GULLBORG VE 38

velti fyrir mér hvort Vestmannaeyjingar hafi virkilega ekki áhuga á að "reyna" að fá þennan bát til eyja - í dag liggur þessi bátur í "fjörunni" við Mýragötu, 101 Reykjavik -  hafa kanski Eyjamenn gleymt sögunni um Binna í Gröf ?

Ég spyr líka - eiga Reykvíkingar ekki neinn merkilegan bát annan en Aðalbjörgina sem saga er að segja frá en er staðsettur á Árbæjarsafni í dag - verður hann kanski fluttur á Sjómynjasafnið ?

http://www.123.is/skipamyndir/blog/record/61583/

ég er félagi í verndun VS ÓÐINNS á vegum LHG - og er það gott enda það merkilega "skip" komið í örugga höfn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Sæll vinur.

Er Gullborgin ekki orðin ónýt??  Er eitthvað hægt að eiga við hana úr þessu.  Hún er búin að þorna mikið og gliðna sýndist mér þegar ég skoðaði hana um daginn.

Einar Vignir Einarsson, 12.9.2008 kl. 01:35

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Sæll félagi

hélt bara að Eyjamenn vildu passa upp á söguna sína, samanber hann Kútter ykkar á Akranesi - ekki er hann ónýtur þó svo hann sé ekki með haffærniskírteini upp á dags dato  en hann gleður samt marga og festir söguna í hugum og hjörtum ungra sem aldraða , en það kemur sennilega í hlut Reykvíkinga að halda utanum bátinn við "Mýrargötu" 101 Reykjavik

Jón Snæbjörnsson, 12.9.2008 kl. 08:12

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Sæll Tryggvi, þakka gott boð - kem til með að nýta mér það , ég er eins og þú í þessum hóp "Björgum Óðni" þar eru líka strákar sem birjuðu sinn feril á Óðni ´72 td hann Halldór Nellet

Jón Snæbjörnsson, 14.9.2008 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband