Látum "harða" áminningu duga hér ..............

því hvað um alla þá sem sumir kalla "landráðamenn" þe þeir sem komu öllum þessum ósköpum af stað - hvatar að öllu því róti sem nú mætir flestu venjulegu íslensku fólki - fjölskyldum og ætlar mörg okkar að kæfa

Á milli tuttugu og þrjátíu mótmælendur brutu sér leið inn í...

Fallar þeir ekki undir þetta eða er það ávalt þau sem vinna í "grasrótinni" sem skulu "negld" niður sem og "kefld"

100. grein almennra hegningarlaga. Hún hljóðar svo: „Hver, sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin, lætur boð út ganga, sem að því lýtur, eða hlýðir slíku boði, skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár, og getur refsingin orðið ævilangt fangelsi, ef sakir eru mjög miklar.“

Danir eru með sérstök lög yfir svokallaða "landráðamenn" og er ég viss um að ef djúpt er kafað þá má nota þau lög hér


mbl.is Mál mótmælenda þingfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrst þegar ég frétti af þessum kærum þá furðaði ég mig á þeim en ekki lengur. Hvers á starfsfólk Alþingis að gjalda - á fólk að komast upp með að slasa aðra? Mér finnst réttmætt að þeir sem fóru fram með slíku ofbeldi verði kærðir og dregnir til ábyrgðar. Hinir sem mótmæltu án ofbeldis eiga hins vegar hrós skilið og þakklæti þjóðarinnar - þeir eiga ekki að gjalda fyrir gjörðir lítils hóps ofbeldismanna.

Guðrún (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 11:12

2 Smámynd: Jón Óskarsson

Mótmæli eru í lagi.  En árásir á Alþingishúsið og það að brjóta sér leið inn í Alþingshúsið er eitthvað sem refsa þarf fyrir.  Sama gildir um þá sem skvetta málningu á hús og bíla.  Þetta eru hvorttveggja afbrot og hafa ekkert með "mótmæli" að gera.

Jón Óskarsson, 21.1.2010 kl. 11:37

3 Smámynd: Einhver Ágúst

Ok, afar gott að það er ekki Jón Óskar sem er guð....mótmæli eru í lagi bara ef það er mótmælt "rétt" og Jón Óskar er því sammála.

Eitthvað er ég nú smeykur um að hér verði kurr í fólki ef þessir krakkar verða dæmdir til fangelsisvistar nú á meðan þjófarnir ganga lausir fyrir aftan okkur þarsem við störum útá hafið til óvina okkar í Bretlandi og Hollandi, þeirra sem víst hafa valdið okkur verstum skaðanum samkvæmt umræðu síðustu 9 mánaða.

Ég var þarna þennan umrædda dag, ég varð vitni af afar vandræðalegri stórri og klaufalegri aðgerð lögreglu sem vissi ekki sitt rjúkandi ráð, enda ekki hefð fyrir mótmælum hér á landi. Ekkert réttlætir ofbeldi gegn einuym né neinum, en ætlun þessara krakka var alls ekki að skaða neinn heldur að trufla störf þingsins og láta raddir sýnar heurast, þegar svo sló í brýnu fó rsem fór og er það afar leiðinlegt og finn ég til með þingvörðum sem þurftu að taka afleiðingum gjörða yfirboðara sinna, það sama á við um lögregluna.

En reiði fóks var og er fyllilega réttlætanleg, svo getum við rifist einsog vitleysingar um hvernig megi mótmæla og hverju.

En aftur að því að það hefði verið smekklegt að mál hefðu eðlilega tímaröð og forgang í kerfinu efti ralvarleik og tímalínu, þá væru nú víkingarnir okkar hugsanlega að fara að koma fyrir dóm. Það er ALDREI að fara að gerast, það er að verða ljósara með hverjum deginum og auk þess þæfa þingmenn sem eiga hugsanlega eitthvað til saka unnið rannsóknir mála og framgöngu svo þeir og þeirra liðsmenn geti fyrnst með tímanum sem vinnur með þeim.

En gjörðir hjúkkunnar og vina hanns þennan dag eru mikill tittlingaskítur samanborið við kveikjuna að þessum aðgerðum.

Einhver Ágúst, 21.1.2010 kl. 12:37

4 Smámynd: Jón Óskarsson

Það er dálítið merkilegt að í dag heyrist fyrst í Herði Torfasyni eftir að núverandi ríkisstjórnarflokkar komust til valda.  Því í ósköpunum héldu mótmæli ekki áfram þegar í ljós kom að núverandi stjórn gerir ekkert af því sem mótmælendur voru að krefjast.  Aðeins tvennt hefur gerst: a) Davíð er farinn úr Seðlabankanum b) Ríkisstjórn Geirs Haarde féll.

Það kann vel að vera að réttarhöld yfir þeim sem réðust inn í Alþingishúsið valdi einhverjum óróa og mótmælum.   Því er venjulega mótmælt þegar tekið er á óróaseggjum meðal mótmælenda.

Ég er því hins vegar sammála að tímasetning á þessari þingfestingu málsins kemur á sérkennilegum tíma.  En núna eftir fáeina daga kemur út skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis og væntanlega verðu hún "mikil sprengja" sem á eftir að kalla fram mikla reiði í þjóðfélaginu.  Ef "löggæslan" í landinu er að reyna að slá fyrirfram á væntanleg læti með því að þetta mál sé tekið fyrir núna, þá eru það mikil mistök.  Slíkt eykur bara reiði fólks.

Lögreglumenn sem gættu Alþingishússins í fyrra voru bara menn eins og ég og þú að vinna vinnuna sína.  Örugglega hafa mistök verið gerð enda íslenska lögreglan blessunarlega ekki vön að fá við mál af þessu tagi.  Ég hafði fulla samúð með þeim mönnum í sínum störfum.

Ágúst:  Það eru grundvallarmunur á mótmælum og ofbeldi.  Og það er munur á því hvort mótmæli fara fram á opnum svæðum eða hvort ráðist er inn í opinberar byggingar, eða spjöll unnin á fasteignum og bílum, sama hver eigandi þeirra er.

Jón Óskarsson, 21.1.2010 kl. 12:59

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ég er bara þannig sinnaður í þessu máli að ég mundi kjósa að þessir "ólánsömu" einstaklingar verði áminntir - það voru sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu og eru enn - er þó ekki að kvetja til sambærilegra verka á ný .....  en mótmælin eru þörf

hafið góðan dag

Jón Snæbjörnsson, 21.1.2010 kl. 13:54

6 Smámynd: Einhver Ágúst

Þau voru inni í opinberri byggingu á leið á þingpalla þarsem okkur er öllum frjálst að fara og þau voru um 10 sem komust yfir þröskuldinn.

Já það er grundvallarmunur Jón, rétt hjá og við erum sammála um það,  afhverju ertu að benda mér á það?

Einhver Ágúst, 21.1.2010 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband