Eru sumir þingmenn að slá sjálfa sig til riddara ..........

það er margt brínna sem má gera í vegaframkvæmdum en þetta hér ......en ef norðanfólk ætla að borga þetta sjálfir þá er mér "nok" sama hvað þeir gera .....

Akureyri. Vaðlaheiði í baksýn.

Það hefur oft verið "bloggað" um þetta mál og þessi ágæti maður hér skrifaði svona

********

Brynjar Þór Guðmundsson,

 

Ég bý út á landi og mér finnst hugmyndin um vaðlaheiðargöng eitthvað sem má bíða síns tíma, þarna(ljósavatnsskarð) getur gert vitlaust veður þá er styttingin næstum eingin, vegurinn í góðu lagi, umferð yfir vetramánuðina lítil, framkvæmdin dýr  og ávinningurinn lítill sem enginn. Nær væri að huga að framkvæmdum sem

A) spara pening

B) Auka öryggi vegfarenda stórlega, t.d. ryðja burt slæmum vegum hættulegum hlíðum svo eitthvað sé nemt

C)  stytta vegalengdir stórlega

Það væri meiri skynsemi í að bora hjartardalinn-víðidalinn og losna við öxnadalsheiðinna, það styttir leiðina RVK-AK um 93 KM s.k vegagerðinni

Eða hjá almennt á vestfjörðunum

Eða að ganga frá vegunum við vopnafjörð og taka vegina inn í Borgarfjörð eystri

það á enn eftir að klára við Höfn 

Eða að bora göng til eyja(vestmanneyja), áætlaður kostnaður er 12-15 miljarðar en til samanburðar kostar herjólfur 1.5 miljarða á ári, sandeyjahöfn er ekki ókeypis, hvorki í smíði né sanddælingu

Vaðlaheiðin má bíða betri tíma þegar þetta að ofan hefur verið afgreitt

********

Mun gáfulegri og kostnaðarminni framkvæmdir sem hver einasti þingamaður ætti að gera sér grein fyrir að ættu að hafa forgang á Vaðlaheiðargöng.


mbl.is Nýtt félag um Vaðlaheiðargöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Já þú meinar en hvað um Héðinsfjarðargöng sem þú og ég erum nú þegar að borga með sköttum á bíla og eldsneyti, svo ekki sé minnst á Sandeyjarslysið!

Sigurður Haraldsson, 23.2.2011 kl. 16:44

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

er á þá vitleysu alla bætandi Sigurður ? held ekki

Jón Snæbjörnsson, 23.2.2011 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband