Kunna þeir að stíga ölduna þessir..................eða vita þeir hvað það er...

Greiningardeild Glitnis gerir ráð fyrir að niðursveilfan hér á landi muni standa út næsta ár en að hagkerfið taki aftur við sér árið 2010. Enn fremur telur greiningardeildin að íslenska fjármálakerfið standist þá ágjöf sem nú einkennir hið alþjóðlega fjármálakerfi. Þetta var meðal þess sem fram kom á morgunverðarfundi greiningardeildarinnar þar sem kynnt var þjóðhagsspá fyrir árin 2008-2011.

Fram kom í máli Jóns Bjarka Bentssonar, hagfræðings hjá greiningardeild Glitnis, að síðustu fimm ár hefðu verið uppgangstími í íslensku efnahagslíf sem hefðu einkennst af miklum hagvexti og almennri velmegun. Þetta hefði meðal annars verið ávöxtur umfangsmikilla kerfisbreytinga og stóriðju. Við þetta hefði bæst almenn neyslugleði sem drifin hefði verið áfram af kaupmáttaraukningu. „Þetta skeið er nú á enda og við tekur aðlögun," sagði Jón Bjarki og bætti við að hún væri tímabær og nauðsynleg.

Hann sagði enn fremur að greiningardeild Glitnis hefði lagst yfir tölur og söguna og út frá því teldi hún að lendingin í íslensku hagkerfi sem yrði tiltölulega farsæl. Bankinn spáði því að landsframleiðsla yrði óbreytt frá síðasta ári á þessu ári og einnig því næsta. Þjóðarútgjöldin myndu dragast saman á þessum árum eftir geysimikinn vöxt undanfarin ár og fyrirtæki og heimili þyrftu að herða sultarólina. Heimilin væru hins vegar vel búin undir niðursveiflu því þau hefðu notið kaupmáttaraukningar og hækkandi eignvaverðs.

Greiningardeildin gerir enn fremur ráð fyrir að einkaneysla taki aftur við sér árið 2010 með styrkari krónu og meira jafnvægi í utanríkisviðskiptum. Horfur séu á ágætum hagvexti í framhaldinu án þess að til komi sú spenna og sú þensla sem einkennt hafi síðustu ár.

Ég gef lítið í svona "brillianthátt"........... 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll.

Fjölmiðlarnir eru dreifingaraðilar svokallaðs áltits " Greiningardeilda bankanna" og standa sig vel í því hlutverki að bera allt það á borð er þaðan kemur sem hin einu sannindi hverju sinni.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.9.2008 kl. 02:02

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þeir eru klárir - þessi "venjulegu" Gunna og Jón sitja svo með kjammana hangandi niður á bringu full hrifningar - en skilja samt hvorki upp né niður

Jón Snæbjörnsson, 18.9.2008 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband