Strandveiðar hefjast - brottkast hefst á fullu ?

Veiðar eru leifðar yfir sumarmánuðina og enda í lok ágúst, veiðitími er 5 dagar vikunnar og mest 14 tímar í senn - hámarks afli í hverri ferð er 800 Kg - nú er ég hræddur um að brottkastið verði mikið hér sem er nákvæmlega það sem við viljum ekki sjá, en hvernig best er að stilla því í hóf eða varna að ekki sé stundað kann ég ekki

http://visir.is/article/20090625/FRETTIR01/837241001/-1


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég er sammála þér að vera ekkert að binda hendur þeirra manna sem vilja afla þjóðinni gjaldeyris með vinnu sinni með því að hafa þetta 800 kg afla hámark.

Sigurjón Þórðarson, 26.6.2009 kl. 00:04

2 Smámynd: Sjóveikur

þú ert greinilega ekki vel að þér um fiskirí ljúfurinn, brottkastið er ekki stundað af handfærabátum með sama útgangi og önnur veiðimennska gerir, handfæra fiskur er lifandi þegar hann er dregin upp og lifir 99% ef honum er gefið líf !

kjaftaður varlega um það sem þú ekki veist um væni, brottkast er stundað ennþá á fullum gír á stóru veiðiskipunum, bara svona ef þig langar að vita það

Byltingar kveðjur, sjoveikur

Sjóveikur, 26.6.2009 kl. 00:10

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

það erfitt að stjórna þessu Sigurjón svo vel fari og allir sáttir

Sjóveikur, alveg rétt hjá þér ekki hundsvit á þessu en get mér þó til að valið sér úr karinu þeir fiskar sem mestu verðmætin gefa "útgerðarmanninum" sem og "veiðimanninum" áður en lagt er af stað í land

Jón Snæbjörnsson, 26.6.2009 kl. 08:13

4 Smámynd: Sjóveikur

Já Jón, þetta er nefnilega búið að þvæla þessi mál í "klessu" ef svo má segja, og þeir sem stýrt hafa upplýsingaflæði hingað til eru þeir sem eru hagsmunaeigendur, þá tala ég um útgerðarmenn stærri báta og í dag þessa svokölluðu kvótagreifa, en handfæraveiðar eru svipuð veiðiaðferð og stunduð er á bryggjunni af guttum, þú einfaldlega sleppir fiskinum aftur ef hann ekki passar því sem þú sækist eftir, en flestir sem stunda handfæraveiðar eru latir eins og fólk er flest, þar af leiðandi fljótir að kippa úr smáfiski ef eitthvað annað er að hafa, sem oftast er.

ég skal "hvísla" að þér alvöru grunni þessa veiðihamla á smábáta, það er ekki fiskivernd sem liggur þar á bakvið, fremur það að handfæraveiðar eru minna stabílar og erfiðara að skipuleggja verkunarhúsin eftir afköstum smábáta, svo er annað mjög mikilvægt atriði, sérstaklega fyrir vestan, ef smábátaveiðar verða frjálsar koma þeir til með að tapa mannskapnum á stóru skipunum ! og það er hin raunverulega ástæða fyrir veiðiskerðingu sem sett var þegar Sómabátarnir komu á sjónarsviðið og menn fóru að geta verið eins og menn við veiðarnar og koma heim á kvöldin.

Bræðslu veiðar eru hinsvegar það versta sem til er í fiskiveiðum Íslendinga ! en ég á eftir að taka þessi mál betur í gegn á heimasíðu okkar innan skams og ætla ekki að þreyta þig of mikið núna, en þú ert velkomin að fylgjast með á þessari síðu www.icelandicfury.com og ég er nokkuð viss um að þú átt eftir að verða undrandi á mörgu sem fram mun koma þar, það er margt ljótt í íslenskum fiskiðnaði og veiðum.

Kveðja, sjoveikur

Sjóveikur, 26.6.2009 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband