Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

einfalt dæmi sem sýnir hvernig þetta verður

Tryggvi er inni í bankanum af sömu ástæðu og Sigurjón. Það er búin að fara fram mikil vinna þar - sem er hvergi nærri lokið - sem snýst um að bjarga fyrirtækjum Jón Ásgeirs. Eða semsagt að skipuleggja hvernig er hægt að losa hann við þau eða selja þau leppum hans og taka yfir skuldirnar þannig að skattborgarar þurfi að borga þær í framtíðinni. Sama vinna fer fram í hinum bönkunum. Það er búið að ganga frá a.m.k. tveim málum nú þegar; 365 hjá Landsbanka og HUMAC hjá Glitni. Tökum dæmi af HUMAC - en það er dæmigert fyrir hvernig þessi mál eru unnin:(Einfölduð versjón)
- JÁJ kaupir HUMAC á milljarð með fullri skuldsetningu
- JÁJ skuldsetur fyrirtækið enn meira
- JÁJ strípar fyrirtækið enn frekar
- Fyrirtækið fer á hausinn
- Skattborgar borga alla skuldsetningu - ca 1,4 ma
- JÁJ borgaði semsagt aldrei fyrir fyrirtækið - skuldsetti það bara og tók úr úr -því pening - skattborgarar borga það allt
- Glitnir selur fyrirtækið á 50 millj til fyrri eigenda án þess að leita betri tilboða
Fylgist bara með því sem gerist á næstunni. Við eigum eftir að sjá hvert Baugsfyrirtækið af öðru afgreitt á þennan hátt. Skuldir settar yfir á skattborgara og hræin seld leppum. Þetta er í gangi hjá fleirum en Baugi auðvitað. Nú er t.d. Karl Wernersson að sleikja sig upp við Birnu vinkonu sína í Glitni með sitt gjaldþrota Milestone.

á förnum vegi datt ég um þetta, hvað af þessu er satt ef þá nokkuð læt ég ósagt

Landsbankamaðurinn sem var hnepptur í varðhald fyrir 100 miljóna fjárdráttinn er farinn að mala á fullu.Davíð Oddson hefur þessi sönnunargögn, þetta er ein af leynibombum hans en hann er með gögnin um þetta mál og líka mál á fleiri þingmenn. Þess vegna mun hann fagna utanaðkomandi rannsókn. Upplýsingar um braskið hans Lúðvíks sem á Fasteign ehf, Miðklett ehf og Eykt ehf - sem á nánast aðra hverja byggingu í Borgartúninu,koma úr átt Davíðs, sem gerði slíkt hið sama við Þorgerði Katrínu á sínum tíma í tengslum við Kaupþing í nóvember sl.Lúðvík er ekki sá eini sem fékk sk. “mútu lán” hjá L.Í, lán með helmings lægri vöxtum en gengur og gerist.-Sif Friðleifs fékk líka 75 milljónir líka á vildarkjörum til að kaupa hlutabréf í Decode - sem er líka verið að afskrifa- Þorgils Óttar fékk Keflavíkurflugvöll á 11 miljarða en ásett verð vallarins eru 50 miljarða á vildarkjörum frá L.Í en hann hefur aldrei þurft að borga krónu af því og það er verið að afskrifa það líka.Ég hef fengið þessar upplýsingar staðfestar og sannaðar en málið er að um 80 - 90% þingmanna eru innblandaðir inn í viðskipti af þessu tagi á einn eða annan hátt.Sigurjón Ólafsson er að vinna í þessum afskriftum á vegum Landsbankanum í Apóteksturninum í Austurstrætí og þá vinnu er hann að vinna augljóslega í felum með tætarana í fullum gangi.Og svona í lokin er Björgvin G. með myntkörfulán upp á einhverja tugi milljóna, borgar á aðra miljón af því á mánuði og mér skilst að KPMG hafi verið að vinna að afskriftum fyrir hann þegar þeir voru stöðvaðir í fyrradag, eitthvað hefur þó Sigurður G. lögfræðingur Glitnis og mágur Björgvins fengið þegar afskrifað nú þegar.Hef fengið það staðfest að uppýsingar af þessum toga hefur Davíð Oddson á nánast allan þingheim og er því sallarólegur.
þori þeir ekki að hrófla við honum og láti hann því frekar valta yfir sig á meðan þeir fá að láta tætarana ganga.

************ Birna Bankastjóri ? ************ muna

Það er nú bara hlægilegt að fólk eigi að trúa þessu!!!!

 Hver treystir bankastjóra sem kaupir hlutabréf með lánum fyrir tæpar 200 milljónir. Hefur svo ekki hugmynd um hvort hún hafi verið skuldfærð fyrir bréfunum fyrr en hún mætir á aðalfund mörgum mánuðum seinna? Hver myndi treysta svona manneskju fyrir peningum? Persónulega myndi ég ekki treysta henni til að geyma sóluðu vetrardekkin mín í stóra bílskúrnum hennar yfir blásumarið. Hún væri líklega búin að láta henda þeim þegar ætti að setja þau aftur undir um haustið. Shame að Davíð sé ekki í viðskiptum þarna. Hann myndi fara og taka út af bankabókinni. Íslendingar gera ekki svoleiðis. Láta bara svona rugl yfir sig ganga.“___________________________________________________________________________________________________________________________________________________

Hvernig stendur á því að bankastarfsmaður telur ekki rétt fram fyrir árið 2007? Var hún ekki byrjuð að borga af láninu, taldi hún ekki hlutabréfaeignina inn á skattframtalið. Hún ætlaði að nýta atkvæðisrétt sinn í febrúar 2008, hvernig er skattaskýrsla þessarar manneskju eiginlega? Hún hlýtur að hafa þurft að telja fram þar hlutabréfaeign sína í Melkorku, eða hvað er þetta eiginlega? Er hún kannski ein af þeim sem þarf að fá frest?

Komu aldrei greiðsluseðlar til hennar/Melkorku fyrirtækis hennar? Hefur hún ekki fyrirtækjabanka eða heimabanka?Það er svo mikil skítalykt af þessu, og ég held að spillingin sé bara rétt að byrja, djöf...... hafi það“___________________________________________________________________________________________________________________________________________________„Eitt skil ég ekki - þessi Birna mætir á AÐALFUND og veit ekki að hún hefur ekkert atkvæðamagn á bak við sig ???? ..... Er allt í lagi???Þá er manneskjan eigandi og framkvæmdastjóri Melkorku ehf - hvernig ætli bókhaldið hjá manneskjunni sé, fyrst hún veit ekki einu sinni hvernig eignastaða fyrirtækisin hennar sjálfrar er? ......HA? - getur einhver skýrt þetta út fyrir mér???Svo þarf að banna manneskjunni að leggja nafn formóður íslendinga við hégóma - Melkorka formóðir okkar var afar stolt kona sem hernumin var frá Írlandi og ég sé alvað að hún hefði tekið þessa Birnu og snúið uppá bæði eyrun á henni fyrir að misnota svona nafnið Melkorka..“___________________________________________________________________________________________________________________________________________________Hvernig fara svona viðskipti fram- ég bara spyr?Birna fékk lán upp á 180 milljónir króna til 5 ára hjá Gamla Glitni fyrir næstum tveimur árum - Í FEBRÚAR 2007 - til að kaupa hlutafé á undirverði. Lánið var raunar til Melkorku Ehf (einkahlutafélag sem er í mikilli tísku hjá bankamönnum sem keyptu hlutabréf af því að því þeir höfðu svo mikla trú á fyritækjunum sínum en stofnuðu samt einkahlutafélög af því að þeir vildu ekki vera persónulega ábyrgir!!). En jæja ..... lánið góða er gefið í febrúar 2007.Ári síðar - í febrúar 2008 - kemur Birna á aðalfund og vill nota atkvæði sín sem hluthafi en babb er komið í bátinn. Hvað gerðist þá? Það vantar alveg áframhald sögunnar. Sagði Birna bara “allt í fína - ég sleppi þessum kosta-kjörum”. Hvað gerðist á aðalfundinum - gékk hún bara í burtu sneypt og engir eftirmálar.Hvernig var lánið veitt í febrúar 2007? Var það hvergi tekið fyrir á formlegan hátt? Hver bar faglega ábyrgð á lánum til starfsmanna bankans á þessum tíma? Er sá starfsmaður enn í vinnu? Ef hann er enn í vinnu stendur ekki til að reka hann. Við eigendur bankans erum núna 180 milljónum kr. fátækari vegna þessarar handvammar. Var engu þinglýst? Hvernig voru skattauppgjör Melkorku í millitíðinni? Hvernig er staða Melkorku Ehf í dag?Hefur FME svarað þessum spurningum? Hvað með fjölmiðla?PS: Það var skelfilega aumt að hlusta RUV lesa fréttatilkynningu FME án nokkurra spurninga...

Baugsmenn á ferð - Jólalán Hagkaupa vinsæl

 

Enn á ný styðja þeir við bakið á Íslenskri alþýðu - erum við bjánar

 

Um tvö hundruð og þrjátíu manns hafa fengið jólalán hjá Hagkaupum til fjármagna innkaupin fyrir jólin.

Það er barist um viðskiptavini fyrir þessi jólin eins og endranær og líklega enn frekar nú en mörg undanfarin ár. Framlag Hagkaupa til baráttunnar er að bjóða viðskiptavinum vaxtalaus jólalán þegar þeir versla í Hagkaupum. Kostnaðurinn við lántökuna er þriggja prósenta lántökugjald og hægt er að dreifa greiðslum af láninu í allt að sex mánuði.

Hvorki er hámark né lágmark á jólaláninu en að sögn Guðrúnar Evu Gunnarsdóttur fjármálastjóra Hagkaupa eru flestir að taka um 50 þúsund króna lán. Á föstudagskvöld höfðu um 230 tekið jólalán Hagkaupa. Samkvæmt dæmi af heimasíðu Hagkaupa er kostnaðurinn af 40 þúsund króna jólaláni, sem dreift er á þrjár greiðslur, um 1190 krónur.

úúúfffffffffff .............. lenging í snörunni - veit ekki

 

http://visir.is/article/20081214/VIDSKIPTI06/905652253/-


oftúlkun ?

  er ekki verið að oftúlka orð Jóns Gerld - hann svo sem talaði um hann hefði hugsað til þess að flytja til Íslands og opna lágvörurverðsverzlanir ef hann fengi stuðning til slíks, ég styð ekki við bakið á Baugsfjölskyldu, verzla því annarsstaðar
mbl.is Hyggst stofna lágvöruverðsverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með fullri virðingu Þorgerður Katrín.....

Kristján Arason, eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, átti miklar upphæðir í Kaupþingi í gegnum eignarhaldsfélagið 7 hægri ehf. Sem einn af lykilstjórnendum gamla Kaupþings fékk hann lán hjá bankanum til kaupa á hlut í Kaupþingi en auk þess settu þau hjón sparnað sinn í félagið og segjast hafa tapað miklum fjármunum við fall bankans.

 Þorgerður segist ekki vita hvort félagið muni fara í þrot. Hún segir að farið verði að lögum, og félagið meðhöndlað eins og önnur félög. Aðspurð hvort það þýði ekki að félagið fari í þrot sagðist hún ekki vita það. Spyrja þyrfti eiginmann hennar að því.

Vil engum svo illt að tapa sínu sem stritað var fyrir á heiðarlegan hátt

leiðilegt að þið hjón náðuð ekki að "tutla" nokkur hundraða milljóna inn á einkareikninga ykkar eða kanski bara eiginmanns þíns

ertu traustsins verð úr þessu

 http://visir.is/article/20081214/FRETTIR01/752580651/-1

 


Nýársfagnaður fræga fólksins - nú verður gaman að sjá....

Árlegur nýársfögnuður verður haldinn níunda sinn í Súlnasalnum Hótel Sögu 1. janúar 2009. Fjöldi fólks fagnar saman komu nýs árs í Súlnasalnum á Hótel Sögu

http://www.visir.is/article/20081212/LIFID01/577976581


Því þarf að hækka álögur á fólkið ?

 

Maður nær ekki upp í nefið á sér orðið - hvað er að ske með Sjálfstæðisflokkinn minn ? hækka bifreiðagjöld - álögur á bensin - nefskattur vegna RÚV sem ég tel að séu stór mistök - RUV á að ver áfram í okkar eigu - úffffff - hvar er niðurskurðurinn td í utanríkisþjónustunni - má ekki fækka Sendiráðum - fækka erlendum starfsmönnum sem borga td ekki nein skattskild gjöld hingað heim en nýta sér alla þjónustu í topp ???? spara frekar en að hækka álögur á fólkið

vonleysi reiði sársauki  tortrygginn


Algjörlega stjórnlaust

Dapurt ástand hér að verða - held að við séum að nálgast moldarkofana aftur -  - skattar upp - nefskattar settir á - auðmenn sitja enn borubrattir og einir að kjöt-kötlunum - farinn að gruna að við getum ekki ráðið við okkur sjálf og hvað þá þjóðfélagið í heild - soddans barbarar - hér er handstýrt þegar það hentar annars sjálfstýringin á en algjörlega eftirlitslaust - svo stutt í grinningar að hrollur fer um mann - ESB er það lausnin - farinn að gruna að ráðamenn ráði ekki við þennan vanda sem steðjar að okkur og þurfi því sér æðri til að vinna undir - ekki nokkur eining í einu eða neinu - sökkvum dýpra og dýpra ef fer sem horfir Woundering


Ingibjörg Sólrún / Utanríkisráðuneytið, spara ca 35 milljónir í styrkjum til fátækra

Sló mig þessi frétt um daginn að til stæði að skera niður til hjálparstarft í Afríku um 35 milljónir sem bara bitnar á sárafátæku fólki og börnum þá helst - skildi ekki fréttamanninn sem tók þessu með fálæti, hann hefði frekar átt að spyrja hvort ekki stæði til að fækka sendiráðum sem og sendiherrum og hvort enn stæði til að opna sendiráð í Indlandi ?

 

ekki að undar að fréttamennskan er eins og hún er - þurrt og skorpið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband