Opinberir starfsmenn vilja styttri vinnuviku !

á meðan "flestir" aðrir biðja um meiri vinnu til að fá meira útborgað eða eingöngu hærri laun þá koma þessir með hreint ótrúlegt en svo einlægt útspil

Stytting vinnuvikunnar úr 40 klukkustundum í 36 er meðal þess sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) leggur áherslu á í viðræðum við viðsemjendur sína - ríki og sveitarfélög.

Grunnástæða kröfunnar sé að skapa fjölskylduvænna samfélag; að mæta vilja opinberra starfsmanna til að vinna minna og hafa meiri tíma aflögu fyrir fjölskylduna.

say no more  ........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Jón, ég hef gaman af því að lesa hugleiðingarnar þínar, af því að mér finnst þær raunsæjar.  Þessi hugmynd um 36 stunda vinnuviku myndi sennilega verða flestum þeim til trafala sem ekki eru í vinnu hjá því opinbera og þurfa fyrir sér og sínum að sjá.  Hvað með allan þann fjölda sem vinnur að heiman frá sér?

Ég hef verið að spyrjast fyrir um vinnu í Noregi þar er 37,5 tíma vinnuvika í boði.  Þetta letur mann til að fara langan veg til að sækja björg í bú, þó svo launin séu góð.  Hátt í 80% af fjarvistartímanum færi í að sofa og láta tímann líða. 

Ég er ekki viss um að þeir sem setja svona fram hafi hugmynd um hvar og hvernig vinnudagur stórs hluta þjóðarinnar fer fram.

Magnús Sigurðsson, 13.1.2011 kl. 13:20

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Takk fyrir innlitið sem og kommentið Magnús - ekki veit ég hvar við endum - það er svo margt sem við höfum látið frá okkur og flutt yfir á "ódýrara" vinnuafl þar sem við ma vorum "svæld" úr starfinu td vegna afarkosta launakjara og samninga (fiskvinnsla td) - súpum að hluta seiðið af því í dag.

Við sem höfum td verið til sjós þekkjum sumir margra vikna jafnvel mánaða fjarvistir, þetta er kanski léttar í dag en var hér áður en gerum ekki lítið úr því samt - 30 dagar út á sjó td á togara norður í rassgati í misgóðum veðrum, ekki fyrir alla og ekki nokkur maður öfundsverður af.

Fyrir mörgum árum var ég farin að horfa til Noregs og langaði mikið að flytja en ekki náðist samstaða um það svona eins og gengur og gerist - annars alltaf verið hrifinn af Noregi - fallegt land og ágætisfólk - sigldi þarna mikið og þá sérstaklega innanskerja upp og niður noregsströnd - glæsilegt landslag og umhverfi.

37,5 tíma vinnuvika - þætti eflaust ágætt hér hjá mörgum - það eru erfiðar ákvarðanir sem margur stendur nú frammi fyrir Magnús, ferlega sárt ef ekki er hægt að leysa hér heima og ná sér á stryk aftur .......

Jón Snæbjörnsson, 13.1.2011 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband