Boð og bönn Evrópu - "sambandsins" ......... rétt að birja ........ eftir litlu að slægjast

ég er bara ekki viss um að svona gamaldags "sambands" hugsunarháttur henti okkur sjálfstæðu íslendingum

það er kanski nú sem við ættum að sína þeim fingurinn og snúa okkur í aðrar áttir - kanski í vestur - eða breyta söluháttum - eða vinnsluferli ..........

Skip á makrílveiðum.

annars tel ég að besta staða okkar væri að fullvinna mun meira af fiski hér heima - byggja "alvöru" verksmiðjur, þetta er frekar mannfrek fullvinnsla sem þar af leiðandi kallar á fullt af nýjum störfum á öllum sviðum og upphefja þessa atvinnugrein til HÆRRI vega hér heima en gert hefur verið undanfarna áratugina.........við eigum til fullt af hæfu fólki til að landa svona hlutum svo vel fari ... fólk sem hefur þegar sannað sig hér heima eða á erlendri grund ..... ekki eftir neinu að bíða ....... hér er eftir MIKLU að slægjast ...........


mbl.is Skipum verði bannað að landa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sæll Jón.  Ég er sammála þér, ekki síst þetta með fullvinnsluna hérlendis.

En ég bíð spennt eftir viðbrögðum frá Hull og Grimsby...

Kolbrún Hilmars, 21.12.2010 kl. 12:48

2 identicon

Ég er að forvitnast aðeins, hverju skiptir það svo sem fyrir okkur hvort við megum landa í evrópuríkjunum ef við getum landað einhverstaðar annarsstaðar?

Gerum við það ekki bara og sendu restinni fingurinn.......

Jon Kristinn Pálsson (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 12:51

3 identicon

Það er bara að markaðsetja fiskinn í öðrum heimsálfum Kína er stór markaður með mikla möguleika.

Afleiðingarnar fyrir esb yrðu hrun á fiskmörkuðum sérstaklega í bretlandi við fiskvinnslu og með meira atvinnuleysi þar

otto (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 13:43

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sammála þér Jón með að "......hér er eftir MIKLU að slægjast".  Þess vegna má segja að þetta geti verið gleði frétt svona rétt fyrir jólin.

Magnús Sigurðsson, 21.12.2010 kl. 14:52

5 identicon

Jón, löndunarbann í EU er alvarlegt ástand. Mest af okkar fiskútflutningi fer til EU (sérstaklega UK).

Ég hef starfað í 15 ár á frystitogara og ef löndunarbann yrði raunin þá væri staðan slæm, í það minnsta tímabundið.

Reyndar hef ég heyrt að það sé einungis verið að tala um löndunarbann á  Makríl. Ef það er málið þá væri ég vel sáttur við það.

Ég fór tvo túra síðasta sumar (er í námi í DK) og við veiddum 500 tonn af þessu rusli á tveim vikum.

Þvílík vinna fyrir lítið fé er það eina sem ég get sagt um  Makrílveiðar á frystitogara !

runar (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 15:41

6 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Þetta um "fullvinnslu heima" og selja svo fyrir stóran pening er ég búinn að heyra talað um síðan ég fór að fylgjast með fréttum á sjöunda áratug síðustu aldar. Ef þetta væri svona gráupplagt og borðleggjandi þá hefði það örugglega verið stundað um langan tíma.

Við Íslendingar erum aldir upp í þeirri trú að íslenskur fiskur sé sá besti í heimi og að erlendar þjóðir séu tilbúnar að kaupa hann á nánast hvaða verði sem er. Staðreyndin er hins vegar sú að samkeppnin er hörð og ég hef hvergi heyrt það erlendis frá að íslenskur fiskur sé í einhverjum óskaplegum hávegum hafður frekar en bara fiskur frá Bretlandi, Portúgal, Noregi, Kanada og fleiri ríkjum sem veiða fisk. Og þó að íslenskt samfélag sé mjög svo háð því að geta selt fiskinn til útlanda þá mundi það muna útlöndin afskaplega litlu þó að fiskur hætti að berast frá Íslandi. Fyrir utan einstaka aðila sem hafa af því atvinnu. Allt tal um "hrun erlendis" þess vegna leyfi ég mér að álíta vafasamt.

Íslenska gengið er vissulega eins og stendur hagstætt þ.e. að gengi krónunar er lágt, en hvað lengi stendur það. Er það gefið að Ísland geti boðið fullunninn fisk á samkeppnishæfu verði? Norðmenn senda t.d. stóran hluta af sínum fiski til vinnslu til láglaunalanda til þess að vera samkeppnishæfir.

Jón Bragi Sigurðsson, 21.12.2010 kl. 19:54

7 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

runar, það vara frekar dapurt að horfa upp á veiðar á makrílnum í upphafinu - öllu "hent" í bræðslu sem aðrar þjóðir td norðmenn ná að gera mat úr og meiri verðmæti - sumt eigum við kanski ekki að koma nálægt þe ef við treystum okkur ekki til að fara betur með en raunin var á þarna.

Jón Bragi, margur íslendingurinn hefur fallið í þá grifju, moka upp fiskinum á sem stystum tíma og fá þannig skjótan en skammgóðan gróða - auðvita þarf að haga sér öðruvísi ef fullvinna á aflan - ég bara skil ekki þetta niðrandi tal um að vinna fiskinn meira hér heima - útgerðarmenn sumir lögðu sig í líma við að "níðast" á fiskvinnslufólki hér áður - léleg kaup og kjör að hálfa var meira en nóg - þetta þekkja þeir sem td unnu við þessi störf fyrir um 30 - 40 árum síðan og skemur, ekki nokkur ástæða að gera lítið úr því fólki öllu sem hrökklaðist frá þessum störfum og við tóku td fólk frá Nýjasjálandi og víðar og sættu sig við kjörin sem og verbúðarlífið ........ ekkert sem réttlætir það.

Eg er kanski ekki að tala um allan afla ekki strax allavegana - því ekki að gefa þessu séns - við sem eyþjóð ríðum kanski  ekki feitum hesti víða - túlipana ræktun tel ég td algjörlega út úr kortinu þó svo að sumir hallist fast að ýmiskonar blómarækt hér - Nei Jón Bragi tölum ekki niður til þessa hráefnis - vistvænar veiðar - vistvæn vinnsla er það sem koma skal og þar höfum við mikla möguleika ......... en sígandi lukka ...... góðir hlutir gerast hægt ....

Jón Snæbjörnsson, 21.12.2010 kl. 22:28

8 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Nei nafni, það er fjarri mér að vilja gera lítið úr fólki eða hráefni. Ég er aðeins að hvetja til dálítils raunsæis.

Jón Bragi Sigurðsson, 22.12.2010 kl. 05:02

9 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Tók því ekki þannig heldur Jón Bragi - ég tel "fiskvinnslu" ekki fiskveiðar fá neikvæða umfjöllum frá fáum en svo sterkum aðilum hér heima.

Hvað er raunsæi nafni - selja og leigja aftur ?

Jón Snæbjörnsson, 22.12.2010 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband