Davið kom þessu mjög vel til skila

Eins og svo oft áður þá stendur þessi maður öðrum framar - komst vel að orði og útskírði vel fyrir spyrlum sem og hlustendum.

Bjarni kom skemtilega á óvart - ég beið eftir að hann lemdi aðeins í borðið til að leggja áherzlu á orð sín - já hann stóð sig vel - staðfastur og ég sá að Steingrími leist ekkert á kappann í kvöld - Bjarni var bara fjandi góður - ef þú heldur svona áfram Bjarni

Steingrímur J er gjörsamelga búinn að missa tökin á þessu öllu saman - hann getur ekki viðurkennt vanmáttt sinn sem og Svavars kunnáttuleysi í að leggja í að semja við Breta um Icesave - samt á að reina að troða þessu áfram - með illu skal illt inn fara og setja þar með þjóðina á vonarvöl

Ég segji NEI ég borga ekki Icesave


mbl.is Engin ríkisábyrgð á Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Ég sá alveg ljómandi skemmtilegt viðtal um daginn (sem tekið var gegnum miðil haustið 1945) Þar var rætt við mann sem kvaðst hafa verið uppi í Þýskalandi framundir miðbik tuttugustu aldar og heita Adolf (Hitler eða eitthvað svoleiðis í eftirnafn). Hann sagðist alla tíð hafa séð fyrir að heimstyrjöldin seinni myndi enda með ósköpum og í viðræðum sínum við Göring og Himmler hefði hann sagt á þá leið að "þið getið herjað og eyðilagt allt í Póllandi og Rússlandi en þið hafið ekkert leyfi til þess að eyðileggja Þýskaland kálfarnir ykkar"!

Samt hefði verið látið alveg fáránlega illa við sig og vondir menn hefðu sótt að sér með vopnum og reynt að flæma sig útúr einhverju seðlabankalíku vel steyptu byrgi þar sem honum fannst hann eiga svo vel heima og vera þjóð sinni til gagns og sóma þar sem hann sat...

Horfði á þetta viðtal. Það er alveg með ólíkindum hvað blessaður maðurinn getur látið útúr sér, og komist upp með það.

Spurt var hvort hann teldi sig bera einhverja ástand á bankahruninu. Svarið var á þá leið; Við berum öll einhverja ábyrgð og ég þá að sjálfsögðu líka. Spyrill: En hefur þú ekki verið æðsti eða meðal æðstu manna undanfarin 50 ár? Svar: Ég varð forsætisráðherra árið 91 og hófust þá miklir frjálsræðistímar og uppgangur mikill meðal þjóðarinnar. Og...? hugsaði ég, en það var ekki spurt meir.

Ég fór að hugsa; var hann kannske laungu hættur í pólitík þegar Landsbankinn var seldur og keyptur með peningum úr hinum ríkisbankanum og aldrei borgað? Davíð er svo ótrúlega brattur eitthvað og sannfærandi að ég fór stórlega að efast um mitt eigið minni. Var hann kannske ekki seðlabankastjóri heldur? Ég hreinlega varð að fara á Wikipedia til þess að taka af allan vafa. Og jú, þar stendur reyndar þetta: "Davíð Oddsson (fæddur 17. janúar 1948) er íslenskur stjórnmálamaður og var forsætisráðherra Íslands frá árinu 1991 til ársins 2004 lengst allra, en var einnig borgarstjóri í Reykjavík frá árinu 1982 til 1991, utanríkisráðherra frá 2004 til 2005 og formaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2005. Davíð gegndi stöðu aðalbankastjóra Seðlabankans 2005 til 2009.

Svo komu gullkornin hver af öðru. Hann er til dæmis að safna saman gögnum sem sýna að Seðlabanki Íslands vissi af aðsteðjandi bankakreppu og heimskreppu laungu á undan öllum öðrum bönkum heims. Nýr Nostradamus er upprisinn mitt á meðal vor GetLost

Og gengi íslensku krónunnar var á uppleið en hríðféll þegar "gerð var aðför að seðlabankanum" eins og hann kallar það þegar honum var loksins komið þaðan út. Gengi íslensku krónunnar er sem sagt háð því hvort Davíð Oddsson dinglar sér í aðal stólnum í Seðlabankanum eður ei Grin

Jón Bragi Sigurðsson, 14.7.2009 kl. 00:29

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Ekkert að óttast Jón Bragi - vertu bara rólegur

Jón Snæbjörnsson, 14.7.2009 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband