginlega ábyrgð ríkisstjórnar, Seðlabanka og Fjármálaeftirlitsins.

http://www.visir.is/article/20081119/FRETTIR01/804017526/-1

 

Nákvæmlega - reynum nú að koma hreint fram og vinna saman öll, óháð henni pólitík...........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skarfurinn

Syndavottorð fyrir Davíð kemur mjög svo úr óvæntri átt, þegar aðal hagspekingar og prófessorar landsins segja mestu mistökin Seðlabankans (hann hefur stjórntækin) er Steingrímur á annari skoðun. En svaraðu einu: Davíð segist hafa varað við slæmri stöðu bankanna í febrúar sl, en í maí gefur hann samt út vottorð um  sterka stöðu bankanna, hvernig má það vera ? 

Skarfurinn, 19.11.2008 kl. 10:01

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hefur einhver séð þetta svokallaða vottorð ? ég held samt að Davíð sitji ekki undir réttmætum ásökunum á ljósvakanum, hvorki nú né oft áður

Jón Snæbjörnsson, 19.11.2008 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband