Vestmannaeyjar verði "alfarið" vistvæn eyja ......

á heimsvísu viljum við svo stundum vera framarlega í "vistvæðingu" - því sting ég upp á að Vestmannaeyjar verði fyrir valinu hér - engir bílar í eyjunni, ekkert sem veldur "óþarfa" útblæstri - hugsanlega hundruð prósenta aukning ferðamanna til Vestmannaeyja - ný tækifæri kanski, öðruvísi tækifæri.

Allt vesen með Landeyjarhöfn heyrir að mestu sögunni til með tilkomu mun minna skips eða öðruvísi skips, jafnvel svifnökkva þar sem hann mun að mestu leiti eða eingöngu flytja fólk og farangur - opnun þjónustumiðstöðvar á sandinum fengi nú grænt ljós frá yfirvöldum ......

Herjólfur siglir sína fyrstu ferð frá Vestmannaeyjum í LandeyjahöfnLandeyjahöfn

Vestmannaeyjabær ætti hæglega að geta fengið greiddan "vistvænisstyrk"  frá UNICEF sem næmi hundruðummilljóna ár hvert - sem að hluta færi td í hönnun "línu" fyrir td raflestar eða sporvagna sem færu um eyjuna á vistvænan hátt.

nýtt viðhorf sem og aðeins öðruvísi hugsun - eyjafólk hefur áður af landfræðilegum orsökum ss eldgos þurft að gefa aðeins eftir en jafnharðan unnið til baka aftur og meira en það .... mörgum okkar til að læra af, og kanski til eftirbreytni af öllu eða einhverju leiti .....

Woundering        ......................       GetLost    ...................    Whistling


mbl.is Enn þokast ekkert í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta finnst mér góð hugmynd. Hef oft hugsað; hvað eru eyjarskeggjar að gera með einkabíla á eyjunni. Það tekur aðeins nokkra mínútur að labba hana enda á milli. Þá eru flestir akfeitir, eins og Árni Johnsen og hefðu mjög gott af því að hreyfa sig.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 26.10.2010 kl. 11:17

2 identicon

Hugmyndin hjá þér Jón er ekki svo galin.  Við Hauk vil ég segja að Eyjamenn eru ekkert öðruvísi en aðrir Íslendingar.  Við notum bílana okkar sem regnhlífar eins og aðrir landsmenn, sem skjól fyrir rigningu og vindi.  Að við séum akfeitir vísa ég til föðurhúsanna enda eru allir karlmenn í Eyjum vöðvastæltir með afbrigðum og öllu jöfnu berir að ofan daglangt ;-)  En allir hafa vissulega gott af því að hreyfa sig.

Janus Guðlaugsson (IP-tala skráð) 26.10.2010 kl. 11:50

3 identicon

Í svissnesku ölpunum er frægur ferðamanna staður sem heitir Zermatt. (http://en.wikipedia.org/wiki/Zermatt). Íbúar eru 5800 og bærinn er í 1620 m hæð við rætur hæðstu fjalla sviss. alpanna. Engin bensín- eða ólíubílar eru leyfðir í bænum, eingöngu bílar sem ganga fyrir rafmagni. Þetta hefur komið gífurlega vel út og engum dytti til hugar að breyta þessu.  

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 26.10.2010 kl. 12:21

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

takk fyrir "comentin"  strákar - held að Haukur hafi að mestu verið að gantast þetta með Árna  annars mjög fróðlegt sem og merkilegt þetta með bæjinn ZERMATT

Jón Snæbjörnsson, 26.10.2010 kl. 13:15

5 Smámynd: Heimir Tómasson

Og svona til að þróa konseptið frekar má stinga upp á að ferjusamgöngur milli lands og Sandeyjarhafnar samanstandi af árabátum.

Heimir Tómasson, 26.10.2010 kl. 14:49

6 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

fullkomnar þetta Heimir eða þannig

Jón Snæbjörnsson, 26.10.2010 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband