Uppgjöf ekkert annað en uppgjöf......

það kemur ekki til mála að einfaldasta leiðin verið fyrir "valinu"  þe "Svavars" leið hef ekki tíma og "bara" borga ?

ég styð heilshugar Bjarna Benediktsson sem sagði í dag: „Ég er mjög ósáttur við að við gefum frá okkur réttinn til að láta reyna á réttarstöðu okkar á sama tíma og við föllumst á allar kröfur Breta og Hollendinga. Mér finnst augljóst að þetta er óviðunandi niðurstaða."

 


mbl.is Óviðunandi niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað getur niðurstaða í svona deildu aldrei orðið annað en ömurleg. Sérstaklega þegar að samningsstaða okkar er nákvæmlega núll. Okkur vantar lán og fyrirgreiðslu erlendis og allt er fryst á meðan ekki er samið. Það má segja því lengur sem deilan dregs, því verra fyrir okkur og því verri samningsaðstaða.

Af einhverjum ástæðum erum við ein heiminum. Allar okkar nánustu vinaþjóðir segja bara eitt, þið verðið að semja og axla ykkar ábyrgð.

Í ljósi yfirlýsinga ráðamanna sl. haust, fyrir og eftir hrun, þá má spyrja sig hvort við höfum e.t.v. slæman málstað að verja. Þá er augljóst að Bjarni Ben. er með þetta mál í flokkspólitísku stríði en ekki með hag þjóðarinnar í huga. Öðruvísi er ekki hægt að skilja þá afstöðubreytingu sem hefur orðið hjá honum og sjálfstæðismönnum. Það voru jú þeir sem lögðu drög að þessum samningi, bara miklu miklu verri.

Kristján (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 18:53

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Er það ekki með alla hluti sem látnir eru dragast á langinn að samningsstaða er til hins verra - vantar lán ? við höfum ekki verið nægjanlega staðföst í neinu, við eigum mikið af fisk í frystihúsum vítt og breitt um landið, er það ekki ágætis trygging í dag ? við gætum svo veitt meira sem nota mætti sem "gjaldmiðil" eða "tryggingu" ?

Hver er sinnar gæfu smiður, hver sem á í hlut þá þurfa menn að klóra sig upp úr vandamálunum á eginn spítur en ekki að treysta á að einhver annar gera það fyrir okkur.

Bjarni Ben tvinnar þetta saman no eitt með hag þjóðarinnar fyrir brjósti og svo á pólutískum nótum, hann er vel máli farinn og ég vil meina að hann fari ekki með neitt fleipur. Mikið rétt að Sjálfstæðisflokkur ásamt Samfylkingu kom þessu af stað - ég er heldur ekki að mæla því bót þar innanborðs ef ég tala bara um Sjálfstæðisflokkinn þá mætti td Katrín ofl víkja til að ná víðari sátt, innan flokksins sem milli manna á íslandi

Jón Snæbjörnsson, 18.10.2009 kl. 20:09

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Að gera samkomulag við erlenda aðila, annað en það sem Alþingi var búið að setja í lög er, alvarlegt brot á stjórnarskránni og um leið gerir ríkisstjórn Íslands sig seka um landráð.  Ef einhvern tíma hefur verið þörf á landsdómi þá er það núna.

Jóhann Elíasson, 18.10.2009 kl. 21:30

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Æðstu menn þjóðarinn gera sig líklega til hunsa aftur og aftur stjórnarskrána sem og það sem Alþingi hefur áður samþykkt.

Við erum gjörsamlega að missa okkur og tiltrú annrra ríkja á okkur sem þjóð með réttu ráði fer þverrandi

Jón Snæbjörnsson, 18.10.2009 kl. 21:55

5 Smámynd: Sigurður Helgason

Er það virkilegt að þið trúið þessu sem þið eruð að skrifa, ja ylla er fyrir okkur komið,

Sigurður Helgason, 19.10.2009 kl. 00:00

6 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Tek vel á móti öllum athugunarsemdum Sigurður

Jón Snæbjörnsson, 19.10.2009 kl. 09:04

7 Smámynd: Sigurður Helgason

jón ef BJARNI segir að við höfum gefið frá okkur réttin um málsókn,hann er engin guð DAVÍÐ var í  guða tölu

Er það þá rétt, þegar alstaðar stendur að ef við sækjum rétt okkar fyrir dómstólum verðum við að halda áfram að borga þar til bómur fellur og þá er hægt að semja aftur eða endurgreiða,,,, 

ég er sjálfstæðismaður og hef ekki skammast mín fyrir það hingað til, en að lesa hvernig flokkurinn hagar sér og menn sem styðja hann tala þá fer ég að hugsa minn gang,

Það þarf að fá DAVÍÐ aftur ef ekki á að ganga frá flognum hann lagði línurnar og sagði hinum að þegja, nú eru flokkmenn stjórnlausir í kjaftæðinu,

Það er ekki góður vitnisburður

Sigurður Helgason, 19.10.2009 kl. 09:27

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Þetta bull er búið að taka heilt ár Sigurður - Davíð guð eða ekki hef bara ekki hugmynd um - allavegana er ekki hægt að nýta sér hann lengur - þjóðfélagið mundi aldrei meðtaka boðskap frá honum svo sátt væri um - ættli við höfum ekki nóg með að verja Þorgerði Katrínu í þessu bulli öllu en auðvitað hefði hún átt að vera farin -  Davíð er eflaust ágætis maður eins og svo mörg okkar.

Mer er það illa skiljanlegt að ætla að borga eitthvað sem ég veit ekki hvað er - sjálfur mundir þú ekki borga blint td rafmagnsreikning þetta er ekkert öðruvísi nema upphæðin er líka gígantísk hér.

Vandamál okkar Sjálfstæðismanna að mér finnst er að verja fólk td eins og Þorgerði - hún átelur aðra út og suður en virðist hunsa allt það sem hún stóð fyrir hér áður - það svíður mér illa undan.

Davíð kemur ekki aftur - Bjarni Ben er fínn drengur með sitt á hreinu - málefnanlegur og kemur vel til skila því sem hann ætlar sér - styðjum við manninn og reynum þá frekar að hafa áhrif á hann ef við teljum slíkt þurfa - þetta er ekki auðvelt hjá honum með KÞG ofl fyrrverandi í kringum sig

Jón Snæbjörnsson, 19.10.2009 kl. 09:48

9 Smámynd: Sigurður Helgason

jón ég er sammál þér í öllu nema að ég get ekki meðtekið Bjarna, það er líka erfitt að lesa um allt skítkastið, við verðum að viðurkenna að við vorum í stjórn þegar að allt hrundi og erum því ábirgir og að reina að bera það af okkur er hneisa fyrir flokkinn,

Og þetta ár sem er liðið kemur ekki aftur og við verðum hvar í flokki sem við stöndum og bjarga hverju öðru,

Ekki vildi ég vera á sökkvandi bát með þessu skítkast liði, það myndi ekki rétta hvort öðru höndina til að bjarga mönnum upp í bjargbátinn, af því það er ekki sömu skoðunar,   

Og allt þetta gaspur EVRÓPUSAMBANDIÐ, nú ef þjóðin vill ekki inn þá kjósum við okkur út, en ef það verður samþykkt get ég lítið gert :) 

Sigurður Helgason, 19.10.2009 kl. 10:27

10 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að mála sig út í horn og þá fyrst og fremst að ég tel vegna þess að þar eru "mein" sem hefðu átt að vera farin fyrir löngu síðan - mér finnst samt að Bjarni Ben sé að vinna aðeins á þegar hann fær að vera í friði.

Við erum í vondum innrimálefnalegum málum sem og út í þjóðfélaginu sökum fyrri afglapa og yfirsjóna einstaka einstaklinga

Ég býð þér mína hönd og ég veit að ég fengi að taka í þína ef á þyrfti að halda

Jón Snæbjörnsson, 19.10.2009 kl. 10:46

11 Smámynd: Sigurður Helgason

takk fyrir það jón minn,

það er annað með Jakob Þór Harðarson þér á blogginu, hann beiddi út spurningum mínum og lokaði á mig, hefur önuglega tekið því sem bónaskap af mér að vera í sama flokki en ekki sammála honum um skítkastið,

Hefur svo einkunnar orðinn heilbrigð skynsemi,

Sigurður Helgason, 19.10.2009 kl. 11:02

12 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

við erum öll misjöfn Sigurður

Jón Snæbjörnsson, 19.10.2009 kl. 11:10

13 Smámynd: Sigurður Helgason

Hann er víst Haraldsson ekki ætlaði ég nú að rangfeðra hann

Sigurður Helgason, 19.10.2009 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband