Því ekki ?

það er mikið til í þessu hjá Merði - því ætti ég að borga lán fyrir aðra - fara þarf þó mjög varlega -  fólk á samt að borga sín lán sjálft - ekki meira af 1980 ævintýrinu !!!


mbl.is Vill verðtryggingu á lánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Það er ekkert til í þessu hjá Merði ...frekar en endranær. Af hverju ættir þú Jón bloggari að borga lán fyrir aðra? Það lendir ekki á þér eða öðrum óviðkomandi að borga gengistryggðu lánin. Lánveitandi einfaldlega tapar gengistryggingunni sem hann ólöglega setti á lánin og því lækkar höfuðstóll þeirra sem því nemur. Vextir haldast óbreyttir en höfuðstóllinn hefur enga verðtryggingu, hvorki gengistryggingu eða hina alíslensku verðtryggingu með bindingu við neysluvísitölu. Það er heimskulegt hjal að halda að þú eða aðrir borgi þar með lán fyrir aðra. Lántakendur gengistryggðu lánanna borga sín lán auðvitað sjálfir en á eðlilegum kjörum en ekki uppsprengdum okurkjörum sem fjármálafyrirtækin hafa komist upp með að nota til að mergsjúga lántakendur.

corvus corax, 22.6.2010 kl. 14:57

2 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Bíddu viltu rökstyðja það að þú eigir t.d. að borga að bílaláninu mínu.

Sigurður Sigurðsson, 22.6.2010 kl. 15:07

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þegar fólk tekur lán þá á að borga það til baka með sanngjörnum vöxtum en ekki margfalt eins og tíðkast hefur nú í seinni tíð! Afleiðingarnar eru ljósar.

Sigurður Haraldsson, 22.6.2010 kl. 15:32

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ég get ekki fundið þá glufu að "skuld" hverfi alfarið ekki það þó að ég sé styðji ekki dóm hæstaréttar - Sparifjáreigendur fengu engar gjafir þegar fjármálakerfið féll 2008 þeirra eignir féllu gagnvart gengi eins og annarra engin sanngirni að taka af þeim allar eignir; auk þess varð fjármagn þeirra rekstrarfé bankanna annað var ekki til.

Skuldarar nú geta ekki búist við uppgjöf sinna skulda nema sem nemur gengistryggingu.

Gæta þarf sanngirni hjá öllum hópum

Jón Snæbjörnsson, 22.6.2010 kl. 15:47

5 identicon

Þegar höfuðstóll stökkbreyttist á gengistryggðu lánunum, þá voru greinilega einhverjir að "græða",, nú eru þeir sömu að tapa.

Það er engin annar að borga eitt né neitt fyrir einn né neinn.

Eins og þetta lítur út hjá flestum þá tóku þeir íslenskar krónur að láni tengda við erlenda mynt og þeir sömu eru að borga til baka íslenskar krónur.  Þessi tengin hefur núverið dæmd ólögleg, þannig að þessi "uppgjöf skulda" sem þú nefnir á einfaldlega ekki við þar sem hin meinta skuld var sett fram með ólögmætum hætti.  Eftir standa vextirnir og þeir eru auðvitað alveg löglegir eins og hæstiréttur hefur nú þegar kveðið á um í máli landsbankans.

stebbi (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 16:22

6 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þetta mál allt er vand með farið - líklega langt út fyrir minn skilning

vona að sátt náist sem víðast í þjóðfélaginu ég minni samt á að "skuld" hverfur ekki - hér er búið að ráðstafa öllu sem nú á að skila til baka - fólkið og fjölskyldurnar eru ávalt sá hópur sem halda þarf sem best um og vernda.

gangi okkur öllum vel

Jón Snæbjörnsson, 22.6.2010 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband