Bloggfærslur mánaðarins, október 2011

... fyrir háttinn .......

Sjóræningi labbar inn á bar og pantaði romm. Nei sæll gamli, segir barþjóninn.- það er orðið langt síðan maður hefur séð þig. Hvað er að sjá útganginn á þér ? Hvað áttu við ? ansar sjóræninginn hissa. Nú, til dæmis þennan staurfót. Af hverju ertu með þennan staurfót ? Ég er með staurfótinn eftir að önnur löppin á mér var skotin undan mér í sjóorustu. Það var vont fyrst en ég er búin að venjas...t þessu núna. En af hverju ertu með krók á annari hendinni ? Það er vegna þess að ég missti annan handlegginn þegar ég var að skylmast í áðurnefndri sjóorustu. Það munar ekki um það, sagði barþjónninn og hneggjaði. Gott og vel, en af hverju ertu líka kominn með lepp fyrir annað augað ? Jú, hann er ég með af því það drullaði máfur í augað á mér, ansaði sjóræninginn. Haaa ? Ertu að segja mér að þú hafir misst annað augað við það eitt að fugl skeit í augð á þér ? sagði barþjónninn og gapti. Jú, sjáðu til, það var fyrsti dagurinn sem ég var með krókinn.Gasp

Finn til með þessu fólki .... ?

hvað varð um orðatiltækið. illur fengur illa forgengur ... ekkert að marka þetta í þessu nútíma þjóðféalgi ? ... þessir "bubbar" gefa gömlum gildum fingurinn og virðast fá að komast upp með það .... við svo mörg hikum allavegana ekki við að verzla við þessa "bubba" ... það eitt hægir nú ekki á þeim svo mikið er víst !


mbl.is Veitti Astraeus hluthafalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flýtið ykkur nú hægt í að fella þessi tré ....

loksins þegar við fengum til okkar "plöntu" í þessu tilfelli Ösp sem feldi sig við landið okkar og náði að festa hér rætur þá viljum við hana burt ... sumir ganga svo langt að nefna Öspina illgresi  ....

þarf ekki merkilega "menn" til að höggva niður tré sem tekur "örskot" en að rækta upp þarf hins vegar umhyggju og natni sem öllu jafna tekur áraraðir eða áratugina svo vel verði ...

... að "græðlingur" verði að myndarlegu kröftugu tré eða gróðri  ..

Aspir setja ekki bara fallegan svip á bæjarlífið hér sem annarstaðar á landinu heldur veita þær líka skjól og hlýja gróður tilfinningu ....


mbl.is Aspirnar eyðilögðu ekki hitalagnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo má "hunsa" .....

þess vegna er gott að vita hvaða fyrirtæki það eru sem fá "extra" umhyggju banka sem og afskrifaðar skuldir sem milljörðum skiptir ...

hvet banka og "skilanefndir" að opinbera þau fyrirtæki sem hafa fengið afskrifað meira en eitthundraðmilljónir ... 100.000.000---- >

styð heilbrigða samkeppni !


mbl.is Segir Arion banka í „orðaleik“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki verið að grínast ....... ?

Eyðilögðu gömlu höfnina og verðlaunaðir Woundering ........ Torgið við Hörpu hlaut verðlaun í flokknum besta norræna almenningsrýmið ....... hátíðleg athöfn í Gautaborg jahérnahér

á bara ekki til aukatekið orð ....


mbl.is Torgið við Hörpu fékk verðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þykir mér týra á tíkarskottinu!

Þá vitum við það .....  Samfylking .... að lesa öðrum lexíuna ...
mbl.is Mikið skortir á gagnkvæmt traust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög svo bagalegt ......

og það skrítna var að nýlega hafði verið lagt af stað í rannsóknartúr sem búið var að undirbúa lengi lengi en siglt var í land um leið og verkfall hófst ......

.... það þekkir maður ekki úr hinu venjulega umhverfi ... veit ekki betur en skip séu vön að klára túrana sína !


mbl.is „Í hæsta máta bagalegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

íslenskur afreksmaður í svíþjóð .........

Númi Snær Katrínarson varði í gær meistaratitil sinn í Crossfit í Svíþjóð og hefur því orðið sænskur meistari tvö ár í röð. Árangurinn er verulega góður en Númi hefur einungis stundað íþróttina í tæp tvö ár.

númi

Númi er fyrrverandi afrekssundmaður en hann var á árum áður landsliðsmaður í sundi og keppti á fjölda móta á vegum SSÍ

Til hamingju Númi ........

http://www.dv.is/sport/2011/10/16/islendingur-meistari-i-crossfit-i-svithjod/


Þakklæti, virðing, auðmýkt ...........

Ég trúi því að þakklæti sé lykillinn að hamingjusömu og nægjusömu lífi. Þakklæti kennir manni virðingu og auðmýkt, opnar augun fyrir dásemdum lífsins og færir okkur og öðrum í kring um okkur gleði og vellíðan. Ef það er eitthvað eitt sem þú getur gert í dag til breyta lífi þínu, þá er það að byrja á að vera þakklát/ur fyrir það sem þú hefur akkúrat núna.
Það er góður siður að venja sig á að hugsa um hvað maður er þakklátur fyrir þegar maður fer að sofa og svo strax þegar maður vaknar á morgnanna.

gangi okkur öllum vel


íslenskt Nei takk ... !

undrast stórlega þessa ákvörðun .... ég hefði valið Guðjón Þórðar ...


mbl.is Lagerbäck og Heimir ráðnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband